„Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. mars 2026 15:44 Brotaþoli sagðist ekki óttast að ákærði myndi fylgja orðunum sínum eftir. Getty Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði sakborning sem hótaði lífláti í opinberri færslu á Facebook. Dómurinn taldi ummælin ósmekkleg en ekki var sannað að hótunin hefði í reynd vakið upp ótta.
Þann 26. júní 2024 átti ákærði að hafa hótað brotaþolanum með því að skrifa opinbera færslu á Facebook-síðu brotaþolans sem innihélt meðal annars lífslátshótun. Skilaboðin voru til þess fallin að brotaþoli óttaðist um líf sitt, heilbrigði og velferð. Þau hljóðuðu svo: „Þú ert tekinn af lífi. En fyrst SJÁ ÞIG PYNTAÐAN djöfulsins feita piggið þitt! Þú ert dauður!“ Bæði brotaþoli og ákærði gáfu skýrslu fyrir lögreglu þar sem þeir sögðust þekkjast í gegnum tónlistargeirann en væru þó ekki nánir. Brotaþoli sagðist hafa „blokkað“ ákærða á Facebook í kjölfarið ummælanna. Fyrir dómi sagði brotaþoli að hann hefði áður kært ákærða fyrir ummæli sem hann hefði látið falla. Honum hafi fyrst borist hótanir eftir að ákærði keypti heyrnatól fyrir hrun en síðan komið eftir hrun með heyrnatólin brotin og krafist viðgerða en þau voru ekki lengur í ábyrgð. Brotaþoli sagðist þó ekki óttast ákærða en það væri „ekkert gaman að fá svona“. Myndi aldrei ná sér í kvenmann Ákærði lýsti því bæði í skýrslutöku og fyrir dómi hvernig hann og brotaþoli áttu í rifrildum á netinu áður en ákærði birti ummælin. Ákærði sagði að brotaþoli hefði niðurlægt hann „alveg rosalega“ með því að taka saman kynlífstengdar síður sem ákærði hefði átt í samskiptum við og sagt að ákærði gæti aldrei fundið sér kvenmann. Markmiðið með líflátshótununum var að hræða brotaþola en brotaþoli hafði samt sem áður ekki ástæðu til að óttast ákærða þar sem hann ætlaði ekki að beita ofbeldi. Framburður ákærða um niðurlæginguna var borinn undir brotaþola sem viðurkenndi að hafa birt skjáskot af kynlífssíðunum og skrifað að ákærði „myndi aldrei ná sér í kvenmann“. Hann hafi hins vegar gert það í kjölfar þess að ákærði sakaði brotaþola um að hafa stolið kærustu ákærða. Þetta atvik átti sér þá stað nokkru áður en ákærði setti inn ummælin með hótuninni. Á þeim tíma hefði ákærði vænt brotaþola um að hafa eyðilagt fyrir ákærða í tónlistarheiminum og stolið kærustu af honum. Ósmekkleg ummæli Dómurinn taldi að ákærði hafði viðurkennt að hafa skrifað ummælin en ætlað ekki að framfylgja hótuninni með nokkrum hætti. Ummælin hafi verið sett fram í bræðiskasti. Brotaþoli sagðist upphaflega ekki óttast ákærða en dró heldur úr því fyrir dómi og kvaðst ekki viss þar sem hann þekkti ákærða ekki. Hins vegar hafi ummæli ákærða á Facebook-síðu brotaþola verið „afar ósmekkleg og ámælisverð í alla staði“. Þar sem að hótunin vakti ekki upp ótta hjá brotaþolanum var ákveðið að sýkna ákærða.
Dómsmál Samfélagsmiðlar Tjáningarfrelsi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira