Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Freyja Þórisdóttir skrifar 7. júlí 2026 17:17 Alma Möller er heilbrigðisráðherra landsins. Vísir/Anton Brink Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna. Með henni er í fyrsta sinn mörkuð heildstæð umgjörð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu á landsvísu. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2027 en meðal breytinga sem gerðar voru eru aukin áhersla á geðheilbrigði, endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna og aukin fræðsla um kynheilbrigði.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en þar segir einnig að drög að reglugerðinni hafi fyrst verið birt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar þessa árs. Þá hafi borist tuttugu og fimm umsagnir frá heilbrigðisstofnunum, fagfélögum, hagsmunasamtökum, embætti landlæknis, mennta- og barnamálaráðuneytinu og öðrum hagaðilum. Bæta heilsu og líðan barna til framtíðar Þar að auki hafi heilbrigðisráðuneytið efnt til vinnustofu með hagaðilum heilbrigðis- og menntakerfisins, þar sem markmiðið var að ná sameiginlegum skilningi á stöðunni í dag, kortleggja helstu áskoranir og móta og forgangsraða aðgerðum til umbóta. Í kjölfar samráðs hafi verið gerðar ýmsar breytingar á drögunum. „Ný reglugerð um skólaheilsugæslu markar tímamót og varðar veginn fyrir eflingu og þróun skólaheilsugæslu um land allt. Í skólaheilsugæslu felast mikil tækifæri til að fylgjast betur með heilsu og líðan barna, sinna forvörnum og geðrækt,“ er haft eftir Ölmu D. Möller. Þá kemur hún einnig inn á það að „með reglubundnum heilbrigðisskoðunum, markvissri heilbrigðisfræðslu, ráðgjöf og heilsueflingu sé lögð áhersla á snemmtæka íhlutun og samfellda þjónustu við börn.“ Málefni barna séu áherslumál ríkisstjórnarinnar og það sé von hennar að efling skólaheilsugæslu muni bæta heilsu og líðan íslenskra skólabarna til framtíðar. Meðal þeirra breytinga sem gerðar voru á reglugerðinni í samráðsferlinu voru: Aukin áhersla á geðheilbrigði, geðheilbrigðisforvarnir, snemmtækan stuðning og viðeigandi viðbrögð innan skólaheilsugæslu, Skýrari ákvæði um samstarf við aðra fagaðila og samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, Endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna með áherslu á eftirfylgd barna sem ekki eru í reglubundnu tanneftirliti og munnskoðun barna sem ekki hafa aðgang að heimilistannlækni, Aukin fræðsla í samvinnu við sóttvarnalækni um kynheilbrigði, sóttvarnir og skynsamlega notkun sýklalyfja. Markmið reglugerðarinnar er sagt vera að efla heilbrigði barna og stuðla að vellíðan þeirra. Skólaheilsugæsla skal tryggja að börn og fjölskyldur þeirra hafi aðgang að gagnreyndri heilbrigðisþjónustu í formi reglubundinna heilsufarsskoðana, heilbrigðisfræðslu, forvarna, ráðgjafar og heilsueflingar. Þjónustan skal taka mið af þörfum barna, fjölskyldna þeirra, skóla og samfélags á hverjum tíma. Þá segir í þriðju grein að heilbrigðisstofnanir í hverju heilbrigðisumdæmi beri ábyrgð á skipulagi skólaheilsugæslu innan viðkomandi heilbrigðisumdæmis. Embætti landlæknis hafi það hlutverk að þróa, leiða og samræma verklag með útgáfu leiðbeininga til heilbrigðisstofnana. Skólaheilsugæslu skal sinnt af hjúkrunarfræðingum í þverfaglegu samstarfi við aðra heilbrigðisstarfsmenn heilsugæslu og aðra fagaðila sem koma að málefnum barna. Mönnun skólaheilsugæslu skal taka mið af umfangi þjónustunnar og þörfum þeirra barna sem njóta hennar. Á að meta heilsu barnanna að lágmarki fjórum sinnum Sjötta grein reglugerðarinnar snýr að hlutverkum skólaheilsugæslu grunnskólabarna en þar stendur að þjónustan skuli að jafnaði veitt í skólum og eru þau útlistuð að neðan. Listinn er ekki tæmandi: Efla þekkingu og færni barna til að lifa heilbrigðu lífi með skipulagðri heilbrigðisfræðslu. Skima fyrir heilsuvanda og áhættuþáttum og vísa börnum til viðeigandi úrræða komi fram frávik við skimun. Efla geðheilbrigði barna með áherslu á geðheilbrigðisforvarnir, snemmtækan stuðning og viðeigandi viðbrögð. Draga úr útbreiðslu smitsjúkdóma með bólusetningum samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Veita fræðslu um kynheilbrigði og forvarnir gegn kynsjúkdómum. Veita fræðslu um sóttvarnir, skynsama notkun sýklalyfja og sýklalyfjaónæmi. Stuðla að því að langveik og fötluð börn njóti viðeigandi aðstæðna og umönnunar í skóla í samstarfi við foreldra og forsjáraðila þeirra og starfsfólk skóla. Veita starfsfólki skóla fræðslu og leiðsögn um heilsufarsþarfir barna eftir því sem við á þar með talið um alvarlega sjúkdóma eða önnur heilsufarsfrávik sem geta krafist sérstakra viðbragða eða stuðnings í skólastarfi. Stuðla að samstarfi fagaðila sem koma að málefnum barna. Heilsufarsskoðanir skulu fara fram að lágmarki fjórum sinnum á grunnskólagöngu barna eða í 1., 4., 7. og 9. bekk. Heilbrigðisstarfsmenn í heilsugæslu skulu fylgja eftir málum barna sem ekki mæta í reglulegar heilsufarsskoðanir og meta þörf þeirra fyrir stuðning og þjónustu eftir því sem við á. Með heilsufarsskoðunum er átt við að starfsmaður meti, með viðtölum, skimunum og öðrum viðeigandi faglega viðurkenndum aðferðum eftir því sem við á, heilsu, vöxt, þroska, geðheilbrigði og vellíðan barna með hliðsjón af aldri þeirra og einstaklingsbundnum þörfum sem og aðstæður og áhættuþætti sem geta haft áhrif á heilsu þeirra og velferð. Við framkvæmd heilsufarsskoðana skal tekið tillit til sjónarmiða og óska barna í samræmi við aldur þeirra og þroska. Fylgjast með hvort börn fari til tannlæknis Kaflar reglugerðarinnar eru alls þrír en í þeim síðasta kemur fram að ef upp koma frávik við heilsufarsskoðun skuli barni vísað án ástæðulauss dráttar til viðeigandi fagaðila eða sérfræðings til nánara mats á þörf þess fyrir sértæk úrræði, stuðning eða þjónustu. Tryggja skal samstarf við viðeigandi fagaðila, svo sem skólaþjónustu, félagsþjónustu, barnavernd eða aðra sérfræðiþjónustu, eftir því sem við á, vegna mats á þörfum barns, stuðnings við það og eftirfylgdar. Líkt og fyrr segir var svo ákveðið að endurskoða ákvæði um tannheilsu barna og skal skólaheilsugæsla tryggja vöktun með skráningu barna hjá heimilistannlæknum auk eftirfylgni með þeim börnum sem ekki hafa skráðan heimilistannlækni eða hafa ekki mætt í tanneftirlit hjá skráðum heimilistannlækni í 24 mánuði. Skoða skal munnhol þeirra barna sem ekki hafa skráðan heimilistannlækni í reglubundnum heilsufarsskoðunum í 1., 4., 7. og 9. bekk.
Tímamót Heilsa Heilsugæsla Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira