Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF Þórarinn Þórarinsson skrifar 13. mars 2026 12:40 Hrönn Marinósdóttir, stofnandi og stjórnandi RIFF, hafnar ásamt stjórnarformanni hátíðarinnar, helstu ávirðingunum sem á hátíðina voru bornar í Þetta hels þann 4. mars. Mynd/Aðsend Stjórnendur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík segjast ekkert kannast við launagreiðslur undir lágmarki, misnotkun á úrræðum Vinnumálastofnunar og fleiri ávirðingar sem bornar voru á hátíðina í fréttaskýringaþættinum Þetta helst á Rás 1.
Hrönn Marinósdóttir, stofnandi og stjórnandi Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, og Þórir Ólafsson, stjórnarformaður, segja í yfirlýsingu ýmislegt hafa komið fram í Þetta helst þann 4. mars sem gefi ýmist ranga eða villandi mynd af starfsemi RIFF.„Þegar alvarlegar fullyrðingar eru settar fram opinberlega verður að gera kröfu um að þær séu studdar gögnum og settar fram af ábyrgð.“ Þau geri því „alvarlegar athugasemdir“ við nokkur atriði og að þeim hefði þótt eðlilegt, með vísan til vinnureglna RÚV um „vandaðan og málefnalegan“ fréttaflutning, að til haga hefði verið haldið upplýsingum og gögnum sem fyrir liggja um starfsemi hátíðarinnar. Enginn undir lágmarkslaunum Þau byrja síðan á því að hafna fullyrðingum um að RIFF hafi greitt starfsfólki laun undir lágmarkstöxtum. Farið hafi verið eftir gildandi kjarasamningum. Einnig vísa þau því á bug að RIFF hafi misnotað úrræði Vinnumálastofnunar og segja stofnunina hafa farið yfir alla ráðningasamninga og kjör áður en ráðningarstyrkir voru samþykktir.RIFF hafi ekki fengið neinar athugasemdir frá VMST sem jafnframt hafi staðfest að álag eða mannekluvandi hafi ekki leitt til þess að gerðar hafi verið undantekningar frá því verklagi. Viðmælandi á „góðum launum“ Hvað þessar ávirðingar varðar vilja þau Hrönn og Þórir halda því til haga að viðmælandi þáttarins, Þorbjörg Jóhannsdóttir, hafi í fyrra verið starfsmannastjóri hjá RIFF á góðum launum.„Engar upplýsingar bárust frá henni meðan hún var við störf hjá hátíðinni vegna þeirra atriða sem hún ræddi í þættinum.“ Þá bæta þau við að Þorbjörg hafi lýst vilja til að halda áfram störfum fyrir RIFF en fjárskortur hafi meðal annars orðið til þess að ekkert varð úr því. Í Þetta helst sagði Þorbjörg fimm mánaða starfstíma sinn hjá RIFF hafa verið „skelfilegan“ og lýsti ámælisverðri meðferð á því opinbera fé sem RIFF þiggur, meðal annars frá Reykjavíkurborg og ríkinu. Tortryggileg ráðdeild Ekki vilja Þórir og Hrönn þó kannast við neitt misjafnt í fjármálum hátíðarinnar, meðferð styrkja og opinbers fjár. Þau benda í þessu sambandi á úttekt sem KPMG gerði í fyrra á starfsemi og fjármálum hátíðarinnar.Niðurstöðurnar hafi ekki sýnt fram á neitt misjafnt í sambandi við „fjármál, misnotkun styrkja eða óeðlilega meðferð fjármuna. Þvert á móti liggur fyrir að rekstur hátíðarinnar hefur farið fram við krefjandi aðstæður, með takmörkuðum fyrirsjáanleika í styrkveitingum, án þess að safna skuldum eða byggja nokkru sinni reksturinn á yfirdrætti eða bankalánum.“ Hrönn og Þórir furða sig jafnframt á því að í þættinum sé það gert „ eitthvað athugunarvert“ að RIFF hafi gengið harkalega eftir afsláttum. Fjárráð RIFF séu takmörkuð og því jafnan leitast „við að gera góða samninga og fá þá afslætti sem mögulegt er.“ Við þetta bæta þau að gott „væri ef þetta gilti almennt við meðferð opinbers fjár og ekki væri verið að gera það tortryggilegt í útvarpi allra landsmanna.“ Áhersla á menningarlegt mikilvægi Þórir og Hrönn ljúka yfirlýsingu sinni með því að reifa mikilvægt kvikmyndamenningarlegt hlutverk RIFF. Hátíðin laði að „ sér erlenda gesti, fjölmiðla og fagfólk, skapar störf og veitir fjölmörgum tækifæri til þátttöku á hverju ári.“Þau segja alvanalegt að alþjóðlegar kvikmyndahátíðir og aðrir menningarviðburðir af sama tagi byggi starfsemi sína ýmist á „fastráðnu starfsfólki, verktökum, starfsnemum og sjálfboðaliðum, allt eftir eðli verkefna og árstíðasveiflu í starfinu.“
RIFF Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Ríkisútvarpið Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira