Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Kristján Már Unnarsson skrifar 24. september 2026 10:10 Nýja Þjórsárbrúin kemur skammt ofan við eyjuna Árnes, sem sést ofarlega fyrir miðri mynd. Efst í kvíslinni hægra megin er Búðafoss. Vegagerðin Borgarverk ehf. í Borgarnesi átti lægsta boð í smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes og lagningu Búðafossvegar. Tilboð Borgarverks hljóðar upp á liðlega 2,5 milljarða króna og var 87% af kostnaðaráætlun, sem var upp á rétt rúma 2,9 milljarða króna.
Alls bárust fimm tilboð í verkið og var tilboð Borgarverks það eina undir áætluðum verktakakostnaði og munaði þar 376 milljónum króna. Næstlægsta boð áttu ÞG-verktakar, upp á liðlega þrjá milljarða króna og var það fimm prósentum yfir kostnaðaráætlun. Hæsta boð átti Ístak, upp á tæpa 3,6 milljarða króna, 23 prósentum yfir áætlun. Brúarsmíðin og vegagerðin tengjast gerð Hvammsvirkjunar og boða einhverja mestu samgöngubyltingu í uppsveitum Suðurlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra. Samkomulag gerir ráð fyrir að Landsvirkjun greiði 40 prósent kostnaðar en Vegagerðin 60 prósent. Horft yfir Þjórsá úr Árnessýslu yfir í Rangárvallasýslu. Brúin verður 204 metra löng og Búðafossvegur 7,4 kílómetra langur.Teikning/Vegagerðin Brúin verður 204 metra löng og staðsett ofan við Búðafoss skammt frá eyjunni Árnesi. Búðafossvegur verður 7,4 kílómetra langur en hann tengir Þjórsárdalsveg í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landveg í Rangárþingi ytra. Ekki kemur fram í útboðsauglýsingunni hvenær verklok séu áætluð. Í fyrri fréttum Vísis hefur þó verið skýrt frá því að verktími sé áætlaður um þrjú ár. Í frétt Stöðvar 2 í nóvember 2024, þegar búist var við því að stutt væri í útboð, var sýnt myndband Vegagerðarinnar af útliti mannvirkjanna og staðsetningu þeirra: Kærumál vegna virkjunarinnar hafa hindrað framkvæmdir árum saman. Sumarið 2009 vonuðust sunnlenskir ráðamenn eftir útboðinu þá um haustið, eins og rifja má upp í þessari sautján ára gömlu frétt Stöðvar 2:
Deilur um Hvammsvirkjun Vegagerð Landsvirkjun Skeiða- og Gnúpverjahreppur Rangárþing ytra Vatnsaflsvirkjanir Samgöngumál Samgönguáætlun Ferðaþjónusta Orkumál Umhverfismál Tengdar fréttir „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. 11. júní 2026 10:00 Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. 10. júní 2026 16:24 Ný Þjórsárbrú bíður í sömu óvissu og Hvammsvirkjun Útboð á smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes ásamt gerð Búðafossvegar er í óvissu eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í síðasta mánuði. Vegagerðin hafði gefið út að verkið yrði boðið út fljótlega á þessu ári. 5. febrúar 2025 14:44 Ný brú á Þjórsá talin kosta um fimmtung af verði Ölfusárbrúar Ný Þjórsárbrú við Árnes verður boðin út fljótlega eftir áramót. Hún mun ásamt tengivegum sennilega kosta vel innan við fjórðung af því sem Ölfusárbrúin kostar. 19. nóvember 2024 07:07 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. 11. júní 2026 10:00
Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. 10. júní 2026 16:24
Ný Þjórsárbrú bíður í sömu óvissu og Hvammsvirkjun Útboð á smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes ásamt gerð Búðafossvegar er í óvissu eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í síðasta mánuði. Vegagerðin hafði gefið út að verkið yrði boðið út fljótlega á þessu ári. 5. febrúar 2025 14:44
Ný brú á Þjórsá talin kosta um fimmtung af verði Ölfusárbrúar Ný Þjórsárbrú við Árnes verður boðin út fljótlega eftir áramót. Hún mun ásamt tengivegum sennilega kosta vel innan við fjórðung af því sem Ölfusárbrúin kostar. 19. nóvember 2024 07:07