„Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Lovísa Arnardóttir skrifar 29. september 2026 08:49 Linda Karen Gunnarsdóttir er formaður Dýraverndunarsambands Íslands. vísir Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi telja að efla þurfi réttarvernd dýra á Íslandi. Samtökin kalla eftir því að tryggð verði skýrari lagaheimild svo að viðurkennd dýraverndarsamtök geti kært stjórnvaldsákvarðanir sem varða velferð dýra og vísa til sambærilegs réttar umhverfisverndarsamtaka.
Í yfirlýsingu kalla samtökin eftir því að slík heimild verði tryggð í lögum og að heildarendurskoðun laga um velferð dýra sé nú til meðferðar hjá atvinnuvegaráðuneytinu. „Dýraverndarsamtök verða að geta leitað réttar fyrir hönd dýra innan stjórnsýslunnar,“ segir í yfirlýsingunni. „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórnvaldsákvarðanir sem hafa áhrif á velferð þeirra. Þegar samtökum sem hafa það hlutverk að gæta hagsmuna dýra er jafnframt synjað um aðild að slíkum málum myndast augljóst rof í réttarvernd dýra.“ Þar benda þau á að dýraverndarsamtök geti ekki borið ákvarðanir Matvælastofnunar (MAST), sem fer með eftirlit með velferð dýra, undir æðra stjórnvald. Möguleikar dýraverndarsamtaka til að vera málsvarar dýra innan stjórnsýslunnar séu því takmarkaðir eða engir. „Slík staða samræmist illa því mikilvæga hlutverki sem dýraverndarsamtök gegna við að gæta hagsmuna og velferðar dýra.“ Kæru vísað frá Tilefni yfirlýsingar þeirra er ákvörðun atvinnuvegaráðuneytisins um að vísa frá stjórnsýslukæru þeirra og erlendra dýraverndunarsamtaka vegna ákvörðunar MAST um að veita Ísteka hf. skilyrt starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum vegna lyfjaframleiðslu. Í kærunni var þess krafist að ákvörðun MAST yrði ógilt eða til vara endurskoðuð. „Að mati samtakanna stenst blóðmerahald ekki skilyrði þeirrar reglugerðar sem starfsemin fellur undir. Skýrt er kveðið á um að ekki skuli heimila notkun á dýrum í vísindaskyni ef unnt er að ná sama markmiði með öðrum aðferðum. Að mati samtakanna eru slíkir kostir fyrir hendi, enda er til fjöldi frjósemislyfja á markaði auk aðferða í búfjárrækt þar sem notkunar lyfja er ekki krafist,“ segir í yfirlýsingunni. Þar er bent á að kæru þeirra hafi verið vísað frá á þeim grundvelli að dýraverndarsamtökin séu ekki talin hafa nægilega beina og lögvarða hagsmuni af málinu til að teljast aðilar þess. „Þetta er ekki einsdæmi. Erindum dýraverndarsamtaka vegna ákvarðana og málsmeðferðar MAST er ítrekað vísað frá á þeim grundvelli að samtökin teljist ekki eiga aðild að málunum. Afleiðingin er sú að ákvarðanir sem varða velferð dýra geta farið hjá því að sæta efnislegri endurskoðun æðra stjórnvalds,“ segir í yfirlýsingunni.
Dýr Dýraheilbrigði Blóðmerahald Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira