Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Eiður Þór Árnason skrifar 12. mars 2026 17:03 Ljósmyndin er frá árinu 2020 þegar Flateyrarvegi var lokað vegna snjóflóðs. Vísir/Jóhann k. Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flateyrarvegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvesturlandi og við Hellisheiði.
Veðurstofan hefur greint þrjú snjóflóð ofan Flateyrar í dag, eitt í Innra‑Bæjargili og tvö í Skollahvilft. Stærstu tvö snjóflóðin hafa náð um það bil niður að vörnum. Mörg snjóflóð hafa fallið á veginn um Súðavíkurhlíð og hefur vegurinn verið lokaður í dag. Einnig féll snjóflóð á veg í Súgandafirði, utan við Suðureyri. Veðurstofan greinir frá þessu en líklegt er talið að fleiri snjóflóð hafi fallið á svæðinu sem hafi ekki sést enn vegna takmarkaðs skyggnis. Ratsjármynd af stærra snjóflóðinu í Skollahvilft.Veðurstofa Íslands „Veðurspár gera ráð fyrir að veðrið nái hámarki seint í kvöld eða nótt. Þá má búast við að snjóflóðahætta aukist á veginum um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Ekki sé talin hætta í byggð sem stendur en áfram sé fylgst með aðstæðum. Vara einnig við aðstæðum á Norðurlandi og við Hellisheiði Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Vestfirði, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Strandir og Norðurland vestra. Á Norðurlandi varar Veðurstofan við snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarvegi. Hún hefur ekki fengið tilkynningar um snjóflóð á utanverðum Tröllaskaga í dag en snjóflóð féllu í Hlíðarfjalli við Akureyri. Að sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar er hríð á fjallvegum á norðvestanverðu landinu og getur færð spillst frá Snæfellsnesi og austur að Tröllaskaga. Hvasst og blint í éljum og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrengslum í nótt, frá klukkan 22 til klukkan 7 í fyrramálið. Einnig ber á snörpum vindhviðum, um 35 metrar á sekúndu, undir Eyjafjöllum í nótt til 9 í fyrramálið. Vegir um Klettháls og Steingrímsfjarðarheiði ófærir Á Vestfjörðum var veginum um Súðavíkurhlíð lokað fyrir hádegi í dag en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Þá eru vegirnir um Klettháls og Steingrímsfjarðarheiði ófærir, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Vegna veðurs megi búast við að færð geti orðið erfið og vegir á Vestfjörðum lokast með stuttum fyrirvara. Þungfært sé í Ísafjarðardjúpi en þæfingur er á Dynjandisheiði, Gemlufallsheiði og Vatnsfjarðarhálsi. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á flestum öðrum leiðum, að sögn Vegagerðarinnar. Lögreglan á Vestfjörðum segir að staðan á Flateyrarvegi verði endurmetin í fyrramálið. Gul viðvörun vegna hríðarveðurs er í gildi á Vestfjörðum fram til klukkan 6 í fyrramálið. Spáð er norðan og norðvestan 15 til 20 metrum á sekúndu í landshlutanum með snjókomu og skafrenningi, að sögn Veðurstofu Íslands. Þessu fylgir lélegt skyggni og líkur á samgöngutruflunum, einkum á fjallvegum. Veðurspá gerir ráð fyrir batnandi veðri á Vestfjörðum á morgun en viðvarandi éljagangi á utanverðum Tröllaskaga. Fréttin hefur verið uppfærð.
Samgöngur Veður Snjóflóð á Íslandi Tengdar fréttir Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. 12. mars 2026 11:01 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira
Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. 12. mars 2026 11:01