Óbreytt klukka stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 7. nóvember 2025 19:21 Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og svefnsérfræðingur, segir það hafa verið mikil vonbrigði að stjórnvöld hafi ekkert gert með niðurstöðu starfshóps um klukkuna. Vísir/Bjarni Óbreytt klukka er stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu að sögn Erlu Björnsdóttur sálfræðings og sérfræðings um svefn. Hún eygir von um að stjórnvöld taki ákvörðun um að samræma klukkuna gangi sólar í ljósi þess að slík leiðrétting sé nú komin á dagskrá grænlenska þingsins, Inatsisartut.
Árið 2022 flýttu Grænlendingar klukkunni vegna viðskiptalegra sjónarmiða en nú vilja þeir endurskoða málið vegna þeirra neikvæðu áhrifa á heilsu sem þeir hafa fundið fyrir. „Það er mikil óánægja í Grænlandi. Foreldrar eru að upplifa að börnin sofi ekki eins vel og mikill þrýstingur er í gangi að snúa þessu til baka. Ég hef einmitt verið að fá fyrirspurnir frá grænlenskum fjölmiðlum því þeir hafa fylgst með þessari umræðu hér og þeim starfshópi sem var skipaður á sínum tíma til að taka á kvörðun um þetta mál en því miður var ekki tekið mark á niðurstöðu þess hóps en þetta gefur okkur byr í seglin að taka umræðuna upp aftur,“ segir Erla. Morgunbirta lykilatriði í stillingu líkamsklukku Erla segir ótal margt hafa breyst síðan Alþingi ákvað árið 1968 að festa klukkuna á miðtíma. „Á þessum tíma vorum við bara ekki með þá þekkingu sem við búum yfir í dag á grunnvísindum um líkamsklukkuna og hversu mikilvægt það er að vera í takti við sína innri klukku og þar er morgunbirtan sterkasta merkið og mikilvægasta.“ Nú sé vitað að samspil morgunbirtu og hormónakerfis stilli líkamsklukkuna. „Það er þetta Melantónin, myrkurhormón líkamans, við byrjum að framleiða á kvöldin þegar það verður dimmt og það gerir okkur syfjuð. Við þurfum birtuna til að tempra Melantónínið og fá orkuna og ná að vakna. Í svartasta skammdeginu fáum við ekki birtu fyrr en undir hádegi en leiðrétting klukkunnar myndi þá stytta þann tíma verulega og það sem gerist þegar maður er í misræmi við innri klukku er að það hefur áhrif á svefninn. Svefnfasinn, hann seinkar, bæði er erfiðara að vakna á morgnanna og koma sér í gang en líka erfiðara að sofna á réttum tíma á kvöldin. Fengjum sex vikur af meiri morgunbirtu Hún leggur til að færa klukkuna aftur um klukkustund. „Þetta myndi gefa okkur mun meiri morgunbirtu yfir dimmasta tíma ársins, svona um sex vikur sem við myndum vakna í birtu aukalega.“ Óhófleg svefnlyfjanotkun gæti tengst klukkuskekkju Svefnvandi sé útbreiddur hérlendis. „Við vitum að svefnvandi er algengur á Íslandi. Við erum með gríðarlega notkun svefnlyfja, miklu meira en nágrannaþjóðirnar og mögulega er þessi klukkuskekkja ein ástæðan fyrir því.“ Auðvelt að leiðrétta klukkuna Það hafi því verið vonbrigði þegar ekkert var gert með niðurstöðu starfshóps sem hún sat í. Óbreytt ástand sé stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu. „Fyrir mér er þetta bara mjög einfalt við getum bara breytt aftur. Þeir sem ráða geta tekið þá ákvörðun að leiðrétta klukkuna og leyfa okkur bara að vera í takti við sólina.“ Í sjónvarpsfréttinni er síðan að finna spjall fréttastofu við fólk í miðbænum sem var beðið um álit sitt á mögulegri klukkubreytingu. Ekki stóð á svörum en skoðanirnar á málinu voru hinar ýmsu.
Grænland Svefn Klukkan á Íslandi Tengdar fréttir Grænlendingar breyta klukkunni á næsta ári Klukkunni verður breytt á Grænlandi á næsta ári og verður tekið upp nýtt tímabelti sem kallast UTC-2. 25. nóvember 2022 07:42 Segir það eina rétta að breyta klukkunni Í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gær var farið yfir svefnvenjur Íslendinga, hvort seinka eigi klukkunni hér á landi og hversu mikill kostnaður sé fólginn í vandamálum sem tengjast svefni. 24. janúar 2019 12:30 Klukkunni verður ekki seinkað Klukkunni verður ekki seinkað um eina klukkustund hér á landi líkt og komið hefur til umræðu öðru hvoru undanfarin ár. 1. september 2020 08:24 Tveir þriðju hlynntir klukkutíma seinkun Frestur til að skila umsögnum um tillögur að breyttum staðartíma á Íslandi rennur út eftir rúma viku. Hingað til eru flestir á því að seinka skuli klukkunni. Sumir leggja til tilraunaverkefni á Vestfjörðum eða að flýta klukkunni. 1. mars 2019 07:30 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira
Grænlendingar breyta klukkunni á næsta ári Klukkunni verður breytt á Grænlandi á næsta ári og verður tekið upp nýtt tímabelti sem kallast UTC-2. 25. nóvember 2022 07:42
Segir það eina rétta að breyta klukkunni Í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gær var farið yfir svefnvenjur Íslendinga, hvort seinka eigi klukkunni hér á landi og hversu mikill kostnaður sé fólginn í vandamálum sem tengjast svefni. 24. janúar 2019 12:30
Klukkunni verður ekki seinkað Klukkunni verður ekki seinkað um eina klukkustund hér á landi líkt og komið hefur til umræðu öðru hvoru undanfarin ár. 1. september 2020 08:24
Tveir þriðju hlynntir klukkutíma seinkun Frestur til að skila umsögnum um tillögur að breyttum staðartíma á Íslandi rennur út eftir rúma viku. Hingað til eru flestir á því að seinka skuli klukkunni. Sumir leggja til tilraunaverkefni á Vestfjörðum eða að flýta klukkunni. 1. mars 2019 07:30