Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Kristján Már Unnarsson skrifar 26. júlí 2026 07:08 Tilraunaeintakið X1 hefur að undanförnu verið í akstursprófunum á flugvellinum í Plattsburgh í norðanverðu New York-ríki. Núna hefur bandaríska flugmálastjórnin veitt leyfi til að hefja hana til flugs. Heart Aerospace Rafmagnsflugvélin sem líklegust þykir til að ryðja brautina í átt að sjálfbærum og arðbærum mengunarlausum flugsamgöngum hefur fengið samþykki bandarísku flugmálastjórnarinnar, FAA, til að fara í sitt fyrsta reynsluflug og hefja flugprófanir. Icelandair hefur með viljayfirlýsingu skráð sig fyrir kaupum á fimm eintökum þessarar tegundar.
Flugleyfið er veitt X1 en svo nefnist tilraunaútgáfa Heart Aerospace af ES 30-farþegaflugvél sinni. Þegar hún hefur sig til flugs verður hún að öllum líkindum langstærsta rafmagnsflugvél heims til þessa, með sæti fyrir allt að þrjátíu farþega. Icelandair er aðili að ráðgjafanefnd um þróun flugvélarinnar og verður hún núna að teljast líklegust til að leiða orkuskipti íslensks innanlandsflugs. ES-30 flugvélin sýnd í litum Icelandair.Heart Aerospace Fyrir Íslendinga sem ferðast mikið innanlands er sérlega spennandi við flugvélina sú staðhæfing framleiðandans að rekstrarkostnaður hennar verði meira en fjörutíu prósentum lægri en hefðbundinna flugvéla. Hagkvæmni hennar verði til að endurvekja flug til smærri staða sem í seinni tíð hafa þótt of litlir til að standa undir arðbæru flugi. Stutt flugbrautarþörf og lítill hávaði geri henni kleift að sinna nýjum flugleiðum út frá minni flugvöllum. Vísir sagði í byrjun júnímánaðar frá akstursprófunum flugvélarinnar en þá birti Heart Aerospace þetta myndband: Í fréttatilkynningu Heart Aerospace fyrir helgi segir að ákvörðun bandarísku flugmálastjórnarinnar, um að veita X1-tilraunaflugvélinni lofthæfisvottorð, heimili fyrirtækinu að hefja flugprófanir þegar í stað. Engin tímasetning er þó gefin upp um hvenær stefnt er á fyrsta flugið en haft eftir Anders Forslund, stofnanda og forstjóra, að fyrirtækið sé núna tilbúið að koma X1-vélinni í loftið. Frumgerðin var fyrst sýnd í Gautaborg haustið 2024. Í frétt Stöðvar 2 hér að neðan frá þeim degi má einnig sjá tölvugert myndskeið af henni á flugi í litum Icelandair: ES 30 verður ekki hrein rafmagnsflugvél heldur hybrid. Framleiðandinn segir hana geta þjónað 200 kílómetra löngum flugleggjum eingöngu á rafmagni en 800 kílómetra flugleggjum sem tvinn-vél og þá á vistvænu SAF-eldsneyti sem viðbót. Hleðslutími á flugvelli milli ferða er sagður verða þrjátíu mínútur. Flugvélin færi létt með að sinna flugleiðinni Reykjavík-Vestmannaeyjar eingöngu á rafmagni en bein loftlína þar á milli er um 112 kílómetrar. Bein lína milli Reykjavíkur og Akureyrar er um 250 kílómetrar sem þýðir að þar gæti hún flogið á rafmagni á um 80 prósentum leiðarinnar. Milli Reykjavíkur og Ísafjarðar eru um 222 kílómetrar í beinni línu sem gæti þýtt raforku á 90 prósentum flugsins. Hún er þróuð með það í huga að aðeins þurfi einn flugmann til að fljúga henni. Mikil sjálfvirkni er sögð gera óþarft að hafa tvo flugmenn. Heart Aerospace áætlar núna að hún verði komin í almennt farþegaflug flugfélaga árið 2031, sem er talsverð seinkun miðað við fyrri áform. Frá flugvellinum í Plattsburgh í New York-ríki þar sem tilraunir með flugvélina fara fram.Heart Aerospace Heart Aerospace byrjaði sem sænskt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Gautaborg og norræna bakhjarla. Ákvörðun þess í fyrra um að flytja höfuðstöðvar sínar til Kaliforníu þótti áfall fyrir Svíþjóð og evrópska tæknigeirann. Skýringar fyrirtækisins voru túlkaðar svo að Bandaríkin byðu upp á betra umhverfi til nýsköpunar og tækniþróunar en Evrópa. Markaðsgreinandi lýsti þessu sem dæmi um hvernig reglugerðafargan Evrópu væri að hrekja nýsköpun í burtu.
Flug Nýsköpun Tækni Orkuskipti Loftslagsmál Bandaríkin Svíþjóð Icelandair Tengdar fréttir Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45 Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. 1. apríl 2026 22:11 Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45
Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. 1. apríl 2026 22:11
Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30