Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Lovísa Arnardóttir skrifar 20. september 2026 14:30 Jóhannes Haukur vill fá lestrarheftið aftur heim. Vísir/Vilhelm og Læsir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari hefur sent Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra bréf vegna smáforrits sem hann þarf að nota, með barninu sínu, til að skrá heimalestur. Hann segir forritið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýti undir óþarfa samanburð. Hann telur að snúa ætti aftur til þess að skrá lestur á blað.
Jóhannes Haukur er þriggja barna faðir og segir í færslu á Facebook, þar sem hann deilir bréfinu, að hann hafi látið það yfir sig ganga þegar miðjubarnið kom heim með spjaldtölvu en hann segi stopp við þessu smáforriti. „Í stuttu máli virðist þetta vera samfélagsmiðill sem hið opinbera er að krefja börn í skólum á yngstu stigum til að nota við skráningu á heimalestri. Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál,“ segir hann í bréfi sínu til Ingu. Skjáskot úr forritinu. Læsir Hann segir að hingað til hafi heimalestur verið laus við skjávæðinguna en fyrir um ári síðan hafi skólinn kynnt þetta smáforrit til leiks. Hann hafi hafnað þessu og prentað út skráningarblað. Stór partur af ferlinu fyrir dóttur hans hafi verið að fá endurgjöf frá kennara á þetta blað og á því hafi einnig verið að finna 15-20 auðar línur sem börnin höfðu til að æfa sig í að skrifa hin ýmsu orð í hverri viku. Þetta sé, til dæmis, ekki að finna í appinu. Jóhannes Haukur segist hins vegar hafa gefið undan þegar dóttir hans óskaði þess að það yrði notað. Hún hafi fundið það að önnur börn og kennari voru að nota það og hann segir þau ekki hafa viljað jaðarsetja hana með því að nota það ekki. „En þetta app er ekkert annað en samfélagsmiðill, það ber þess öll merki. Óheyrilegur samanburðurinn við aðra, endalausar skráningar og viðurkenningar. Allt varðandi þetta app finnst mér vera lausn á einhverju sem var og er ekki vandamál. Mér finnst það gera meira ógagn en gagn.“ Jóhannes Haukur segir að það sem glatist við notkun smáforritsins sé merkilegra en yfirsýnin sem smáforritið á að gefa. „Mér finnst hreinlega galið að á meðan við erum sem samfélag búin að átta okkur á skaðsemi samfélagsmiðla fyrir ung börn (og sennilega fyrir fleiri), og séum jafnvel að banna notkun barna á þeim, að þá séum við um leið að þröngva börnunum inn á samfélagsmiðil í boði ríkisins.“ Lestrarskráning aftur á blaði Jóhannes Haukur leggur til að notkun smáforritsins verði hætt og lestrarskráning aftur tekin upp á blaði og óskar þess að Inga taki málið til skoðunar. Fjölmargir hafa skilið eftir athugasemd við færslu Jóhannesar og má þar sjá að skiptar skoðanir eru meðal foreldra á forritinu. Ein segist hafa verið á sama stað til að byrja með og Jóhannes en hafi að enda játað sig sigraða. „Á sama tíma er þetta gott utanumhald um tölfræði lesturs barnsins – og áfram foreldramál að gæta þess að skrá lesturinn. Kann ekki við stjörnugjöfina alla og verðlaunamenninguna en er að hvetja mína yngri til að lesa, fyrir eldri er þetta bara áframhaldandi massalestur eins og áður og skiptir engu. Eflaust þægilegra fyrir kennarana að verja ekki dýrmætum tíma í tímum í að skoða lesheftin, allt sjálfvirkt,“ segir hún og að það sé sterkur punktur með handskrift. Svo eru það aðrir sem taka forritinu fagnandi. „Ég veit að þú lékst hellisbúann en sú sýning er á enda. Þú/þið eigið að nota þetta smáforrit og dóttir þín þarf aldrei að sjá það frekar en þið viljið. Ég tek þessu fagnandi þar sem ég þoli ekki pappír.“ Tæplega hundrað skólar að nota forritið Á heimasíðu forritsins má sjá að alls eru 97 skólar að nota það og 1.740 kennarar. Þá eru rúmlega 19 þúsund börn skráð í appið og 26 þúsund forráðamenn. Þar segir um forritið að kennarar geti stofnað hópa fyrir bekki sína og séu svo með aðgang að skráningum á sérstöku mælaborði. Á vef segir að nemendur fái að fylgjast með árangri sínum og fá fjölbreytta hvatningu. ÞaÞeirafni eldi fyrir hvern dag í röð sem þeir lesa og límmiðum fyrir áfanga á leiðinni, til dæmis fyrstu bókina í bókahilluna eða að ná lestrarmarkmiðinu oft í röð. Þá er í forritinu einnig hægt að sjá hvaða bækur barnið er búið að lesa og svo í Vinsældarlistanum er hægt að sjá hvaða bækur önnur börn eru að lesa í skólanum, á landinu og svo jafnaldrar.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Læsi Tengdar fréttir Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu. 17. september 2026 22:23 Spreyttu þig á PISA-spurningunum Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára. 17. september 2026 08:00 Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra tilkynnti fyrr í vikunni að til þess að bregðast við slæmum niðurstöðum PISA-könnunarinnar ætti að verja 445 milljónum í námsgagnagerð. Námsgagnaskortur hefur síðustu mánuði verið mikið gagnrýndur. Sérfræðingur segir það geta skipt sköpum fyrir kennara og íslenskt menntakerfi hvernig þessu fjármagni verður varið og hvert það fer. 12. september 2026 23:05 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira
Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu. 17. september 2026 22:23
Spreyttu þig á PISA-spurningunum Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára. 17. september 2026 08:00
Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra tilkynnti fyrr í vikunni að til þess að bregðast við slæmum niðurstöðum PISA-könnunarinnar ætti að verja 445 milljónum í námsgagnagerð. Námsgagnaskortur hefur síðustu mánuði verið mikið gagnrýndur. Sérfræðingur segir það geta skipt sköpum fyrir kennara og íslenskt menntakerfi hvernig þessu fjármagni verður varið og hvert það fer. 12. september 2026 23:05