Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Freyja Þórisdóttir skrifar 24. júní 2026 00:04 Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir segist vera í áfalli eftir að ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík var felld úr gildi. Vísir/Vilhelm Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að gefa Samhjálp leyfi til að endurinnrétta húsnæðið við Grensásveg 46 fyrir nýja kaffistofu Samhjálpar. Framkvæmdastýra Samhjálpar segir óljóst hvað niðurstaðan þýði fyrir gesti Samhjálpar en ljóst að hún hafi áhrif á fyrirhugaða opnun kaffistofunnar sem áætluð var seinna í þessum mánuði. Hún segir þó nokkuð ljóst að borgin þurfi að leggjast betur yfir málið.
Á Grensásveginum var búið að setja upp stóla og borð á sjöunda tímanum í kvöld, þriðjudaginn 23. júní, þegar fréttamann bar að garði en það var gert ráð fyrir að allt að hundrað gestir gætu verið á kaffistofunni á sama tíma. Þurfi að anda djúpt í kviðinn „Það sem ég veit er að þetta setur að sjálfsögðu það sem við ætluðum okkur í uppnám. Við vorum hér síðan í hádeginu í dag að þrífa,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samhjálpar, og bætir við að hún sé sjálf komin með lögfræðing til þess að skoða þetta fyrir sig. „Af því að ég er ekki lögfróð manneskja og af því að úrskurðurinn er að fella úr gildi afgreiðslu byggingarfulltrúa og svo er ekkert meir,“ segir hún og ítrekar að kaffistofan hafi verið fullbúin og áætluð opnun á næstu dögum ef allt færi að óskum. „Við erum búin að óska eftir öllum lokaúttektum, öryggisúttektum, starfsleyfi, heilbrigðiseftirliti. Það er allt komið upp: öryggiskerfi, allt sem þarf. Þannig að við þurfum bara að anda djúpt í kviðinn,“ segir hún sömuleiðis. Héldu áfram að undirbúa opnunina í góðri trú Í úrskurði nefndarinnar, sem er frá því í dag, er farið yfir málsrök bæði kærenda, sem eru íbúar við Grensásveg og í kring, og svo málsrök Reykjavíkurborgar og Samhjálpar. Í málinu var deilt um lögmæti ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík um að samþykkja umsókn um heimild til að innréttað verði móttökueldhús og matsalur fyrir allt að hundrað gesti í húsnæði við Grensásveg 46. Íbúar lýstu því í kæru sinni að þeir hefðu miklar áhyggjur af grenndaráhrifum og á börn í hverfinu. Þá töldu þau að þó svo að ekki hafi verið krafa um deiliskipulag á svæðinu hefði átt að framkvæma það auk þess sem þau töldu starfsemi kaffistofunnar rangt flokkaða. Nefndin fellst ekki á rök kærenda um að starfsemin hafi verið rangt flokkuð. Hefði ekki verið eðlilegra að bíða niðurstöðu þeirra áður en var svona haldið áfram með framkvæmdir? „Hluti af því sem úrskurðarnefndin úrskurðaði um fyrr var að það þyrfti ekki að stöðva framkvæmdir og á meðan að við fáum ekki stöðvun, við erum með fullgilt byggingarleyfi, við biðum jú eftir því og við stoppuðum þar til við fengum það, í góðri trú héldum áfram og gátum í rauninni ekki annað,“ segir Guðrún og bætir við að þau vilji ekki né geti þau skilið við húsnæðið hálfkarað.Það sé hins vegar orðið mjög fallegt í dag. „ Já, þannig að ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti.“ Hún segir fjárhagslegt tjón fyrir samfélagið hlaupa á tugum milljóna enda séu þau bæði búin að borga fulla leigu í níu mánuði án þess að geta nýtt húsnæðið að nokkru leyti og svo hafi framkvæmdir kostað tugi milljóna. „Hins vegar er bjarta vonin í þessari viku að ég á fund með borgarstjóra og oddvitum meirihluta Reykjavíkurborgar á fimmtudaginn og ég fer full af bjartsýni og von inn á þann fund um að við finnum þá einhverja góða lendingu.“
Kaffistofa Samhjálpar Reykjavík Borgarstjórn Skipulagsmál Fíkn Börn og uppeldi Málefni heimilislausra Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira