Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. maí 2026 15:25 Sveinn Óskar Sigurðsson segir myndbandið á vegum krakka að leik og segir gagnrýni vera pólitísks eðlis. Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma harðlega kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ. Þar má sjá ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og kýla mann sem kallaður er „libbi“ áður en hann sest upp í bíl. Oddviti Miðflokksins sakar andstæðinga sína um ritskoðun en myndbandið er horfið af síðu flokksins. „
Slík framsetning á ekki heima í lýðræðislegri umræðu. Að gera lítið úr ofbeldi eða setja það fram sem eðlileg viðbrögð gagnvart fólki sem hugsar öðruvísi, hefur aðrar pólitískar skoðanir eða lífssýn er bæði ábyrgðarlaust og hættulegt,“ segir í yfirlýsingu frá þeim Lovísu Jónsdóttur oddvita Viðreisnar, Höllu Karen Kristjánsdóttur oddvita Framsóknar og Önnu Sigríðar Guðnadóttur oddvita Samfylkingar. Klippa: Kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ „Í Mosfellsbæ hafa allir bæjarfulltrúar sameinast um aðgerðir gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna undir verkefninu Börnin okkar. Þar höfum við lagt áherslu á virðingu, ábyrgð, samtal og öruggt samfélag. Þess vegna er það sérstaklega sorglegt að stjórnmálaflokkur sem sækist eftir trausti almennings kjósi að birta efni sem normalíserar ofbeldi og ýtir undir sundrungu,“ segir þar ennfremur. „Við fordæmum þessa myndbirtingu afdráttarlaust. Pólitík á að byggjast á skoðanaskiptum, virðingu og lýðræðislegri umræðu — ekki hótunum, niðurlægingu eða ofbeldi.“ Mistúlkun sem sé pólitísks eðlis „Þetta er bara leikið brot. Ég var á fundi hjá skapandi greinum um daginn, skapandi greinar ganga út á leiklist, þetta eru bara skapandi greinar sem ganga á þarna,“ segir Sveinn Óskar Sigurðsson oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ. Hann segir síðuna almennt ganga út á gleði og það sem sé fyndið, þó hann komi sjálfur ekki nálægt henni að eigin sögn, þar sem hann sé ekki mikið á Tiktok. „Sumir eru bara of mikil snjókorn fyrir svona mál, við getum ekki stjórnað hugrenningum fólks út í bæ. Það var enginn sleginn. Þetta var leikið, sá sem er að leika þarna er á listanum okkar, þeir eru bara að sprella strákarnir og hafa gaman af lífinu. Mistúlkun á þessu er bara pólitísks eðlis, menn eru að finna höggstað á andstæðingnum eftir að hafa brugðist gamla fólkinu okkar um árabil og í rekstri sveitarfélagsins.“ Þetta tiltekna myndband er horfið af Tiktok síðunni? „Ég bara fylgist ekki svo mikið með þessu. Ég er ekki TikTok gaur. Þau fá bara að ráða þessu. Það er ekkert illa meint hjá þessum krökkum. Er það eitthvað illa meint þó einhver amerískur leikari hefur leikið í einhverju ofbeldishlutverki einhvern tímann? Það er bjánaskapur að haga sér svona, fullorðið fólk, þetta eru bara krakkar að leik og þetta fólk er greinilega auðæsanlegt.“ Oddvitar meirihlutans segja slíka framsetningu ekki eiga heima í lýðræðislegri umræðu, að gera lítið úr ofbeldi og setja það fram sem eðlileg viðbrögð gagnvart fólki sem hugsi öðruvísi? „Þetta er bara ritskoðun. Þetta er bara Sovét-Ísland í dag. Það má ekki neitt, mátt ekki segja neitt nema þú missir vinnuna. Endalaust verið að kæfa umræðu sem er erfið og fletja hana út. Við getum ekkert stjórnað túlkun einhverra sem eru andstæðingar okkar í pólitík.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kosningamyndband hefur þótt umdeilt. Myndband í forsetakosningum 2024 vakti mikla athygli.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mosfellsbær Miðflokkurinn Auglýsinga- og markaðsmál Ofbeldi barna Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira