Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna Jakob Bjarnar skrifar 5. júní 2026 13:35 Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segist aldrei nokkru sinni hafa fengið eins mikil viðbrögð á götum úti og þau sem urðu vegna ummæla hans um greiðslur til handa Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni. Vísir/Arnar Haukur Arnþórsson stjórnmálafræðingur segir almenning reiðan vegna sjálftöku á opinberu fé. Hann telur að Alþingi hljóti að verða að koma á réttlátari ramma um opinber störf.
Haukur komst í deigluna í gær þegar hann gagnrýndi greiðslur til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem hætti óvænt á Alþingi í fyrradag, og Vilhjálms Árnasonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ og þingmanns. Háttsettir embættismenn fljóti ofan á „Mikið er almenningi illa við sjálftöku æðstu ráðamanna á opinberu fé. Ég hef aldrei fengið önnur eins viðbrögð og ég fékk í gær vegna ummæla minna um greiðslur til Áslaugar Örnu og Vilhjálms Árnasonar. Bæði á netinu og úti á götu,“ skrifar Haukur forviða á Facebook-síðu sína. Haukur segir að þessar háu greiðslur sem þau Áslaug Arna og Vilhjálmur þiggja eigi ekki síður við um hærra setta embættismenn en stjórnmálamenn. „Reglurnar um stjórnmálamenn eru jafnvel á eftir því sem á við um embættismenn, enda hafa stjórnmálamennirnir ekkert stéttarfélag. Embættismenn reyna þó sjaldan að sitja tvær stöður og fá tvenn laun,“ segir Haukur og er þá líkast til að vísa til þess leiks sem Vilhjálmur hefur leikið, að vilja bæði vera þingmaður og bæjarstjóri á sama tíma. Hann segir þetta leiða hugann að því að stéttarfélög opinberra starfsmanna hafi barist ákveðið fyrir réttindum síns fólks. Fyrst með æviráðningunni, síðan með fimm ára ráðningarsamningunum (hvort tveggja þarf að borga upp ef eitthvað ber út af), með ráðningarfestunni (áminningarskyldunni sem hindrar brottvikningu) og síðan með „starfslokasamningunum“ að sögn Hauks. Réttmæt reiði almennings „Í þessu efni fara þeir á undan sem hærra eru settir og gamaldags uppsagnir eiga bara við þá sem eru á lægstu laununum. Þessar nýju hefðir sitra þó niður valdapíramíðann. Þannig er algengt að þeir sem losna þarf við – af einhverjum ástæðum, t.d. vegna eineltis – fari út með ríkulegu meðlagi, eins og verðlaunum fyrir að standa sig illa. Ráðningarfestan spilar þarna stórt hlutverk – ef ekki er hægt að reka menn þarf að kaupa þá til að hætta. Og opinbert fé er ódýrt.“ Haukur segir það segja sig sjálft að almenningur eigi ekki kost á að fá slíkar fúlgur fjár en um er að ræða milljónir og jafnvel tugi milljóna þegar verst láti, þegar breytingar verða á ráðningarstöðu hans. „Þess vegna er reiðin réttmæt. Stéttarfélög opinberra starfsmanna þurfa að hugsa sig um hvort þau hafi gengið of langt, samningsaðilar opinberra starfsmanna að láta ekki hafa sig út í ósiðlega samninga sem brjóta á réttlætiskennd almennings og Alþingi að skapa réttlátari ramma um opinber störf,“ segir Haukur.
Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Samfélagsmiðlar Kjaramál Alþingi Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Ríkisstjórnin þverbrjóti leikreglur vinnumarkaðarins Verkalýðsleiðtogar segja áform um afnám áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar opinberra starfsmanna og tímabundinnar lausnar þeirra fela í sér einhliða skerðingu á réttindum launafólks. Með þessu þverbrjóti ríkisstjórnin leikreglur vinnumarkaðarins. Verkalýðshreyfingin muni verjast skerðingum á réttindum launafólks af hörku. 12. september 2025 15:11 BSRB fordæmir áform ríkisstjórnar um að skerða réttindi starfsfólks Stjórn BSRB fordæmir áform ríkisstjórnarinnar um að skerða réttindi starfsfólks í almannaþjónustu með afnámi áminningarskyldu. Í ályktun stjórnar BSRB segir að ríkisstjórnin ætli sér að gera þetta án samráðs við heildarsamtök launafólks og án þess að meta áhrifin með nokkrum hætti. 18. september 2025 15:46 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira
Ríkisstjórnin þverbrjóti leikreglur vinnumarkaðarins Verkalýðsleiðtogar segja áform um afnám áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar opinberra starfsmanna og tímabundinnar lausnar þeirra fela í sér einhliða skerðingu á réttindum launafólks. Með þessu þverbrjóti ríkisstjórnin leikreglur vinnumarkaðarins. Verkalýðshreyfingin muni verjast skerðingum á réttindum launafólks af hörku. 12. september 2025 15:11
BSRB fordæmir áform ríkisstjórnar um að skerða réttindi starfsfólks Stjórn BSRB fordæmir áform ríkisstjórnarinnar um að skerða réttindi starfsfólks í almannaþjónustu með afnámi áminningarskyldu. Í ályktun stjórnar BSRB segir að ríkisstjórnin ætli sér að gera þetta án samráðs við heildarsamtök launafólks og án þess að meta áhrifin með nokkrum hætti. 18. september 2025 15:46