Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. júlí 2026 19:45 Hjónin Mayte Santa Cecilia og Ragnar Bragason eru búsett í bænum San Martín San Martín de Valdeiglesias. Samsett Íslensk-spænsk hjón sem eru búsett á Spáni þurftu að flýja heimili sitt í San Martín de Valdeiglesias í fyrradag vegna gróðurelda. Ragnar Bragason hefur verið búsettur á Spáni, ásamt eiginkonu sinni Mayte Santa Ceciliu, í um fjörutíu ár og segist ýmsu vanur. Gróðureldar séu hluti af daglegu lífi Spánverja á sumrin en þau hafi þó aldrei upplifað eins stóran eld á svæðinu.
Spánn lýsti yfir neyðarástandi vegna gróðurelda þar í landi á fimmtudagskvöld. Isabel Díaz Ayuso, forseti Madríd-héraðs, lýsti ástandinu sem „versta eldi í sögu héraðsins“ og sagði að 130 þúsund hektarar lands hafi brunnið það sem af er ári í gróðureldum á Spáni. Á svæðinu umhverfis Madríd hafa tuttugu þúsund manns þurfta að flýja heimili sín, þar á meðal íslensk hjón. Sjá einnig: Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Á fimmtudaginn, rétt eftir hádegi, þurftu Ragnar og Mayte að yfirgefa heimili sitt, en þau eru búsett um áttatíu kílómetrum frá Madrídarborg, í bænum San Martín de Valdeiglesias. „Þetta er rútína hérna á sumrin, það búast allir við þessu. En þeir [eldarnir] voru öflugir í fyrra og í ár,“ segir Ragnar í samtali við Vísi. Spánverjar séu ýmsu vanir enda séu gróðureldar tíðir á sumrin þar í landi. Hann segir þó að eldarnir virðist stærri á ári hverju og ekki sé algengt að þurfi að rýma heilu bæina eins og hafi verið gert nú. „Það er ekki algengt að heilu bæirnir séu látnir flýja allir í einu, þetta er oft hluti bæja sem þarf að rýma.“ Slökkvistarf hafi gengið brösuglega vegna kröftugra vinda sem setji stórt strik í reikninginn.Aðsend/ Ragnar Bragason Í bænum hafi kviknað í rafmagnsbíl fyrir utan slökkviliðsstöðina og í kjölfarið hafi kviknað í slökkviliðsbílum, sem Ragnar segir heldur þversagnakennt. Íbúar San Martín de Valdeiglesias hafi fengið tilkynningu frá yfirvöldum um að rýma þyrfti bæinn í flýti. „Svo birtast löggurnar og slökkviliðið og byrja að öskra og hrópa og segja íbúum að yfirgefa heimili sín.“ „Maður heldur alltaf að þetta komi ekki til sín. Maður keyrir um í næsta þorpi og sér eld en spáir ekkert í því, maður er svo vanur þessu,“ segir Ragnar. Flestir hafi yfirgefið í miklu flýti, sjálf hafi þau ekkert dót tekið með sér en „það fer eftir því hvað fólk er stressað og svona hvað það tók með sér. Flestir komast nú aftur heim til sín.“ Þau hafi flúið í íbúð í Madríd en segist reikna með því að geta snúið aftur til San Martín de Valdeiglesias á næstu dögum. Vonast til þess að fólk sé að ýkja um ástandið á bænum „Við reiknum með að fara til baka eftir nokkra daga en eins og er getum við ekki farið neitt, allir vegir eru lokaðir og erfitt að komast á milli staða.“ Hann segir allt koma í ljós á næstu dögum og vonast til að snúa bráðlega heim. En allt í kringum bæinn sé brunnið. „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið. Ég vonast til þess að fólk sé að ýkja aðeins en Guð má vita.“ Isabel Díaz Ayuso, forseti Madríd-héraðs, lýsti ástandinu sem „versta eldi í sögu héraðsins.“Aðsend/ Ragnar Bragason Um sé að ræða nokkra elda sem sameinist í einn eld sem sé nú á hraðleið til Madrídarborgar. Upptök hans hafi verið í suðvestur Madrídarhéraði um áttatíu til hundrað kílómetrum frá borginni. „Það er allt vitlaust, það er ósköp einfalt,“ svarar Ragnar aðspurður hvort að ólga sé meðal bæjarbúa. Í fjöllunum hafi safnast saman „skraufþurr viður“ en fólk sé reitt stjórnvöldum vegna þess að hann hafi ekki verið fjarlægður. „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu,“ segir Ragnar enda hafi verið mjög þurrt og hlýtt á svæðinu undanfarnar vikur. Slökkvistarf hafi gengið brösuglega vegna kröftugra vinda sem setji stórt strik í reikninginn. „Það hefur verið mjög erfitt síðustu daga og kvöld, það er alltof mikill vindur.“
Spánn Gróðureldar Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ 25. júlí 2026 14:04 Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Eftir hitabylgjur sumarsins glíma Evrópuþjóðir nú margar hverjar við mikla gróður- og skógarelda. 24. júlí 2026 08:53 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira
Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ 25. júlí 2026 14:04
Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Eftir hitabylgjur sumarsins glíma Evrópuþjóðir nú margar hverjar við mikla gróður- og skógarelda. 24. júlí 2026 08:53