Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Agnar Már Másson skrifar 16. júní 2026 14:58 „Ef ríkið er að koma með þetta úrræði til okkar þá munum við gera skýra kröfu um að önnur úrræði sem ríkið er með hér í þessum málaflokki fari þá samhliða,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir/Vilhelm Starfsmenn í dómsmálaráðuneytinu leita að húsnæði á Suðurnesjum undir nýja brottfararstöð, þar sem flóttamenn sem vísa á úr landi verða vistaðir nauðugir. Nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar því að ríkið hyggist hafa stöðina fjarri íbúabyggð en hann vill helst hafa hana innan flugvallarsvæðisins í Keflavík.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð var fest í lög á Alþingi í síðustu viku en það skal vera rekið af lögreglunni á Suðurnesjum þegar lögin taka gildi 1. desember. Að svo stöddu er ekkert vitað hvar brottfararstöðin skal vera annað en að hún eigi að vera einhvers staðar á Suðurnesjum. „Það er bara verið að leita að hentugu húsnæði,“ segir Freyr Gígja Gunnarsson, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins, í samtali við Vísi. Dómsmálaráðuneytið leitar að húsnæði fyrir brottfararstöðina.Stjórnarráð Freyr nefnir að leitin varði bæði húsnæði undir brottfararstöðina sjálfa og einnig undir sérhúsnæði fyrir vistmenn með börn. „Stefnt verður að því að klára þetta áður en lögin taka gildi,“ bætir upplýsingafulltrúinn við. Verði fjarri íbúabyggð Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að í þeirri auglýsingu sem hann hafi fengið að sjá en hafi ekki verið birt opinberlega komi fram að húsnæðið sem auglýst er eftir eigi að vera fjarri íbúabyggð. „Við vorum ánægð með að inni í þeirri auglýsingu var talað um að þetta væri lokað úrræði og fjarri íbúabyggð,“ segir Vilhjálmur, sem var áður þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „En við höfum sagt það alveg skýrt að fyrsti valkosturinn okkar er að þetta væri innan athafnasvæðis Isavia, það er að segja innan flugvallargirðingarinnar.“ Áætlað er að 188 flóttamenn hefðu verið vistaðir í brottfararstöð í fyrra, hefði hún verið til staðar.Isavia Hann telur lítið því til fyrirstöðu; flugvallargirðingin sé mjög stór og mikið af húsnæði innan haftasvæðisins. „Þannig að það er mikil starfsemi innan haftasvæðisins. Ef þetta er lokað úrræði þá hlýtur það að geta verið innan girðingar.“ Vilhjálmur segir að brottfararstöðin sé mikilvægt úrræði, en ef að stjórnvöld ætli að koma henni fyrir í bæjarfélaginu vilji sveitarstjórnin að eldri úrræði verði fjarlægð. „Ef ríkið er að koma með þetta úrræði til okkar þá munum við gera skýra kröfu um að önnur úrræði sem ríkið er með hér í þessum málaflokki fari þá samhliða,“ segir hann og vísar þar til opinna úrræða í Ásbrú og Innri-Njarðvík sem Vinnumálastofnun hefur rekið síðustu ár. Hverju breytir það? Vísir hefur beint fyrirspurn til Isavia vegna málsins og væntir svara. Óvíst er hverju það myndi breyta ef brottfararstöðin yrði innan haftasvæðisins. Meðal þess sem kveðið er á um í nýju lögunum er að fangar í brottfararstöðinni hafi aðgang að fjölmiðlum en aðgangur fjölmiðla að haftasvæðinu er í dag takmarkaður. Til þess að heimsækja flugvallarsvæðið þarf tilskilin leyfi, ýmist frá Isavia eða viðhlítandi gestgjafanum. Einnig eiga flóttamenn í brottfararstöðinni rétt á útiveru og að fá að iðka tómstundastörf. Fjöldi mannúðarsamtaka hafði gagnrýnt frumvarp dómsmálaráðherrans um brottfararstöð, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar skorður í lokaútgáfu laganna. Börn vistmanna skulu samkvæmt lögunum eiga kost á að taka þátt í leikjum og afþreyingu sem hæfir aldri þeirra. Áætlað er að 188 einstaklingar hefðu verið vistaðir í fyrirhugaðri brottfararstöð árið 2025 ef úrræðið hefði verið til staðar, samkvæmt mati heimferðar- og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra frá því í vor sem byggir á tölum yfir fólk sem fylgt var úr landi árið 2025 og hefði mögulega uppfyllt skilyrði laganna.
Isavia Brottfararstöð fyrir útlendinga Keflavíkurflugvöllur Reykjanesbær Hælisleitendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir það mikil mistök verði frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á landamærum að lögum. Engar breytingar hafi orðið á stöðu barna við meðferð málsins í nefnd. Tvö ár eru síðan formaður Viðreisnar sagði að flokkurinn myndi aldrei setja börn í lokuð búsetuúrræði. 6. júní 2026 12:28 Ekki í okkar nafni Núna í vikunni samþykkti Alþingi lög um brottvísunarbúðir og greiddu allir þingmenn Samfylkingarinnar atkvæði með frumvarpinu. 11. júní 2026 07:30 Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ segir skýra kröfu frá samfélaginu að málefni hælisleitenda í sveitarfélaginu séu tekin föstum tökum. Fjölgunin hælisleitenda sé engin en klára þurfi verkefnið og passa að vandamálið vaxi ekki á ný. Skoðað verði hvort sett verði á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu. 20. maí 2026 12:17 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira
Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir það mikil mistök verði frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á landamærum að lögum. Engar breytingar hafi orðið á stöðu barna við meðferð málsins í nefnd. Tvö ár eru síðan formaður Viðreisnar sagði að flokkurinn myndi aldrei setja börn í lokuð búsetuúrræði. 6. júní 2026 12:28
Ekki í okkar nafni Núna í vikunni samþykkti Alþingi lög um brottvísunarbúðir og greiddu allir þingmenn Samfylkingarinnar atkvæði með frumvarpinu. 11. júní 2026 07:30
Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ segir skýra kröfu frá samfélaginu að málefni hælisleitenda í sveitarfélaginu séu tekin föstum tökum. Fjölgunin hælisleitenda sé engin en klára þurfi verkefnið og passa að vandamálið vaxi ekki á ný. Skoðað verði hvort sett verði á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu. 20. maí 2026 12:17