Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Birgir Olgeirsson skrifar 27. júní 2026 07:33 Reykjavíkurborg segir ljósastýringu ekki fullnýtta þótt flest umferðarljós séu tengd miðlægu kerfi og stýrð með skynjurum. Friðjón segir að þetta eigi að bæta. Vísir/Einar og Anton Brink Ljósastýring á höfuðborgarsvæðinu er ekki fullnýtt þrátt fyrir að flest umferðarljós séu tengd miðlægu kerfi. Nýr meirihluti vill flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa á fyrsta ári sínu.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 215 umferðarljós. Flest eru tengd miðlægri stýritölvu og stýrð með skynjurum sem greina umferð og kalla eftir grænu ljósi. Þannig á græni tíminn að nýtast betur, ljós á sömu leið að vinna saman og hægt að veita Strætó og neyðarbílum forgang. Ljósastýringin var tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Þar kom fram að kerfið væri tæknilega komið nokkuð langt, en möguleikar þess ekki fullnýttir. Gamall búnaður hægi á endurbótum. Í kynningu borgarinnar kemur fram að 80 prósent ljósanna séu tengd stýritölvu, 85 prósent umferðarstýrð og um 2.100 skynjarar tengdir kerfinu. Vilja gera þetta á fyrsta árinu Friðjón Friðjónsson, varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir nýjan meirihluta ætla að setja málið í forgang. „Við vorum auðvitað með það á verkefnalistanum hjá okkur að við ætlum að flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg og gera það á fyrsta árinu,“ segir Friðjón. Friðjón Friðjónsson, varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir nýjan meirihluta vilja flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg á fyrsta ári sínu.Vilhelm Hann segir verkefnið ekki aðeins snúast um nýja tækni heldur líka fjármagn og fólk. „Við trúum því að þetta sé verkefni sem er hægt að ná á frekar skömmum tíma en til þess þurfum við auðvitað að forgangsraða peningum og starfsafli,“ segir hann. Í minnisblaði sem kynnt var fyrir umhverfis- og skipulagsráði í vikunni kemur fram að 47 stjórnkassar í Reykjavík séu komnir yfir áætlaðan líftíma. Ekki er lengur hægt að panta varahluti í 92 stjórnkassa sem eru enn í rekstri og 58 þeirra eru ekki lengur sendanlegir í viðgerð. Ef slíkur búnaður bilar alvarlega getur tekið þrjá til fjóra mánuði að fá nýjan stjórnkassa, auk nokkurra vikna í forritun og uppsetningu. Höfðabakki dæmi um stöðuna Höfðabakki er eitt skýrasta dæmið um endurnýjunarþörfina. Þar hafa framkvæmdir við umferðarljós og gönguleiðir staðið frá því í júní í fyrra. Endurnýjuð eru umferðarljós á fimm gatnamótum; við Stórhöfða, Dvergshöfða, Bíldshöfða, Vesturlandsveg og Bæjarháls. Samhliða er verið að bæta gönguleiðir, breikka miðeyjar og laga lýsingu. Í kynningu borgarinnar kemur fram að búnaðurinn á Höfðabakka hafi verið þrjátíu ára gamall. Framkvæmdirnar hafa valdið töfum, sérstaklega við Höfðabakka og Bæjarháls, þar sem íbúar hafa kvartað undan löngum röðum á annatímum. Borgin segir breytingarnar hluta af stærri endurbótum sem eigi að bæta öryggi gangandi og hjólandi og gera ljósastýringuna sveigjanlegri. Friðjón segir að árangurinn eigi að koma í ljós á næstu vikum. „Það var verið að tengja núna á Höfðabakkanum í þessari viku síðustu ljósin þannig að við eigum að ná betra flæði og betri stýringu þar til dæmis núna á næstu vikum. Svo sjáum við bara til hvernig það reynist og ef það er ekki ásættanlegt fyrir okkur, þá förum við í frekari aðgerðir,“ segir Friðjón. Að framkvæmdum loknum á að vera hægt að virkja rauntímastýringu á öllum ljósum á Höfðabakka milli Stórhöfða og Bæjarháls. Þar eiga radarskynjarar að lesa umferðarflæði og láta ljósin laga sig að stöðunni hverju sinni. Reykjavík glími við meiri vanda en sambærilegar borgir Friðjón segir markmiðið vera að bæta flæði fyrir alla vegfarendur, ekki aðeins bílaumferð. „Það sem við erum að reyna að gera er að bæta flæði umferðar, hvernig svo sem það er, hvort sem það er gangandi, hjólandi eða akandi, þannig að fólk komist leiðar sinnar hraðar heldur en hingað til,“ segir hann. Hann segir gögn sýna að Reykjavík glími við meiri umferðarvanda en sambærilegar borgir á Norðurlöndum og stærri borgir víða í Evrópu. „Við viljum auðvitað bara komast undir það mark að 42 prósent af umferðinni er í vanda á hverjum degi,“ segir Friðjón.
Samgöngumál Reykjavík Umferð Borgarstjórn Tengdar fréttir Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Það er ekki nóg að keyra á sextíu kílómetra hraða á Sæbraut til að ná lenda aldrei á rauðu ljósi, eða ná hinni svokölluðu grænu bylgju. Það er ekki einu sinni endilega nóg að keyra á 58 kílómetra hraða, þótt ljósastýringin sé miðuð við þann hraða. Þetta kom í ljós þegar fréttastofa prófaði hina aldagömlu Sæbrautarkenningu. 12. júní 2026 19:26 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira
Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Það er ekki nóg að keyra á sextíu kílómetra hraða á Sæbraut til að ná lenda aldrei á rauðu ljósi, eða ná hinni svokölluðu grænu bylgju. Það er ekki einu sinni endilega nóg að keyra á 58 kílómetra hraða, þótt ljósastýringin sé miðuð við þann hraða. Þetta kom í ljós þegar fréttastofa prófaði hina aldagömlu Sæbrautarkenningu. 12. júní 2026 19:26