Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Kjartan Kjartansson skrifar 26. mars 2026 13:38 Rannsóknin var gerð í vestanverðri Sádi-Arabíu þar sem jarðlög eru sögð að miklu leytu úr gegndræpu basalti sem henta til niðurdælingar. Þar er einnig mikil losun frá iðnaði en Sád-Arabía er eitt helsta olíuframleiðsluríki heims. Háskóli Íslands/aðsend Alþjóðleg rannsókn sem gerð var í Sádi-Arabíu og íslenskir fræðimenn tóku þátt í bendir til að hægt sé að binda kolefni í berg á mun fleiri stöðum í heiminum en áður var talið gerlegt. Aðferðin sem var beitt dregur verulega úr vatnsþörf bindingarinnar.
Aðferðin til kolefnisförgunar sem þróuð var á Hellisheiði og Carbifx beitir gengur út á að uppleystum koltvísýringi er dælt niður í basaltsjarðlög þar sem hann fellur út sem steindir sem bindast bergi varanlega. Gríðarlegt magn af ferskvatni þarf til kolefnisförgunarinnar og sú þörf hefur verið talin takmarka hvar hægt er að beita aðferðinni í heiminum. Rannsókn sem birtist um rannsóknina í Sádi-Arabíu í vísindaritinu Nature í gær bendir til þess að aðferðin verði brúkleg mun víðar í framtíðinni en til þessa. Búa til hringrás og endurnýta sama vatnið Niðurstaða rannsóknarinnar var að hægt væri að binda koltvísýring varanlega í jarðlögum án þess að nota til þess meira ferskvatn en var þegar að finna á niðurdælingarsvæðinu. Vísindamennirnir hönnuðu lokað kerfi þar sem vatni var dælt upp úr einni borholu, því síðan rennt ofan í aðra með koltvísýringsgasinu og svo aftur til baka í fyrstu holuna. Þannig varð til hringrás þar sem sama vatnið var nýtt endurtekið til að binda kolefnið í bergi. Þá eru niðurstöðurnar sagðar sýna enn frekar fram á að kolefnisbindingarferlið sé hratt og skilvirkt. Stór hluti koltvísýringsins bindist bergi á innan við ári eftir að honum er dælt niður í jörðina. Eric Oelkers hefur um árabil verið gestaprófessor við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Sigurður Reynir Gíslason, prófessor við Jarðvísindastofnun. Þeir hafa báðir verið í fararbroddi rannsókna á efnahvörfum í bergi og bindingu koltvíoxíðs í steini. Háskóli Íslands Tveir af frumkvöðlum Carbix-tækninnar, þeir Sigurður Reynir Gíslason, prófessor við Háskóla Íslands og Grímur Björnsson, jarðeðlisfræðingur, eru á meðal höfundar greinarinnar um rannsóknina, að því er kemur fram í tilkynningu frá Háskóla Íslands um rannsóknina. Eric Oelkers, gestaprófessor við jarðvísindastofnun HÍ til fleiri ára, er einnig í höfundahópnum. Carbfix hefur einnig unnið að rannsóknum á því hvort hægt sé að nota sjó í stað ferskvatns til þess að leysa upp koltvísýring og dæla honum í jörðu. Reynist það framkvæmanlegt yki það enn notagildi förgunaraðferðar fyrirtækisins.
Vísindi Tækni Loftslagsmál Háskólar Sádi-Arabía Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira