Sjaldgæfur gestur í Eyjum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. september 2026 18:33 Kúhegrinn er skjannahvítur í vetrarbúningi sínum. Tígull/Addi London Kúhegri leit inn í Vestmannaeyjum í dag og sást hann á vappi við Prentsmiðjuna. Þetta er fyrsti kúhegrinn sem vitað er til að hafi sést í Vestmannaeyjum og sá fyrsti sem sést hefur á landinu á þessu ári.
Tígull greinir frá komu þessa sjaldgæfa gests. Eyjamiðillinn ræddi við Yann Kolbeinsson fuglafræðing sem sagði komum kúhegra til landsins hafa fjölgað á undanförnum áratugum. Áður fyrr hafi þeir sárasjaldan sést en á þriðja tug fugla hafa nú fundist hér á landi. Að sögn Yanns veldur útbreiðsluaukning og stofnvöxtur því að kúhegrinn líti oftar við á landinu bláa. Samkvæmt umfjöllun Tíguls hafði aðeins einn kúhegri komið til landsins fyrir síðustu aldamót. Hann sást í júní ársins 1936. Kom þá í ljós að fugl þessi bar merki og virtist hafa sloppið úr haldi í dýragarðinum í Lundúnum í maí sama ár. Kúhegri er, eins og á myndunum sést, lítill og þéttur af hegra að vera. Þessi er í vetrarbúningi og er því nær allur hvítur, með gulleitan gogg og dökka fætur. Á varptíma fá fuglarnir gular skrautfjaðrir á höfuð, bringu og bak.
Vestmannaeyjar Fuglar Dýr Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sjá meira