Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Agnar Már Másson skrifar 1. október 2025 21:38 Tvíburasysturnar eftir keisaraskurð. Tveimur vikum seinna voru þær sendar til Króatíu ásamt fjölskyldu sinni, þar sem óljóst er hvort þær fái vernd eða verði sendar til Rússlands, þar sem fjölskylda þeirra hefur sætt pólitískum ofsóknum. Aðsend Tveggja vikna tvíburum og tveggja ára bróður þeirra var á mánudag vísað frá Íslandi ásamt foreldrum sínum og þau send til Króatíu. Amma þeirra, frændi og frænka hafa haft alþjóðlega vernd hér á landi í nokkur ár en lögfræðingur fjölskyldunnar segir Útlendingastofnun hafa neitað að upplýsa króatísk stjórnvöld um mögulega fjölskyldusameiningu.
Flóttamennirnir Gadzhi Gadzhiev og eiginkona hans, Mariiam Taimova, voru í gær handtekin á heimili fjölskyldu þeirra á Íslandi og þau, ásamt tveggja ára syni sínum og nýfæddum tvíburadætrum, send til Króatíu, þar sem þau höfðu átt viðkomu á flótta sínum frá Dagestan í Rússlandi. „Þarna voru nýbakaðir foreldrar með tvo hvítvoðunga handteknir,“ segir Arndís Ósk Magnúsdóttir, lögfræðingur hjónanna, en Taimova þurfti að fara í keisaraskurð til þess að bera tvíburana. Musa Taimov, sonur þeirra Gadzhievs og Taimovu, í einkaflugi sem bókað var til að vísa fjölskyldunni úr landi á mánudag.Aðsend Arndís gagnrýnir meðferð stjórnvalda á málinu þar sem ekki hafi verið tekið tillit til mögulegrar fjölskyldusameiningar en fjölskylda mannsins hefur búið hér á landi í sjö ár. Að hennar sögn er alls ekki ljóst hvort fjölskyldan fái vernd í Króatíu en stjórnvöld þar hafa sætt gagnrýni fyrir að senda flóttamenn frá Kákasussvæðinu aftur til Rússlands. Fjölskyldan fékk vernd á „grundvelli sömu ofsókna“ Arndís útskýrir að Gadzhiev og Taimova, sem eru frá Dagestan, hafi komið hingað til Íslands í desember 2024 þar sem þau hafi flúið pólitískar ofsóknir af hálfu rússneskra yfirvalda en Gadzhiev var fangelsaður fyrir að úttala sig gegn stjórnvöldum þar. Feðgarnir Gadzhi Gadzhiev og Musa Taimov.Aðsend Móðir Gadzhievs og systkini eru með varanlegt dvalarleyfi á Íslandi og fengu alþjóðlega vernd 2018, einnig vegna pólitískra ofsókna. Móðir Gadzhievs tjáði sig fremur opinberlega gegn rússneskum stjórnvöldum árið 2017 þegar hún kallaði Pútín „hryðjuverkamann“ á mótmælafundi. Á þeim tíma sat Gadzhiev í fangelsi í Síberíu en hann er sagður hafa verið hnepptur í varðhald af rússnesku leyniþjónustunni (FSB). „Öll helsta fjölskylda þeirra er stödd hér á landi, bróðir Gadzievs, systir, móðir,“ heldur Arndís áfram. „Þau fá öll vernd á grundvelli sömu ofsókna og okkar umbjóðendur eru að flýja,“ bætir hún við. Ekki víst að þau fái vernd í Króatíu Þar sem þau áttu viðkomu í Króatíu og voru fingraför tekin af þeim þar mat kærunefnd útlendingamála svo að íslensk stjórnvöld bæru ekki ábyrgð á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd, þar sem Króatía hafi verið fyrsta Schengen-ríkið sem þau komu til. Króatía hefur nú vissulega samþykkt að taka við þeim en Arndís segir það ekki staðfest að þau fái alþjóðlega vernd í landinu. Hún segir enn fremur að Útlendingastofnun hafi neitað að gera króatískum stjórnvöldum viðvart um beiðni þeirra um fjölskyldusameiningu. Lögfræðingurinn bendir á að stjórnvöld verði ávallt að meta áhrifin sem brottflutningur geti haft á fjölskyldulíf flóttamannanna. „Það voru náttúrulega ótalmargir tímapunktar sem stjórnvöld hefðu getað séð við sér en gerðu það ekki,“ segir hún. „Þau gátu frestað brottflutningnum, gátu tekið tillit til fjölskyldusameiningarinnar og gátu endurtekið umsóknina á grundvelli nýrra upplýsinga,“ útskýrir hún en þær nýju upplýsingar sem hún vísar þar til eru meðal annars að heilsu Taimovu hefði farið hrakandi samhliða meðgöngunni og þannig hafi átt að veita þeim fjölskyldusameiningu á grundvelli 16. greinar Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem þeim umsækjandinn væri vegna heilsu sinnar háður fjölskyldunni á Íslandi. „Eins og málið leit út frá okkar sjónarhorni uppfyllti þetta öll þau skilyrði,“ segir Arndís. Amnesty: Hættið að senda fólk aftur til Rússlands Til eru dæmi um að Króatía synji flóttamönnum frá Norður-Kákasus um alþjóðlega vernd jafnvel þótt þeir sendi þá jafnvel aftur til Rússlands og sæti þar jafnvel pólitískum ofsóknum. Alþjóðamannréttindasamtökin Amnesty lýstu áhyggjum sínum af því í janúar 2024 að nokkur Evrópulönd, þar á meðal Króatía, vísuðu flóttamönnum frá svæðinu aftur heim. Árið 2023 bárust Króatíu ríflega átta þúsund umsóknir um alþjóðlega vernd frá Rússum en þar af voru 23 samþykktar, samkvæmt gagnagrunni AIDA.
Flóttafólk á Íslandi Flóttamenn Innflytjendamál Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Króatía Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Sjá meira