Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Lovísa Arnardóttir skrifar 18. júní 2026 11:09 Jón Magnús Kristjánsson var áður yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans. Vísir/Arnar Jón Magnús Kristjánsson, læknir, hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um mánaðamótin ágúst september og snýr aftur til starfa við bráðþjónustu á Landspítalanum. „
Alma hefur samþykkt beiðni mína um að láta af störfum sem aðstoðarmaður hennar um mánaðarmótin júlí/ágúst. Ákvörðunin er tekin í fullri og góðri sátt og ég kveð ráðuneytið með miklu þakklæti,“ segir Jón Magnús í tilkynningu á Facebook-síðu sinni. Tilkynnt var um ráðningu hans í janúar í fyrra eftir að Alma tók við sem heilbrigðisráðherra. Jón Magnús er sérfræðingur í bráðalækningum og fyrrum yfirlæknir bráðamóttöku Landspítala. Hann segir það hafa verið forréttindi að vinna í ráðuneytinu og hann hafi, ásamt öðru starfsfólki, unnið að mörgum mikilvægum verkefnum til að bæta heilbrigðiskerfið. „Þar má nefna fjölgun hjúkrunarrýma, bætta þjónustu við aldraða, langtímasamninga við endurhæfingar- og meðferðarstofnanir, stofnun Stafrænnar heilsu og styrkingu sérnáms lækna – auk fjölda annarra mála sem munu nýtast til framtíðar.“ Áskoranir á spítalanum togi æ fastar Hann hafi þó í starfi sínu í ráðuneytinu fundið að áskoranir á Landspítalanum, og þá sérstaklega innan bráðaþjónustu, togi æ fastar í hann. „Mig langar því að snúa aftur til starfa á þeim vettvangi og leggja mitt af mörkum þar. Ég fer héðan miklu reynslunni ríkari og er gríðarlega þakklátur fyrir traustið og þann góða vinskap sem ég hef fundið hér. Eftir starfslokin tekur við stutt hvíld áður en ný verkefni kalla í haust,“ segir hann að lokum.
Vistaskipti Landspítalinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira