Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Bjarki Sigurðsson skrifar 24. september 2025 12:50 Saga Kjartansdóttir er verkefnisstjóri vinnustaðaeftirlits hjá ASÍ. Vísir/Steingrímur Dúi Sérfræðingur hjá ASÍ segir ljóst að rekstraraðilar naglastofa nýti sér glufu í kerfinu til að brjóta á réttindum fólks sem kemur hingað til lands til að starfa. Margt við starfsemina minni á starfshætti Quangs Lé sem lögregla hefur haft til rannsóknar í þrjú ár.
Í gær fjallaði Kveikur um rekstur snyrti- og naglastofa á höfuðborgarsvæðinu, en þeim hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Í þættinum er lögreglu og heilbrigðiseftirliti fylgt á nokkrar stofur, sem ekki höfðu starfsleyfi og enginn starfsmaður með meistarabréf. Glufa virðist í kerfinu þar sem meistarabréfs er krafist til að starfrækja snyrtistofu en snyrtistofur sækja um starfsleyfi til heilbrigðiseftirlitsins. Ekki þarf að skila inn staðfestingu á meistarabréfi í umsóknarferlinu. Það kemur svo í hlut lögreglu að hafa eftirlit með snyrtistofunum og þá kemur á daginn að fjölmargar hafa ekki slíkt meistarabréf. Í þættinum var einnig rætt við tvo starfsmenn frá Víetnam sem fengu svokallað sérfræðingaleyfi til að koma hingað til lands og starfa á stofunum. Þeir segjast hafa greitt vinnuveitanda sínum um níu miljónir króna fyrir leyfið, en sú upphæð er ekki nálægt raunkostnaði við dvalar- og atvinnuleyfi á Íslandi. Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á vinnumarkaðssviði ASÍ, segir margt við komu fólksins til landsins líkjast aðferðum Quangs Le í stærsta mansalsmáli sem lögregla hérlendis hefur haft til rannsóknar. Málið hefur verið á borði lögreglu í þrjú ár en þar er Quang Le grunaður um að hafa þegið háar upphæðir frá fólki í Víetnam og útvegað þeim atvinnuleyfi á grundvelli sérfræðikunnáttu sem fólkið hefur ekki. En á grundvelli hennar kemur fólkið til landsins. „Það sem gerist í fyrra er að Vinnumálastofnun fer að kalla eftir staðfestingu á sérfræðikunnáttunni sem mjög margir og meirihluti í þessum hópi getur ekki útvegað. Fölsuðum skilríkjum hafði verið framvísað í umsóknarferlinu. Í sumum tilvikum vissi fólk ekki af því og sá í raun aldrei þessi skírteini. Það var einhver annar sem sá um alla pappírsvinnu í umsókninni. Fólk hafi unnið langa vinnudaga, enga veikindadaga, ekkert orlof og mun lægri laun en kjarasamningar gera ráð fyrir. „Ég held að það sé alveg klárt að það var ekki skortur eða eftirspurn eftir svona mörgum erlendum sérfræðingum á þessu sviði. Ég held að það sé alveg klárt að þarna voru óprúttnir aðilar, atvinnurekendur, að nýta sér einhverja glufu.“ Í kjölfar þessara máli hafi Vinnumálastofnun bætt kerfið sem metur prófskírteini þeirra sem sækja um dvalarleyfi. „Ég veit að lögregla hefur lengi verið meðvituð um þetta og fengið margar ábendingar frá okkur og víðar. Hvar þau eru í þessum málum átta ég mig ekki á. Ég veit að það er mikið álag á þeirri deild lögreglu sem sinnir mansalsrannsóknum,“ segir Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á vinnumarkaðssviði ASÍ. Fram kemur á vef RÚV að eigendur sautján nagla- og snyrtistofa hafi verið kærðir til lögreglu ýmist fyrir skort á meistarabréfi eða brotum á útlendingalögum. Flestar eru enn starfandi.
Heilbrigðiseftirlit Lögreglumál Reykjavík Mansal Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira