Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Birgir Olgeirsson skrifar 12. júní 2026 19:26 Sæbraut var hönnuð með græna bylgju í huga. Það er að segja að ef þú ekur á ákveðnum hraða áttu aldrei að lenda á rauðu ljósi. En hún er ekki miðuð við 60 kílómetra hraða. Hún er miðuð við 58. Það er ekki nóg að keyra á sextíu kílómetra hraða á Sæbraut til að ná lenda aldrei á rauðu ljósi, eða ná hinni svokölluðu grænu bylgju. Það er ekki einu sinni endilega nóg að keyra á 58 kílómetra hraða, þótt ljósastýringin sé miðuð við þann hraða. Þetta kom í ljós þegar fréttastofa prófaði hina aldagömlu Sæbrautarkenningu.
Margir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu kannast við fullyrðinguna: Ef maður keyrir Sæbrautina á löglegum hámarkshraða, 60 kílómetra hraða á klukkustund, eigi maður að ná grænu ljósunum alla leið. TikTok-notandinn Axel Birgisson, sem kallar sig Big Sexy á samfélagsmiðlum, hefur þó dregið þá kenningu í efa. Í myndbandi sem vakið hefur athygli lýsir hann pirringi sínum yfir því að ökumenn sem aka eftir Sæbraut á löglegum hraða virðist lenda á hverju rauða ljósinu á fætur öðru. @axelbirgis Plís tagga @Reykjavíkurborg eða einhvern sambærilegan til að laga þetta🥲 #umferðin #sæbraut #plís ♬ original sound - BigSexy Hann spyr þar hvers vegna ekki sé hægt að stilla ljósin þannig að löghlýðnir ökumenn, sem haldi hámarkshraða, séu í raun verðlaunaðir með grænni bylgju. Í myndbandinu veltir hann jafnframt upp þeirri spurningu hvort þeir sem aki of hratt eigi stundum auðveldara með að ná grænu ljósunum. Fréttastofa leitaði svara hjá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg. Í svörunum kemur fram að Sæbraut hafi frá upphafi verið hönnuð með samstillingu umferðarljósa og svokallaða græna bylgju í huga. Hún sé þó ekki miðuð við 60 kílómetra hraða heldur 58 kílómetra hraða á klukkustund. Ástæðan er sú að við hönnun ljósastýringarinnar er tekið tillit til raunverulegs aksturs, viðbragðstíma ökumanna, hröðunar frá gatnamótum og smávægilegra tafa í umferð. Viðmiðunarhraðinn er því stilltur örlítið undir hámarkshraða til að kerfið virki betur í reynd. Það þýðir þó ekki að ökumenn geti treyst því að renna alla leið eftir Sæbraut án þess að stoppa. Í svörunum kemur fram að möguleikinn á samfelldri grænni bylgju takmarkist af legu Sæbrautar, fjarlægð milli gatnamóta og því að margar hliðargötur tengist brautinni. Þá hafi þverumferð, gangandi og hjólandi vegfarendur, öryggissjónarmið og umferðarþungi áhrif. Einnig sé ekki hægt að hafa fullkomna græna bylgju í báðar áttir samtímis. Almennt sé miðað við græna bylgju í átt að miðbænum á morgnana, frá miðbænum síðdegis og utan annatíma oft frekar frá miðbænum. Fréttastofa ákvað því að prófa málið. Fyrst var ekið eftir Sæbraut á 60 kílómetra hraða og síðan á 58 kílómetra hraða, frá Húsasmiðjunni í Skútuvogi í átt að Hörpu. Niðurstaðan var sú að hvorugt dugði. Í báðum tilvikum lentum við á rauðu ljósi. Það þýðir þó ekki að svör Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar séu röng, heldur frekar að græna bylgjan er ekki einföld galdraformúla. Til að hún gangi upp þarf ökumaður að vera á réttum stað á réttum tíma, umferðin þarf að vera skapleg, þverumferðin ekki of mikil, ljósin þurfa að vera í takt og svo þurfa örlögin líklega líka að vera með í för. Aldagamla spurningin fær því ekki alveg það svar sem margir vildu. Nær maður alltaf grænu ef maður keyrir á 60 eftir Sæbraut? Nei. Er leyndarmálið þá 58? Ekki endilega. Það er útgangspunkturinn. Restin er umferðin, ljósin og örlögin.
Umferð Samgöngumál Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira