Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. júní 2026 21:01 Pétur Geir Magnússon segir listaverkið og húsið bindast órjúfanlegum böndum. Vísir/Bjarni Listaverk Gerðar Helgadóttur á iðnaðarhúsi við Sæbraut er til vitnis um tíma þegar menn höfðu metnað fyrir því að gefa eitthvað til baka til samfélagsins, að mati listamanns sem gagnrýnir hugmyndir um að rífa húsið.
Það stendur til að setja Sæbraut í stokk en til þess að koma umferðinni eitthvert annað og Dugguvogur 42, hann þarf mögulega að víkja, miðað við tillögur sem nú eru í skipulagsgátt. Og við það eru forsvarsmenn Gerðarsafns ekki sáttir enda er lágmynd listakonunnar Gerðar Helgadóttur í níu hlutum steypt í vesturvegg hússins, sem hefur staðið við Sæbraut síðan árið 1972. Pétur Geir Magnússon listamaður segir listaverkið til marks um metnað fyrri tíma en flutningafyrirtæki var til húsa í Dugguvogi þegar Gerður hannaði verkið. „Hún sótti fullt af bæklingum um varahluti í allskonar vörubíla og iðnaðartæki og myndaði þessa lágmynd úr því, þannig þetta er beintenging við starfsemi hússins og ef við tökum þetta í stærra samhengi iðnaðarhverfið í heild sinni.Þegar ljósið skín á þetta þá er þetta á stöðugri hreyfingu og þetta gleður, sérstaklega gleður vegfarendur eða gangandi.“ Nú gætu einhverjir heima spurt sig: Bíddu nú við, þetta er alveg við Sæbrautina, á iðnaðarsvæði, ekki á besta stað, hvað finnst þér um þá gagnrýni? „Þetta er einmitt einhver hluti sem mér finnst vanta í tengingu fólks í dag, er að þessi ábyrgð fólks sem fékk lóðir á sínum tíma og þótt að þau væru að gera iðnaðarhús, samanber Græna gímaldið umdeilda, að þeim fannst þeir ábyrgir fyrir því að allavega gera þetta eitthvað fallegt og gefa eitthvað til baka til samfélagsins, þess vegna skreyttu þeir oft eins og til dæmis Sundahöllina hérna aðeins lengra, hún er eftir Sigurjón Ólafsson og Gerður Helgadóttir hérna og að þetta myndi gleðja samfélagið og vera einhverskonar tilbreyting í staðinn fyrir bara lárétt eða lóðrétt bárujárn. Fegurð utan á húsum er bara mikils virði.“
Myndlist Sæbrautarstokkur Reykjavík Skipulagsmál Styttur og útilistaverk Húsavernd Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira