Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Birgir Olgeirsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 22. september 2026 11:53 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir núverandi ríkisstjórn ætla meira fé til vegakerfisins og vetrarþjónustu en fyrri ríkisstjórn lagði til. Vilhelm Innviðaráðherra vísar á bug því að Icelandair hafi fengið vilyrði stjórnvalda um inngrip í verkfall flugvirkja. Hann segir þær ásakanir furðulegar.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, telur Icelandair kunna að hafa fengið vilyrði um inngrip stjórnvalda. Hann vísar til þess að félagið hafi boðið farþegum að færa flug 23. og 24. september, þótt verkfallið sé ótímabundið. Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttamaður ræddi við Eyjólf Ármansson innviðaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Spurður hvort Icelandair hefði fengið slíkt vilyrði frá honum eða öðrum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar svaraði Eyjólfur: „Nei, og mér finnst það furðulegar ásakanir. Það er ábyrgð beggja aðila að ná saman við samningaborðið.“ Neitaði að tjá sig um frumvarp Verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu á miðnætti. Spurður um viðbrögð stjórnvalda ef samningar næðust ekki sagði Eyjólfur: „Þetta var rætt á ríkisstjórnarfundi hérna áðan. Það eru engar ákvarðanir teknar.“ Þegar spurt var um frumvarp um lög á verkfallið svaraði hann: „Ég ætla ekki að tjá mig neitt um það.“ Hann vildi heldur ekki segja hversu lengi verkfall gæti staðið áður en stjórnvöld gripu inn í. Langt á milli deiluaðila Ráðuneytið fundaði með deiluaðilum í gær. „Það er langt á milli,“ sagði Eyjólfur um stöðuna. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði við fréttastofu fyrr í dag að samtöl væru í gangi en engir formlegir samningafundir stæðu yfir. Ekkert afmarkað eða skýrt væri til umræðu, aðeins þreifingar. Flugvirkjafélagið hefur boðist til að fresta verkfallinu um viku til að gefa aðilum tíma til að vinna með innanhústillögu ríkissáttasemjara. Icelandair hafnaði boðinu í gær og telur frestun lengja óvissuna og auka tjónið. Félagið segir tæplega þrjú þúsund farþega þegar hafa fært bókanir sínar. Þá séu merki um afbókanir og að farþegar velji önnur flugfélög. Icelandair vill að verkfallsboðunin verði dregin til baka og viðræðum haldið áfram.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Icelandair Samgöngumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sjá meira