Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. febrúar 2026 08:30 Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið standa fyrir málþinginu Umhverfið í hnattrænu samhengi þar sem kynntar verða helstu niðurstöður nýrrar skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, GEO-7. Skýrslan veitir heildstæða mynd af stöðu umhverfismála á heimsvísu og dregur fram lykiláskoranir og lausnir sem tengjast loftslagsbreytingum, hnignun vistkerfa, mengun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Hægt verður að fylgjast með í beinni á Vísi.
Á málþinginu verður sjónum sérstaklega beint að því hvernig niðurstöður GEO-7 tengjast alþjóðlegri samvinnu, þróunarsamvinnu og ábyrgð ríkja á sameiginlegum hnattrænum markmiðum. Rýnt verður í hvernig þekking, stefnumótun og aðgerðir á alþjóðavettvangi geta stutt við sjálfbæra þróun, jafnræði og seiglu samfélaga, ekki síst í viðkvæmum svæðum heimsins. Í erindum og pallborðsumræðum verður lögð áhersla á samþættingu umhverfismála, meðal annars í tengslum við hafið, jarðveg og landnýtingu, og hvernig vísindaleg þekking, stjórnsýsla og samfélagsleg þátttaka geta saman skapað raunhæfar lausnir. Viðburðurinn er vettvangur fyrir samtal fræðasamfélags, stjórnvalda og ungs fólks um hlutverk Íslands í alþjóðlegu samhengi og hvernig landið getur lagt sitt af mörkum til sjálfbærrar framtíðar á heimsvísu. Málþingið fer fram í Norræna húsinu 18. febrúar kl. 9–11, með morgunhressingu frá kl. 8:30. Dagskrá: Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ opnar viðburðinn Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra flytur ávarp Erindi: Umhverfið í hnattrænu samhengi: Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ Jarðvegur - þar sem líf og loftslag mætast: Jóhann Þórsson, sérfræðingur hjá Landi og skógi Hafið – Framtíð bláu plánetunnar og áskoranir samtímans: Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknarstofnunar Pallborð: Björn Helgi Barkarson, skrifstofustjóri á skrifstofu náttúru og minjaverndar hjá umhverfis- orku og loftslagsráðuneytinu Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor emerita í vistfræði Jón Erlingur Jónasson, sérstakur sendierindreki um málefni hafsins hjá utanríkisráðuneytinu Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, fulltrúi ungra umhverfissinna Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flytur lokaorð Fundarstjóri er Guðrún Guðjónsdóttir, starfandi forstöðumaður Landgræðsluskóla GRÓ.
Umhverfismál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira