Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Þórarinn Þórarinsson skrifar 20. apríl 2026 11:10 Fuglaskoðarinn var snöggur að koma sér að Hamarkotslæk í gær þegar fréttist af undurfögrum mandarínandarstegg sem þar spókaði sig og hafði lítið á móti því að stilla sér upp fyrir myndatöku. Mynd/Sveinn „Þetta er svo fallegur fugl að það er alltaf gaman að sjá hann aftur, aftur og aftur,“ segir fuglaskoðarinn Sveinn Jónsson sem í gær komst í návígi við og myndaði mandarínstegg sem flaut spakur á Hamrakotslæk.
Þótt mandarínendur séu ef til vill ekki jafn sjaldséðar og hvítir hrafnar hér á landi varð nokkurt fjaðrafok við Hamarkotslæk í Hafnarfirði í gær þar sem mandarínandarsteggur skartaði sínu fegursta á læknum og gerir víst enn. Sveinn hefur nú séð mandarínönd fimm sinnum á Íslandi en segir það alltaf jafn ánægjulegt enda tegundin ein sú fegursta í heimi hér.Mynd/Sveinn „Ég frétti af honum þarna í morgun,“ segir Sveinn sem beið ekki boðanna þegar hann frétti af steggnum á sunnudaginn. „Ég stoppaði í einhverjar 20 mínútur og lét það nægja. Það voru ekki margir komnir þá en svo bættist alltaf í hópinn,“ segir Sveinn. Listaverk náttúrunnar Óhætt er að segja að fuglinn hafi vakið athygli og einhverjir sem fóru til fundar við hann töluðu um „örtröð“ við lækinn þar sem ófáir sjónaukar, aðdráttarlinsur og símar voru á lofti. Eftir því sem fregnir af steggnum á læknum flugu hærra og lengra fjölgaði á bakkanum þar sem fólk var misvel græjað til þess að ná gestinum á mynd.Vísir/Rafn Ágúst „Maður er svo sem búinn að sjá þetta áður, það er ekki það. En alltaf gaman að sjá þetta aftur og aftur. Þetta er svo fallegt,“ segir Sveinn um það sem hann telur eina fegurstu önd í heimi. „Alveg mögnuð sköpun, hreint listaverk náttúrunnar. Sveinn hafði spurnir af steggnum í smáforritinu Flækingavaktin þar sem fuglaskoðarar deila fregnum af áhugaverðu fiðurfé. „Og ég skaust bara til að kíkja og var bara heppinn og komst í svona þokkalegt návígi við öndina,“ segir Sveinn sem tókst að fanga fegurð fuglsins á mynd. Undurfagur steggurinn virtist njóta athyglinnar ágætlega þegar linsur beindust að honum úr öllum áttum og Lovísa Ósk Jónsdóttir náði náði þessum myndum af honum á þurru landi.Mynd/Lovísa Ósk Hann segir mandarínendur „dúkka upp“ reglulega og margir hafi séð þær hér á landi. „Það er annar svona fugl austur á fjörðum líka. Þetta sést yfirleitt einhvers staðar hérna á hverju vori. Það var par á Vatnsvíkinni í Þingvallavatni í fyrra en það var miklu styggara og erfitt að nálgast. Ég hef reyndar séð mandarínendur tvisvar á höfuðborgarsvæðinu áður, einu sinni á Breiðabólstaðartjörn á Álftanesi þar sem ég sá hana í fyrsta sinn,“ segir Sveinn sem eftir gærdaginn hefur séð slíkar endur fimm sinnum. Aðflutt augnayndi „Þær koma örugglega með öndum sem eru í vetrarstöðvum úti í Evrópu. Íslenskar endur, eins og álftir og gæsir, eru oft á Bretlandseyjum á veturna og svo þegar þær leggja af stað til Íslands eru kannski einhverjar mandarínendur búnar að vera með þeim og taka sig þá bara upp og fara með til Íslands. Það er svona líklegasta skýringin,“ segir Sveinn.Ég hef reyndar séð mandarínendur tvisvar á höfuðborgarsvæðinu áður, einu sinni á Breiðabólstaðartjörn á Álftanesi þar sem ég sá hana í fyrsta sinn,“ segir Sveinn sem eftir gærdaginn hefur séð slíkar endur fimm sinnum. „Þetta eru mjög algengir fuglar úti í Evrópu og þar sérð þú þá oft á tjörnum en eins og þú veist kannski þá er þetta ekki evrópskur fugl að uppruna. Þetta er Kínverji eða Austur-Asíufugl sem var fluttur til skrauts í görðum í Evrópu í gamla daga,“ segir Sveinn um öndina sem haslaði sér völl í álfunni sem augnayndi fyrir aðalsfólk og sinnir því hlutverki enn með sóma og er háum sem lágum til yndisauka. Meðal annars í Hafnarfirði.
Fuglar Hafnarfjörður Ljósmyndun Dýr Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira