Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Agnar Már Másson skrifar 17. ágúst 2026 21:55 Alexus Grynkewich, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu og yfirherforingi NATO, ræddi við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í dag. Forsætisráðuneytið Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir.
Kristrún Frostadóttir fundaði í dag með yfirhershöfðingjanum Alexus Grynkewich en hann er hér á landi í tengslum við varnaræfinguna Norðurvíking. Hershöfðinginn átti einnig fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra en á báðum fundum var rætt um horfur í öryggismálum og aukinn varnarviðbúnað bandalagsins. Fjörutíu prósent töldu Bandaríkin andstæðing Að loknum fundi þeirra Kristrúnar ræddu þau stuttlega við fréttamenn en þar var meðal annars borin undir Grynkewich könnun frá því í febrúar sem sýndi að fleiri Íslendingar telja Bandaríkin andstæðinga heldur en telja þau bandamenn. Þar svöruðu ríflega fjörutíu prósent að Bandaríkin væru andstæðingur, en tæpur þriðjungur að þau væru bandamaður. Fjórðungur kvaðst ekki vita svarið. Hann gaf þeirri könnun lítinn gaum, og svaraði með því að nefna aðra könnun. „Það birtist líka nýlega könnun þar sem fram kom að 71 prósent Íslendinga telji NATO nauðsynlegt fyrir öryggi sitt,“ sagði Grynkewich. Líklega vísar hann þar til könnunar frá apríl 2025. „Bandaríkin eru aðili að NATO og Ísland sömuleiðis, þannig að við erum í þessu saman og ég hvet alla til að horfa til lengri tíma. En ég get sagt ykkur að við eigum traust samband á hernaðarlegum vettvangi,“ hélt hann áfram. Alexus Grynkewich, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, er sömuleiðis yfirherforingi NATO. Hann er hér á landi vegna varnaræfingarinnar Norðurvíkings.Vísir/Sigurjón „[Donald] Trump forseti [Bandaríkjanna] skipaði mig, bandarískan hershöfðingja, sem yfirhershöfðingja NATO í Evrópu, og hann sendi mig hingað til að sinna því og það mun ég gera; ég ætla að verja hvern einasta sentímetra af yfirráðasvæði bandalagsins, eins lengi og ég gegni stöðunni. Svo að ég held að Íslendingar þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur hvað það varðar.“ „Stundum einhver ummæli á pólitíska sviðinu“ Spurður hvort hann teldi að Bandaríkin þyrftu að vinna aftur traust Íslendinga í ljósi ummæla Trumps um að leggja undir sig Grænland, svaraði hershöfðinginn á þann veg að hann teldi ummæli Trumps um Grænland hafa styrkt umræðuna um mikilvægi varnarmála á norðurslóðum. „Að mínu mati er það mjög jákvæð niðurstaða. Við gáfum því líklega ekki eins mikinn gaum innan bandalagsins, og líklega ekki einu sinni í Bandaríkjunum fram að þessum tímapunkti. Þannig að ég reyni að líta frekar á þær niðurstöður sem við erum að knýja fram sem bandalag vegna þeirra umræðna sem við höfum átt í fortíðinni,“ bætti Grynkewich við. Kristrún forsætisráðherra kom þá inn orði þar sem hún sagðist taka heils hugar undir með öllu því sem hershöfðinginn sagði. „Jú, vissulega hefur verið ákveðin þróun, stundum einhver ummæli á pólitíska sviðinu, en við höfum alltaf átt – og hefur jafnvel styrkst á síðustu mánuðum og árum – afar sterkt samstarf á öllum stigum við bandarísk stjórnvöld og Bandaríkjaher,“ sagði Kristrún.
Öryggis- og varnarmál NATO Grænland Bandaríkin Donald Trump Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira