Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 27. september 2026 12:08 Mikill hiti var í pontu Alþingis á fimmtudaginn. Orð eins og skítapottur voru látin falla af Ingu Sæland formanni Flokks fólksins. samsett Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að svara verði því í hvaða umboði fyrrverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga hafi sent skilaboðin umdeildu þar sem honum voru gefnir tveir kostir, afsögn eða stríð. Þingmaður Samfylkingarinnar segir merkilegt að einkaskilaboð milli fólks séu til umræðu í pontu Alþingis.
Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, og Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, voru gestir Páls Magnússonar á Sprengisandi þar sem skeytasending var til umræðu sem Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, fékk frá fyrrverandi aðstoðarkonu sinni þar sem honum voru gefnir tveir kostir í stöðunni: afsögn eða stríð. Stefán Vagn segir að stóra spurningin snúist um það í hvaða umboði aðstoðarmaðurinn sendi skeytið. „Það er náttúrulega grafalvarlegt mál ef að aðstoðarmaðurinn hefur án umboðs sent þennan póst. Það hlýtur að vera stóra spurningin sem þarf að svara vegna þess að það er alveg ljóst að í tölvupóstinum kemur mjög skýrt fram að hún sé að tala í umboði valkyrjanna eins og hún orðar það. En ef það er ekki rétt, hvaðan er þessi póstur þá kominn?“ Arna Lára segir óumdeilt að Guðmundur Ingi hafi sagt af sér að eigin frumkvæði vegna veikinda. Hún segist skilja tilfinningar Guðmundar Inga en ekki megi gleyma því að mikið umrót hafi verið í ráðuneyti barna- og menntamála og því ekki óeðlilegt að formaður Flokks fólksins hafi viljað sjá stöðugleika í ráðuneytinu. Hún segir merkilegt að umræða um einkaskilaboð hafi ratað í pontu Alþingis. „Mér fannst mjög merkilegt að sitja undir þessu á Alþingi á fimmtudaginn. Formaður Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sem hér situr við hliðina á mér, eru að velta sér upp úr einkaskilaboðum fyrrverandi aðstoðarmanns og fyrrverandi ráðherra. Mér fannst þetta dálítið merkilegt, verð ég að segja.“ „Ég meina, þetta voru náttúrulega ekki meiri einkaskilaboð en það að þau voru á miðlunum, öllum fréttamiðlum og meðal annars Ríkisútvarpinu um morguninn þannig að einkaskilaboð og einkaskilaboð... þau voru orðin opinber,“ segir Stefán Vagn.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Alþingi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira