„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Lovísa Arnardóttir skrifar 16. ágúst 2026 07:02 Konur og karlar fjölmenna í félagsmiðstöðina á hverjum degi. Vísir/Birta Rán Hópur Korpúlfa, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, ætlar að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoninu. Hópurinn safnar fyrir félaginu og félagsstarfinu sem þau skipuleggja. Formaður segir mikilvægt að halda fólki í virkni eftir að það hættir að vinna og mikil áhersla sé lögð á það hjá Korpúlfi að fólk geti fundið sér eitthvað við hæfi.
Félagið býður upp á fjölbreytt félagsstarf, þar sem flestir geta fundið vettvang við sitt hæfi og er markmið þess að fyrirbyggja félagslega einangrun með því að skapa góðan félagsanda, treysta vináttubönd og hvetja til frumkvæðis og sjálfstæðra athafna. Ríkharð Brynjólfsson formaður Korpúlfa segir hópinn ætla að ganga þrjá kílómetra saman og safna nú áheitum fyrir félagsstarfið. Hlaupið fer fram á menningarnótt, þann 22. ágúst. Formaðurinn er ánægður með þátttökuna. Vísir/Birta Rán „Við erum með allt mögulegt. Við höldum úti fjölbreyttri dagskrá í samstarfi við Félagsmiðstöðina Borgir,“ segir hann og að félagið sé sjálft 25 ára gamalt. Alls eru um tólf hundruð félagar í félaginu, misvirkir, að sögn Ríkharðs. „Það er alls konar starfsemi og það er bara spurning hver skipuleggur félagsvist og svo eru gönguhópar þrisvar í viku og leikfimi í Egilshöll sem sjálfboðaliðar hafa séð utan um.“ Þá sé einnig hópur sem stundar pílukast og annar boccia. „Bara hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ segir hann og hlær. Fjörutíu á námskeiði um kínaskák Hann segir mikilvægt að halda fólki gangandi svo það sé ekki eitt heima. „Það var til dæmis í síðustu haldið námskeið um kínaskák, sem ég veit varla hvað er, en það mættu 40 manns á það,“ segir hann og að eins hafi nýlega verið haldið fjölsótt námskeið um Canasta. Gönguhópurinn gengur um fjóra kílómetra saman þrisvar í viku. Vísir/Birta Rán Fólk spili það því núna til viðbótar við bridds og félagsvist. „Svo koma konur þarna saman til að prjóna og einhverjar eru í postulínsmálningu og aðrir í listmálun. Það er allt mögulegt félagsstarf í gangi.“ Þrír kílómetrar í skemtiskokki Í félagsmiðstöðinni er hægt að fá heitan mat í hádeginu og svo síðdegiskaffi og segir Ríkharð það vinsælt. Hann segir Korpúlf einnig halda reglulega félagsfundi en haldi auk þess jólahlaðborð og þorrablót. Hann segir fjármagnið sem safnast fyrir viðburðina sem þau halda og fyrir utanumhaldið um félagsstarfið. Þau hafi aðgang að félagsmiðstöðinni þegar hún er opin. Hann segir þátttökuna í maraþoninu eins og margt annað í félaginu. Ein í gönguhópnum hafi fengið þessa hugdettu og það hafi svo bara verið ákveðið að láta slag standa. Eins og er eru 21 félagar í Korpúlfi skráðir í maraþonið í áheitasöfnun. Hann segir alla stefna á þrjá kílómetra í skemmtiskokki. „Það er eins og hringurinn sem við förum vanalega í gönguhópnum þrisvar í viku, það eru þrír eða fjórir kílómetrar. Þannig við eigum að ráða við þetta,“ segir hann. Ríharð segir þau vel eiga að ráð við þrjá kílómetra í skemmtiskokki. Vísir/Birta Rán Þau fari saman í bíl frá félagsmiðstöðinni um morguninn en svo eftir hlaup fari þau hvert sína leið. Hann segir ekkert sérstakt markmið í söfnuninni en þegar fréttin er skrifuð hafa safnast um 119 þúsund krónur. Vilja eyða öllum biðlistum Birna Róbertsdóttir, forstöðumaður í Borgum, segir fjölbreytta heilsueflingu stóran þátt í starfi Korpúlfa og uppbyggjandi félagsstarf með virkni og gleði að leiðarljósi. „Rannsóknir sanna að félagsleg samvera hefur mjög góð áhrif á heilsu og lífsgæði fólks. Það að tilheyra, hafa eitthvað að hlakka til, gleðja aðra og taka þátt í að móta samfélag,“ segir Birna. Hún segir alla styrki sem safnist í áheitasöfnuninni renna beint til félagsstarfsins sem sé að mestu leyti unnið í sjálfboðaliðastarfi. Gönguhópurinn tilbúinn í göngu á föstudegi. Vísir/Birta Rán „Það verður aldrei fullþakkað, þar sem reynsla þeirra og dýrmæt kunnátta nýtast í botn. Korpúlfar hafa starfað í 30 ár árið 2028 og þeim fjölgar sífellt en aðsókn í allt það sem þeir bjóða upp á eykst stöðugt. Því þarf endalaust að bæta við félagsstarfið, sem er síbreytilegt, og fjölga fleiri dagskrárliðum.“ Þess vegna sé starfsskrá þeirra í stöðugri sókn og þróun. „Markmiðið er meðal annars að fjarlægja sem mest biðlista á alla viðburði en það eru engin félagsgjöld í félagið og flest það sem boðið er upp á er ókeypis eða kostar lítið.“ Eins og fram kom að ofan er hópurinn sem tekur þátt í gönguhóp sem hittist þrisvar í viku. „Hluti af gönguhópnum tekur þátt í skemmtiskokkinu. Það eru sameiginleg vesti á leiðinni í hús en flest eru að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn. Síðan er stór hópur í stuðningshópnum. Með baráttuanda í brjósti munu Korpúlfar í fyrsta sinn taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu,“ segir hún að lokum.
Eldri borgarar Hlaup Reykjavíkurmaraþon Menningarnótt Heilbrigðismál Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira