Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Bjarki Sigurðsson skrifar 20. september 2026 15:49 Hvalur 9 rétt fyrir komuna í Reykjavíkurhöfn í dag. Vísir/Agnar Hvalveiðivertíð Hvals hf. er lokið. Hvalbátarnir eru komnir til hafnar í Reykjavík. Í Hvalfirði er unnið að því að vinna hráefni síðustu hvalanna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals. Hvalveiðitímabilið fer jafnan fram yfir sumarmánuðina og lýkur oftast í september eða október. „Heildarveiði sumarsins var 93 langreyðar. Veðrið í sumar hefur verið erfitt til hvalveiða þessa 94 daga sem vertíðin stóð. Við höfum til dæmis legið í um 25 daga í Hvalfirði vegna veðurs. Klárað var að taka í land í Hvalfirði í dag veiðarfæri sem notuð eru við hvalveiðar eins og byssur, skutlur, sprengjur og fleira,“ segir í tilkynningunni. Við Reykjavíkurhöfn.Vísir/Agnar Hvalveiðiskipin eru komin til hafnar við Ægisgarð þar sem þau munu liggja í það minnsta fram á næsta sumar. „Í Hvalfirði er verið að klára að vinna hráefni síðustu hvalanna er landað var. Síðan taka við þrif og annar frágangur,“ segir í tilkynningunni. Í febrúar mun Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar. Byggt verður á skýrslu um lagaumgjörð veiðanna sem starfshópur skilaði af sér í fyrra. Þar má finna greiningu á þremur valkostum; að veiðum verði haldið áfram, þær takmarkaðar eða bannaðar til frambúðar. Hanna Katrín sagði í samtali við fréttastofu í síðustu viku að í því frumvarpi væri ákvæði um bann við hvalveiðum. Því er mögulegt að síðustu langreyðarnar hafi verið veiddar við Íslandsstrendur.
Hvalveiðar Reykjavík Hafið Dýr Hvalir Hvalfjarðarsveit Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira