Fjölmiðlahugtakið sagt útþynnt og gagnslaust Jakob Bjarnar skrifar 10. apríl 2026 11:00 Ingvar Smári segir að þeim mun meira sem hann hugsi um fjölmiðlalögin og framkvæmd þeirra sem Fjölmiðlanefnd undir forystu Elfu Ýrar framfylgi, þeim mun galnari þykir honum þau. Vísir/Egill Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður hjá RÚV, segir fjölmiðlahugtakið nú orðið svo útþynnt, bæði í fjölmiðlalögum og í framkvæmd fjölmiðlanefndar, að það sé í hans huga orðið nær algerlega merkingarlaust.
Ingvar Smári segist hugsi yfir vegferð fjölmiðlanefndar að elta ólar við að skrá hlaðvörp sem fjölmiðla og þeim mun meira sem hann hugsi málið, þeim mun galnara finnist honum þetta. Íþyngjandi kröfur sem standast varla skoðun Vísir hefur fjallað um þessa vegferð og leitað svara við því hvað hangi á spýtunni, til að mynda í nýlegri úttekt. Ingvar Smári segir í Facebook-færslu að séu lögin lesin, og þá sérstaklega þær kröfur sem gerðar eru til skráningarskyldra fjölmiðla, þá sé augljóst að lögunum hafi tæplega verið ætlað að ná til hundraða hlaðvarpa og YouTube-rása um land allt. „Lögin innihalda langan lista af íþyngjandi kröfum sem geta ekki átt við um þessa aðila, nema markmiðið sé hreinlega að ganga af þeim dauðum. Eiga nær öll hlaðvörp að setja sér dagskrár-/ritstjórnarstefnu? Skila árlega ítarlegri skýrslu til fjölmiðlanefndar um starfsemi sína, m.a. birtingarmyndir kynjanna í efni fjölmiðilsins og aðgerðir fjölmiðlaveitunnar til að vinna gegn staðalímyndum kynjanna? Veita rétt til andsvara til þeirra sem telja á sér brotið? Beita sér fyrir aðgengi sjón- og heyrnarskertra og hafa til staðar aðgerðir og áætlanir í þeim efnum? Svona mætti lengi halda áfram.“ Leiðbeiningar vekja upp fleiri spurningar en þær svara Lögmaðurinn leyfir sér að efast um að fjölmiðlanefnd geri þessar kröfur í raun til allra skráðra hlaðvarpa og YouTube-rása enda myndi útþynnt fjölmiðlahugtakið þá keyra endanlega um koll. Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar var í viðtali hjá Reykjavík síðdegis í vikunni og þar talaði hún um mikilvægi laganna og að fjölmiðlanefnd bregðist við ábendingum sem henni berast: Hlaðvörp sem eigi að vera skráðir fjölmiðlar en séu það ekki. Hlusta má á viðtalið við Elvu Ýr hér neðar. Ingvar Smári heldur hins vegar grimmur áfram og gagnrýnir harðlega þetta fyrirkomulag, sem honum sýnist illa skilgreint. „Fjölmiðlanefnd hefur birt leiðbeiningar um skráningu hlaðvarpa og beitingu fjölmiðlalaga gegn þeim. Samkvæmt leiðbeiningunum, sem vekja upp fleiri spurningar en þeim er ætlað að svara, teljast hlaðvörp ríkisstofnana og stéttarfélaga ekki vera skráningarskyld, alveg sama þótt þau gegni nákvæmlega sama hlutverki og sambærileg hlaðvörp sem eru framleidd af einstaklingum og eru skráningarskyld.“ Ingvar Smári segir að þannig geti til dæmis VR fengið gest til sín og rætt verðbólguna án íþyngjandi eftirlits fjölmiðlanefndar. En Þórarinn Hjartarson í Einni pælingu fær aðra meðferð. „Það má velta fyrir sér jafnræðinu í því,“ segir stjórnarmaður Ríkisútvarpsins en Þórarinn hefur móast við því að skrá hlaðvarp sitt sem fjölmiðil en erindi liggja fyrir frá nefndinni til hans þess efnis. Hann segir að með því sé verið að gengisfella hugtakið fjölmiðlar.
Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Hlaðvörp Rekstur hins opinbera Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Furðar sig á kröfu Fjölmiðlanefndar: „Ég er bara lobbíisti eigin skoðana“ Þórarinn Hjartarson, sem heldur úti hlaðvarpinu Einni pælingu, skilur ekkert í kröfu Fjölmiðlanefndar um að hann skrái hlaðvarpið sem fjölmiðil. Hann telur hlaðvarpið ekkert eiga skylt við starfsemi fjölmiðla, enda sé miklu frekar um upplesna skoðanapistla að ræða en fréttir. 24. nóvember 2025 12:15 Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til í ræðu á þingi fyrr í dag að fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Hún sagði löngu tímabært að Logi Einarsson nýsköpunar- og háskólaráðherra svari því hvers vegna brýnt þyki að ríkið haldi nefndinni úti. 3. mars 2026 15:26 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira
Furðar sig á kröfu Fjölmiðlanefndar: „Ég er bara lobbíisti eigin skoðana“ Þórarinn Hjartarson, sem heldur úti hlaðvarpinu Einni pælingu, skilur ekkert í kröfu Fjölmiðlanefndar um að hann skrái hlaðvarpið sem fjölmiðil. Hann telur hlaðvarpið ekkert eiga skylt við starfsemi fjölmiðla, enda sé miklu frekar um upplesna skoðanapistla að ræða en fréttir. 24. nóvember 2025 12:15
Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til í ræðu á þingi fyrr í dag að fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Hún sagði löngu tímabært að Logi Einarsson nýsköpunar- og háskólaráðherra svari því hvers vegna brýnt þyki að ríkið haldi nefndinni úti. 3. mars 2026 15:26