Fagnar uppreisninni Eiður Þór Árnason skrifar 16. september 2026 17:07 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hvetur sendla Wolt til að setja sig í samband við stéttarfélög. Vísir/Anton Brink Formaður stéttarfélagsins VR fagnar því að sendlar hjá heimsendingarfyrirtækinu Wolt hafi lagt niður störf til að mótmæla kjörum sínum. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hefur lýst yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu sendlanna og aðgerðir þeirra. „
Mjög gott hjá Wolt-sendlum að rísa upp í sameiningu! Wolt hefur verið til vandræða á öllum Norðurlöndunum. Fyrirtækið neitar að virða kjarasamninga og lágmarksréttindi launafólks og nú síðast sigldu kjaraviðræður við Wolt í strand í Finnlandi,“ skrifar Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í færslu á Facebook-síðu sinni. Hún bætir við að VR og Landssamband íslenzkra verslunarmanna hafi tekið virkan þátt í norrænu samstarfi sem hefur það að markmiði að „koma böndum á“ vinnu á svokölluðum verkvöngum eða vinnuvettvöngum (e. platform work) en Wolt er þeirra á meðal. Markmið þeirrar samvinnu sé að laga nýja tækni að norrænum vinnumarkaði í stað þess að „fórna grundvallarréttindum launafólks til að þjóna nýrri tækni, hversu þægileg sem hún kann að vera fyrir neytendur.“ Þá hvetur Halla Wolt-sendla til að hafa samband við ASÍ, VR eða önnur stéttarfélög sendla. Framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir að öllum ábendingum frá sendlum á vegum fyrirtækisins sé tekið alvarlega. Sendlarnir lögðu niður störf tímabundið í dag og segja fyrirtækið hafa lækkað laun sín um fjörutíu prósent á einu ári. Finnbjörn A. Hermannsson er forseti ASÍ.Vísir/Vilhelm Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kastljósið beinist að launakjörum Wolt-sendla en ASÍ sagði í febrúar að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningsbundnum réttindum. Sakað Wolt um gerviverktöku Sendlarnir eru ekki starfsmenn Wolt en miðstjórn ASÍ segir störf þeirra tilheyra skipulögðum íslenskum vinnumarkaði. Í nýrri yfirlýsingu skorar ASÍ á fyrirtæki á Íslandi sem starfrækja stafræna vinnuvettvanga að skrá starfsmenn sína sem launafólk, auk þess að fylgja gildandi kjarasamningum um kjör þeirra og réttindi. „ASÍ hefur ítrekað fjallað um gerviverktöku og þá þróun sem fylgt hefur uppgangi hark-hagkerfisins, meðal annars í tengslum við starfsemi Wolt hér á landi. Stafræn stjórnun og ný rekstrarform mega aldrei verða leið til að færa ábyrgð og áhættu atvinnurekstrar yfir á einstaklinga. Fólk sem í reynd starfar sem launafólk á að njóta þeirra réttinda og þeirrar verndar sem því fylgir, óháð því hvernig vinnunni er miðlað eða sambandið skilgreint.“ Norræn stéttarfélög með sameiginlega yfirlýsingu Miðstjórn ASÍ segir að íslensk verkalýðshreyfing muni aldrei samþykkja „félagsleg undirboð“ sem grafi undan kjarasamningsbundnum kjörum og réttindum launafólks og leikreglum skipulagðs vinnumarkaðar, eins og það er orðað í yfirlýsingu. Miðstjórnin lýsir einnig yfir stuðningi við sameiginlega yfirlýsingu norrænna stéttarfélaga um störf á stafrænum vinnuvettvöngum og tekur undir þá afstöðu að störf í „hark-hagkerfinu“ verði að tryggja fólki mannsæmandi afkomu, örugg starfsskilyrði og félagslega vernd. Hvetur ASÍ sendla Wolt til að leita til ASÍ og aðildarfélaga þess. Wolt á Íslandi segist vilja leggjast yfir málið með sendlunum. „Við hjá Wolt tökum ábendingum sendla alvarlega og leitum nú eftir opnu og uppbyggilegu samtali við sendlana þar sem við getum farið yfir stöðuna í sameiningu. Við virðum rétt allra til að koma áhyggjum sínum á framfæri og mótmæla með friðsamlegum hætti. Við erum að fara yfir þau mál sem hafa komið fram og viljum ræða þau beint við sendlana til að skilja betur þeirra sjónarmið og hvað megi bæta,“ sagði Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, í yfirlýsingu til Vísis fyrr í dag. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kjaramál Heimsendingarþjónusta Tengdar fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir að öllum ábendingum frá sendlum á vegum fyrirtækisins sé tekið alvarlega. Sendlarnir lögðu niður störf tímabundið í dag og segja fyrirtækið hafa lækkað laun sín um fjörutíu prósent á einu ári. 16. september 2026 15:02 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira
Wolt sendlar lögðu niður störf Framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir að öllum ábendingum frá sendlum á vegum fyrirtækisins sé tekið alvarlega. Sendlarnir lögðu niður störf tímabundið í dag og segja fyrirtækið hafa lækkað laun sín um fjörutíu prósent á einu ári. 16. september 2026 15:02