Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. júlí 2026 20:45 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði. Ívar Fannar Mikil fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins stafar líklega af fylgistreymi frá Miðflokknum að sögn stjórmálafræðings. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar hafi haldist heldur stöðugt en miklar hreyfingar séu á fylgi innan stjórnarandstöðunnar.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist í fyrsta sinn frá kosningum með meira fylgi en Samfylkingin i nýrri könnun Maskínu. Mjótt er á munum en Sjálfstæðiflokkurinn mælist með slétt 25 prósenta fylgi en Samfylkingin 24,4 prósent. Miðflokkurinn mælist með þriðja mesta fylgið eða 13,4 prósent og Viðreisn er skammt á eftir með 12, 7 prósent. Sameiginlegt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er 43 prósent, eða sjö prósentustigum lægra en í síðustu kosningum. Fjallað var um nýja könnun og fylgi flokkanna í kvöldfréttum Sýnar. „Mjög athyglisverðar niðurstöður“ Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, segir Samfylkinguna hafa mælst stærri en Sjálfstæðisflokkurinn frá því á síðasta kjörtímabili og nýjar tölur því vera mikil tíðindi. „Sumir gamlir menn fá svona nostalgíu þegar Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn stærstur, þó að munurinn sé eiginlega enginn,“ segir Ólafur. Bæði fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sé töluvert yfir kjörfylgi sínu í alþingiskosningum árið 2024. Fylgi Miðflokksins, sem hafi verið á mikilli siglingu í ársbyrjun, sé orðið nær því helmingi minna en Sjálfstæðisflokksins en Viðreisn haldi sjó, „þannig þetta eru mjög athyglisverðar niðurstöður.“ Miðflokkurinn tapar tæpum tíu prósentum en Sjálfstæðisflokkur bætir við sig ellefu Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið fremur illa út á seinni hluta síðasta árs en samtímis hafi Miðflokkurinn tekið mikla sveiflu. Miðflokkurinn var í ársbyrjun með 22 prósenta fylgi en hafi tapað um tíu prósentum það sem af er ári og mælist nú, eins og fyrr sagði, með rúm 13 prósent. Á þessu ári hafi fylgið „algörlega snúist við“ en það endurspeglist í gríðarlegri fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins sem var með tæp 14 prósenta fylgi í janúar síðastliðnum en mælist nú með 25 prósent. Samkvæmt fyrri könnunum og kosningarannsóknum þykir Ólafi líklegt að þessi mikla breyting á fylgi Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins orsakist af miklu fylgistreymi milli flokkanna tveggja. „Þessi speglun á fylginu er mjög líklega vegna þess að kjósendur eru að færa sig á milli þessara tveggja flokka.“ Stjórnarflokkarnir þrír, Samfylking, Viðreisn og Flokkur fólksins, mælast með samanlagt 43 prósenta fylgi en stjórnarandstöðuflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn, með 45 prósent. Ólafur segir þetta í annað skiptið á árinu þar sem stjórnarandstaðan á þingi mælist með meira fylgi en stjórnarflokkarnir. Miklar breytingar hafi orðið á fylgi flokka innan stjórnarandstöðunnar en samanlagt fylgi stjórnar annars vegar og stjórnarandstöðunnar á þingi hins vegar haldist heldur stöðugt. „Þarna hefur í rauninni verið mikill stöðugleiki allt árið. Bæði stjórnin og stjórnarandstaðan á þinginu hafa verið að mælast á bilinu 42 til 45 prósent.“ Flokkarnir utan þings með samanlögð tólf prósent Flokkarnir þrír, Vinstri græn, Sósíalistaflokkurinn og Píratar, sem ekki náðu inn á þing í síðustu alþingiskosningum haldast enn utan þess samkvæmt nýju könnunninni. Ólafur segir það sýna fram á ótrygga stöðu flokkanna enda fengi enginn þeirra mann inn ef tölunum væri tekið bókstaflega. Samanlagt séu þeir með tólf prósenta fylgi sem myndi skila þeim samanlagt átta mönnum inn á þing. Ólafur segir því í þessu samhengi „þröskuldinn“ skipta gríðarlegu máli og tölurnar séu enn ein vísbending eða hvatning fyrir flokkana þrjá sem mælast utan þings að láta reyna á einhvers konar samvinnu, „þar sem kjósendur þeirra hafa svipuð viðhorf.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framsóknarflokkurinn Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Samfylkingin Píratar Alþingi Skoðanakannanir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira