Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Árni Sæberg skrifar 11. febrúar 2026 11:23 Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu í lok janúar. Vísir/Vilhelm Karlmaður sem sætti rafrænu eftirliti lengur en hann hefði átt að gera vegna afplánunar dóms fær engar bætur úr hendi ríkisins. Hann fékk reynslulausn 34 dögum seinna en rétt hefði verið og fór fram á 3,4 milljónir króna í miskabætur en héraðsdómur taldi skilyrðum bótaskyldu um stórfellt gáleysi eða ásetning ekki uppfyllt.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 29. janúar síðastliðinn og birtur í gær, segir að málsatvik hafi að meginstefnu verið ágreiningslaus. Maðurinn hafi höfðað til greiðslu miskabóta á þeirri forsendu að hann hafi sætt refsingu í formi afplánunar undir rafrænu eftirliti lengur en honum bar, það er frá 19. nóvember 2022 til og með 22. desember 2022, en á þeim degi hafi honum verið veitt reynslulausn til tveggja ára. Fangelsismálastofnun hafi ákveðið 16. nóvember 2022 að rétt væri að veita manninum reynslulausn á grundvelli laga um fullnustu refsins eftir helming afplánunar, sem hafi þá að mati stofnunarinnar átt að verða 7. febrúar 2023. Þar með hafi stofnunin svo ekki verði um villst lagt það mat á mál mannsins að reynslulausn væri réttlætanleg eftir afplánun helmings refsingar hans. Helmingur ófyrndrar refsingar hafi aftur á móti í reynd verið liðinn 19. sama mánaðar, en stefnandi hafi þó enn verið látinn sæta refsingu í formi rafræns eftirlits til 22. desember 2022. Óvissa með fyrningu Ástæðan fyrir þessu ósamræmi er sú að upphaflega taldi Fangelsismálastofnun að tveir fyrstu refsidómar mannsins af sex, frá 2014 og 2015, hefðu ekki verið fyrndir þegar maðurinn hóf afplánun árið 2021. Umboðsmaður Alþingis hafi aftur á móti komist að gagnstæðri niðurstöðu varðandi fyrningu dómanna í nóvember árið 2022. Dómsmálaráðuneytið hafi þá tekið mál mannsins til skoðunar á ný og fallist á það að dómarnir hefðu verið fyrndir þann 22. desember og Fangelsismálastofnun í kjölfarið veitt manninum reynslulausn samstundis. „Af þessu verður dregin sú ályktun að stefnandi hafi sætt refsingu í formi afplánunar undir rafrænu eftirliti lengur en rétt var miðað við ákvörðun Fangelsismálastofnunar 16. nóvember 2022, enda miðaðist sú stjórnvaldsákvörðun við rangan dagafjölda sem stefnandi átti þá eftir óafplánaðan, þ.e. vegna lögskýringar um fyrningu refsingar sem stefndi viðurkennir nú að fær ekki staðist,“ segir í niðurstöðukafla dómsins. Ekki saknæmt að túlka lögin ekki eins og Umboðsmaður Aftur á móti segir í dóminum að ákvæði skaðabótalaga sem maðurinn byggði bótakröfu sína á áskilji aukið saknæmi, það er að segja ásetning eða stórfellt gáleysi. Þegar litið sé til fyrri rökstuðnings stjórnvalda í máli mannsins, einkum í fyrri ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um fyrningu dóma mannsins, verði aftur á móti ekki talið sýnt að uppfyllt sé það skilyrði ákvæðisins. Þannig fellst dómurinn á það með ríkinu að starfsmenn dómsmálaráðuneytisins hafi ekki gerst sekir um stórfellt gáleysi eða ásetning þegar þeir túlkuðu fyrningarákvæði laga um fullnustu refsinga á annan veg en Umboðsmaður Alþingis gerði síðar. Með vísan til þessa sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur íslenska ríkið af öllum kröfum mannsins.
Dómsmál Fangelsismál Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Sjá meira