Stillir sér upp á miðjunni Kjartan Kjartansson skrifar 16. febrúar 2026 09:22 Lilja Alfreðsdóttir fagnar sigri í formannskjöri á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina. Vísir/Lýður Valberg Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið.
Margir túlkuðu hluta af kveðjuræðu Sigurðar Inga Jóhannssonar, fráfarandi formanns, á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina sem gagnrýni á Miðflokkinn sem hefur tekið upp orðræðu evrópskra fjarhægriflokka, sérstaklega í innflytjendamálum, á síðustu misserum. „Umburðarlyndur, frjálslyndur miðjuflokkur sem sækir fram á eigin gildum eða flokkur sem ætlar að elta popúlistana, flæmast undan hávaðanum vegna þess að við höfum ekki þor, ekki kjark til að svara eða standa á okkar skoðunum þó svo að þær eigi ekki upp á pallborðið í dægurþrasi öfganna,“ sagði Sigurður Ingi. Lilja Alfreðsdóttir, sem var kjörin formaður Framsóknarflokksins á flokksþinginu, svaraði ekki beint í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun hvort hún teldi óviðeigandi af Sigurði Inga að beina spjótum sínum að öðrum flokki í ræðu sinni. Hún teldi þó að ýta ætti undir jákvæða og skýra stefnu flokksins á „uppskeruhátíð“ sem þessari. Til hægri í efnahagsmálum Spurð að því hvort Framsóknarflokkurinn ætlaði að reyna að elta Miðflokkinn undir hennar stjórn sagði Lilja að flokkurinn stæði fyrir sínu með skýra stefnu á miðjunni. „Miðflokkurinn er að fikra sig mjög til hægri. Ég sem formaður er ekki þar. Ég er inni á miðjunni,“ sagði Lilja. Hún væri til hægri í málefnum atvinnulífsins og að hún vildi að fyrirtækin í landrinu blómstruðu. Skapar þyrfti tekjur til þess að setja í velferðina og efla menntamálin, sem eru henni sérstakt hjartans mál, enn frekar. „Þannig að við erum bara að fara að efla elsta og virtasta stjórnmálaflokk landsins á miðjunni og sækja þangað sem við höfum verið. En við þurfum líka að vera með skýra sýn og höfða til ungs fólks þannig að þau sjái að við séum að vinna fyrir þau.“ Afsprengi Framsóknarflokksins Miðflokkurinn varð til sem klofningsframboð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eftir að Sigurður Ingi velti honum úr sessi í formannskjöri haustið 2016. Á ýmsu hafði þá gengið því ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir forsæti Sigmundar Davíðs hafði splundrast í kjölfar upplýsinga um aflandsfélag hans og eiginkonu hans sem komu fram í Panamaskjölunum svonefndu. Litlir kærleikar hafa verið með þeim Sigurði Inga síðan. Tveimur árum síðar urðu nokkrir miðflokksmenn uppvísir að niðrandi ummælum um Lilju í spjalli á öldurhúsi sem varð opinbert. Lilja lýsti ummælum þeirra sem óafsakanlegum og kallaði þingmennina ofbeldismenn.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bítið Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira