Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Samúel Karl Ólason skrifar 26. júlí 2026 10:56 Þessi ungi drengur svaf í ferðatösku á flugvellinum á Alicante á Spáni í nótt. Þó nokkrar fjölskyldur urðu þar eftir. Tugir Íslendinga, þar á meðal fjölskyldur með ung börn, voru skildir eftir á flugvellinum í Alicante á Spáni í nótt vegna bilunar sem kom upp í flugvél Icelandair. Allir farþegarnir voru komnir um borð í flugvélina þegar bilun á neyðarútgangi hennar varð til þess að hún var rýmd af farþegum og farangri og einungis helmingur farþega fékk að fara aftur um borð.
Aðrir urðu eftir á flugvellinum. Farþegi sem blaðamaður ræddi við hefur eftir flugstjóra flugvélarinnar að 93 farþegar hafi fengið að fara til Íslands og 93 hafi orðið eftir. Hann segir að valið hafi verið af handahófi en hann átti upprunalega að fara með flugvélinni en kærasta hans og fjögur börn ekki, vegna þess að þau voru á mismunandi bókunum. Annar farþegi tók sæti hans. Farþeginn hrósar áhöfn flugvélarinnar og segir ekki hægt að kenna henni um neitt. Neyðarútgangur flugvélarinnar hafi skemmst þegar starfsmaður flugvallarins á Alicante opnaði dyr á flugvélinni. Honum finnst hins vegar miður að börn hafi ekki fengið forgang um borð í flugvélina aftur. Þegar þetta var að gerast var klukkan um hálf tvö að staðartíma og þá hafði fjölskyldan verið á ferðinni frá því klukkan átta um morguninn. Áður en flugvélin var rýmd hafði komið í ljós að starfsmenn flugvallarins höfðu skráð ranga flugvél og því rugluðust sætabókanir. Allar fjölskyldur um borð í flugvélinni höfðu tvístrast um hana og voru margir að keppast við að skipta um sæti og ná að sitja með fjölskyldumeðlimum sínum. Þegar allir voru klárir í brottför lýsti flugstjórinn því yfir að rýma þyrfti flugvélina og að helmingur farþega yrði eftir. Farþeginn sem ræddi við Vísi segir að þeim hafi tekist að finna sér hótel í Torrevieja í nótt. Á morgun muni þau fara í flug aftur til Íslands með stopp á tveimur stöðum á Spáni og í Frakklandi. Ekki hefur gengið eftir að fá upplýsingar um málið hjá Icelandair í morgun.
Icelandair Spánn Íslendingar erlendis Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira