Einn í sjálfheldu í Emstrum og annar fótbrotnaði á Falljökli Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. júlí 2026 20:28 Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Borgarnes eftir að tilkynning barst um mann á kajak á hafi úti. Gæslan sé á leið á svæðið til að leita af sér allan grun en málið sé enn afar óljóst. Vísir/Anton Brink Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur haft í nægu að snúast í kvöld en hún hefur sinnt minnst þremur útköllum það sem af er kvöldi.
Klukkkan tuttugu mínútur í fimm sídegis í dag barst Landhelgisæslunni tilkynning um ferðamann sem hafði fótbrotnað á Falljökli í Öræfum, að sögn Magnúsar Pálmars Jónssonar, aðgerðarstjóra Landhelgisgæslunnar. Óskað hafi verið eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar við flutning viðkomandi til aðhlynningar í Reykjavík. Nú sé önnur þyrla á leið að Emstrum að Fjallabaki að aðstoða einn í „sjálfheldu,“ segir Magnús. Hin þyrla Gæslunnar sé á leið í Borgarnes eftir að tilkynning barst um mann á kajak á hafi úti. Gæslan sé á leið á svæðið til að leita af sér allan grun en málið sé enn afar óljóst. Auk þess hafi verið óskað eftir aðstoð þyrlunnar við flutning manns sem lenti í mótorhjólaslysi í Dýrafjarðargöngum á Vestfjörðum. Hætt hafi verið við aðgerðina en maðurinn verði fluttur frá Ísafjarðarflugvelli til Reykjavíkur með sjúkraflugi í staðinn. Maðurinn hafi misst stjórn á mótorhjóli sínu, lent á veggnum gangnanna og misst meðvitund um tíma, að sögn Hlyns Snorrasonar yfirlögregluþjóns á Ísafirði. Maðurinn sé ekki talinn í lífshættu en hafi slasast töluvert. Í kjölfar slyssins hafi göngin verið lokuð í einhvern tíma en séu opin á ný. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að lögreglan á Vestfjörðum leiðrétti mál sitt. Mótorhjólaslysið átti sér stað í Dýrafjarðargöngum, ekki Vestfjarðagöngum eins og fyrr sagði.
Landhelgisgæslan Sveitarfélagið Hornafjörður Rangárþing eystra Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sjá meira