Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. mars 2026 13:41 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra var áður félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Anton Brink Þingmenn stjórnarandstöðunnar gefa lítið fyrir orð mennta- og barnamálaráðherra sem svaraði gagnrýni um frumvarp félagsmálaráðherra á Alþingi í dag. Ráðherrann sagðist vera kominn með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“.
Frumvarpið, sem snýst í grunninn um að árlegar breytingar á greiðslum almannatrygginga skuli taka mið af þróun launavísitölu í stað launaþróunar, hefur hlotið töluverða gagnrýni. Stjórnarandstaðan hefur verið harðorð um frumvarpið en einnig Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Í gær lýsti Læknafélag Íslands yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðra breytinga og benti á að öryrkjum hafi fjölgað verulega á síðustu árum. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, var til svara í óundirbúnum fyrirspurnum á þinginu í morgun og gaf hún lítið fyrir yfirlýsingu Læknafélagsins. „Ég er búin að fá hálfgert ógeð, í orðsins fyllstu merkingu, á því að hlusta á hverja silkihúfuna á fætur annarri hér úti í samfélaginu og nú Læknafélag Íslands, þeir sem meta fólkið til örorku, þeir sem eru sennilega að meðaltali með sex milljónir á mánuði í laun. Mér þætti gaman að sjá þá fá útborgað 312 þúsund krónur og koma svo svona fram eins og verið að gera núna,“ sagði Inga. Þá gagnrýndi hún Sigurð Örn Hilmarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins sem hóf umræðuna um frumvarpið, fyrir að segja að eldri borgarar fái bætur. „Það hefur verið ákall hjá þessum hópum að fá að segja: Þetta er okkar framfærsla, þetta eru okkar tekjur, þetta eru okkar laun.“ Ástand í óundirbúnum fyrirspurnum hafi versnað Orð Ingu féllu ekki í geðið á Miðflokksmönnunum Bergþóri Ólasyni og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Þau hjóu sérstaklega eftir staðhæfingu Ingu um að meðallaun lækna væru fimm til sex milljónir króna á mánuði. „Ég hef hvað mesta reynslu hér í salnum af því að vera í stjórnarandstöðu og nýta liðinn sem heitir óundirbúinn fyrirspurnatími,“ sagði Bergþór. „Ástandið hefur versnað mjög á síðustu misserum og ég segi bara: Frá því um síðustu kosningar hefur ástandið versnað mjög hvað það varðar að ráðherrar fari undan í flæmingi og segi bara eitthvað, eins og gagnrýnt var hér rétt í þessu varðandi orð hæstvirts ráðherra Ingu Sæland sem kallaði hér út af fyrri athugasemd að hún hefði verið að tala um meðaltalstekjur.“ Nanna Margrét furðaði sig á staðhæfingunni. „Er þetta eitthvað sem við höfum ekki verið upplýst um hér í þingsal? Eru laun sem ríkið er að borga til heimilislækna og lækna inni á spítölunum 5–6 milljónir? Er það staðan eða er hæstvirtur ráðherra bara að segja eitthvað? Hún getur valið að nota orðfæri eins og silkihúfur um lækna þessa lands. Það er hennar val. En er þetta raunveruleikinn, frú forseti?“ Samkvæmt launatöflu Læknafélags Íslands eru kjarasamningsbundin laun lækna lægst 807.909 krónur en hæst 2.142.856 krónur.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tenging almannatrygginga við launavísitölu Alþingi Félagsmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira