Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Bjarki Sigurðsson skrifar 21. janúar 2026 12:01 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins. Vísir/Lýður Valberg Miðflokkurinn mælist með 22,2 prósent í nýrri könnun Maskínu og eykst fylgið um þrjú prósent milli mánaða. Samfylkingin mælist með 27 prósent og því munar einungis tæpum fimm prósentustigum á flokkunum. Viðreisn mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.
Fylgisaukning Miðflokksins frá kosningum í nóvember 2024 nemur tíu prósentustigum. Fylgi Samfylkingar hefur aukist um 6,2 prósentustig frá kosningum en í skoðanakönnunum eftir kosningar hefur hann mest mælst með 31,9 prósent. Viðreisn stærri en Sjálfstæðisflokkur Viðreisn mælist með 14,1 prósent fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn 13,5 prósent. Fylgi Viðreisnar eykst lítillega milli mánaða en Sjálfstæðismenn missa 1,6 prósentustig. Framsókn mælist með 7,1 prósent, svipað og í kosningum. Fylgistap Flokks fólksins heldur hins vegar áfram og mælist flokkurinn út af þingi annan mánuðinn í röð. Fylgið er í 4,3 prósentum. Píratar og Sósíalistar mælast með 4,1 prósent fylgi og Vinstri græn með 3,7 prósent. Svipuð málefni og erlendis Guðmundur Hálfdánarson, sérfræðingur í sögu þjóðernisstefnu, segir áframhaldandi fylgisaukningu flokksins ekki koma á óvart. „Miðflokkurinn hefur undir svona kannski forystu Snorra Mássonar tekið upp svipuð málefni og hafa verið áberandi flokka til dæmis í Bandaríkjunum. Einnig hjá flokkum í Frakklandi, Bretlandi, Þýskalandi og austurhluta álfunnar þar sem áhersla er lögð á innflytjendamál og þessa ógn sem sumir telja stafa af innflytjendum við þjóðerni Íslendinga. Verið sé að skipta þjóðinni út,“ segir Guðmundur. Guðmundur Hálfdánarson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Kristinn Ingvarsson Hvað gera Sjálfstæðismenn? Staða Sjálfstæðisflokksins sé mjög alvarleg. Miðflokkurinn sé að sækja fylgi þaðan og frá Flokki fólksins. „Ég á ekki von á því að hann fái allt þetta fylgi í kosningum. Það áhugaverða að fylgjast með er hvernig Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að bregðast við. Tekur hann upp málefni og málflutning Miðflokksins og reynir að ná vopnum sínum þannig eða reynir hann að vera einhverskonar annar valkostur á hægri vængnum sem getur á einhvern hátt stöðvað þessa fylgisaukningu Miðflokksins,“ segir Guðmundur. Könnunin var framkvæmd 9. til 13. janúar og tóku 886 svarendur afstöðu til flokks eða 91,2 prósent svarenda. 2,7 prósent sögðust skila auðu og 1,2 prósent myndu ekki kjósa. 4,9 prósent vildu ekki svara.
Alþingi Skoðanakannanir Samfylkingin Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Píratar Sósíalistaflokkurinn Vinstri græn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira