Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Kristján Már Unnarsson skrifar 28. maí 2026 22:40 Hvalur 8 kominn úr slippnum í kvöld. Dráttarbátar ýta honum að hlið Hvals 9 á Ægisgarði. Bjarni Einarsson Hvalveiðibátnum Hval 8 var núna undir kvöld rennt úr slippnum í Reykjavíkurhöfn eftir klössun en áður var búið að yfirfara Hval 9. Þetta þykja ótvíræð merki um að Hvalur hf. stefni á stórhvalaveiðar í sumar.
Í kvöldfréttum Sýnar var sýnt beint úr Reykjavíkurhöfn þar sem hvalbátarnir tveir lágu hlið við hlið, báðir nýkomnir úr klössun. Giska má á að hún kosti fleiri milljónir króna á hvort skip og kannski tíu til tuttugu milljónir króna fyrir þau bæði. Það þarf því vart að velkjast í vafa um það að stefnt er á hvalveiðar í sumar. Stærri hvalbáturinn, Hvalur 9, gekkst undir klössun í fyrri hluta maímánaðar og síðdegis var Hval 8 rennt niður úr dráttarbraut Orms og Víglundar. Tveir dráttarbátar Faxaflóahafna tóku svo við Hval 8 og ýttu honum upp að Hval 9 við Ægisgarð, eins og lýst var í frétt Sýnar: Langreyðarkvóti sumarsins liggur fyrir. Samkvæmt honum er heimilt að veiða allt að 150 dýr. Það er þó skilyrt að 34 þeirra verði veidd austan við land, sem þýðir lengri siglingu á miðin og þar af leiðandi meiri kostnað, - á tímum þegar olíuverð er í hæstu hæðum. Hvalveiðarnar hafa venjulega hafist í fyrrihluta júnímánaðar og staðið fram eftir septembermánuði. Það má því búast við að landfestar verði leystar eftir hálfan mánuð eða svo og hvalbátarnir sigli þá á miðin. Dráttarbátar ýta Hval 8 að hlið Hvals 9 á Ægisgarði.Bjarni Einarsson Miðað við reynslu fyrri vertíða má ætla að um 150 manns fái vinnu við hvalveiðarnar í sumar, bæði á skipunum við veiðarnar og við vinnsluna í hvalstöðinni í Hvalfirði.
Hvalveiðar Reykjavík Hvalfjarðarsveit Sjávarútvegur Tengdar fréttir „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stofnun Paul Watson boðar „Aðgerð 86“ í sumar, til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Þetta segir í tilkynningu frá samtökunum, þar sem því er lýst með dramatískum hætti að fjögurra áratuga átök milli aðgerðasinna og „alræmdasta“ hvalveiðimanns Íslands, Kristjáns Loftssonar, séu enn á enda. 22. maí 2026 08:10 Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ekki þurfa nýja ákvörðun af hennar hálfu vegna hvalveiða í sumar. Veiðarnar byggi á reglugerð sem Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, setti fyrir árslok 2024 og nýrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hennar framtíðarsýn sé að draga úr og að lokum hætta hvalveiðum. 27. apríl 2026 11:59 Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, telur Hafrannsóknarstofnun í bullandi pólitík. Hann telur stofnunina skulda svör í tengslum við veiðiráðgjöf á langreyði en þar mæla Hafró og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið ekki með meira en 150 dýrum. Þetta er 23 prósenta lækkun. 27. apríl 2026 10:42 Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Hvalur hf. hyggst halda úti veiði á langreyði í sumar. Veiðiráðgjöf frá Hafrannsóknarstofnun barst núna rétt fyrir hádegi þar sem er gert ráð fyrir að kvótinn dragist verulega saman. Samtökin Hvalavinir hafa sent atvinnuvegaráðherra bréf þar sem þess er krafist að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar. 22. apríl 2026 12:13 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira
„Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stofnun Paul Watson boðar „Aðgerð 86“ í sumar, til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Þetta segir í tilkynningu frá samtökunum, þar sem því er lýst með dramatískum hætti að fjögurra áratuga átök milli aðgerðasinna og „alræmdasta“ hvalveiðimanns Íslands, Kristjáns Loftssonar, séu enn á enda. 22. maí 2026 08:10
Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ekki þurfa nýja ákvörðun af hennar hálfu vegna hvalveiða í sumar. Veiðarnar byggi á reglugerð sem Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, setti fyrir árslok 2024 og nýrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hennar framtíðarsýn sé að draga úr og að lokum hætta hvalveiðum. 27. apríl 2026 11:59
Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, telur Hafrannsóknarstofnun í bullandi pólitík. Hann telur stofnunina skulda svör í tengslum við veiðiráðgjöf á langreyði en þar mæla Hafró og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið ekki með meira en 150 dýrum. Þetta er 23 prósenta lækkun. 27. apríl 2026 10:42
Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Hvalur hf. hyggst halda úti veiði á langreyði í sumar. Veiðiráðgjöf frá Hafrannsóknarstofnun barst núna rétt fyrir hádegi þar sem er gert ráð fyrir að kvótinn dragist verulega saman. Samtökin Hvalavinir hafa sent atvinnuvegaráðherra bréf þar sem þess er krafist að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar. 22. apríl 2026 12:13