Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. september 2026 13:44 Zoltán starfar sem sundþjálfari yngri flokka hjá KR. Vísir Zoltán Belányi, sundþjálfara hjá KR, sárnar að hafa ítrekað verið tengdur við líkamsárás í síðustu viku. Hann er ekki viðriðinn málið og segir að tengingin sé skaðleg fyrir mannorð sitt og orðspor.
Greint var frá málinu í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn hjá Gróttu. Zoltán starfar sem sundþjálfari hjá KR en er ekki umræddur þjálfari. Samkvæmt ábendingu til fréttastofu telur fólk að hann hafi verið viðriðinn málið þar sem Zoltán var eini karlkyns þjálfarinn skráður á heimasíðu sunddeildar KR. Vert er að taka fram að nafn meints árásarmanns var fjarlægt af heimasíðunni eftir að fjallað var um málið í fjölmiðlum. Maðurinn sem var handtekinn var á fertugsaldri en Zoltán er um sextugt. „Í tengslum við ofbeldisatvikið sem átti sér stað í síðustu viku milli tveggja aðila hafa ákveðnir aðilar nefnt fullt nafn mitt í Facebook-ummælum og tengt mig við það sem gerðist. Ég hafna þessu alfarið,“ skrifar Zoltán í færslu á Facebook. Hann segir að þeir sem tengi nafn hans við atvikið séu að móðga hann og skaða mannorð hans og orðspor. „Ég krefst þess að viðkomandi leiðrétti þessar rangfærslur opinberlega og að þeir biðjist afsökunar í viðkomandi athugasemdum. Ég vænti þess jafnframt að viðkomandi aðilar forðist í framtíðinni að tengja nafn mitt við atvik sem ég hef enga aðild að.“ Krefst afsökunarbeiðni Í samtali við fréttastofu segir Zoltán að margir hafi komið að tali við hann og haldið að hann hafi haft eitthvað við málið að gera. Einnig hafi fólk á samfélagsmiðlum tengt nafn hans við fréttirnar. Zoltán starfar bæði við sundkennslu og í grunnskóla svo það fyrsta sem hann gerði var að hafa samband við skólastjóra grunnskólans. „Ég varð að taka fyrsta skrefið til að verja mig sjálfan strax,“ segir hann. Hann leitaði til lögfræðings með það í huga að kæra þá sem tengdu nafn hans við málið. Lögfræðingurinn hafi hins vegar stoppað hann af í bili. „Ef þetta fólk þorir að koma fram og senda mér einkaskilaboð til að biðjast afsökunar, þá væru þau að koma vel fram,“ segir hann og bætir við að ein afsökunarbeiðni myndi leysa málið.
KR Sund Lögreglumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira