Drógu vélarvana togara í land Jón Ísak Ragnarsson skrifar 19. september 2025 23:16 Björg dregur Runólf í land. Landsbjörg Björgunarskipið Björg á Rifi á Snæfellsnesi var kallað út í morgun vegna togara sem staddur var rétt norður af Snæfellsnesi en hafði misst vélarafl. Fór svo að togarinn var dreginn til hafnar í Grundarfirði og voru skipin komin þangað um þrjúleitið síðdegis.
Um korter í níu í morgun barst vaktstöð siglinga beiðni frá togaranum Runólfi, sem hafði misst vélarafl. Björgunarskipið Björg lagði úr höfn tíu mínútur yfir níu í morgun og var komin að Runólfu klukkan tíu. „Þó nokkur stærðarmunur er á þessum tveimur skipum, Björg er rétt um 15 metrar á lengd á meðan Runólfur er nánast tvöfalt lengri og talsvert þyngri. Ferð þeirra Bjargar og Runólfs gekk því rólega austur Breiðafjörð, á móti straum og NA átt en stefnan hafði verið sett á Grundarfjörð, heimahöfn Runólfs,“ segir í tilkynningu Landsbjargar. Runólfur kom til hafnar í Grundarfirði síðdegis í dag.Landsbjörg „Þó hægt gengi fyrst um sinn, gekk ferðin áfallalaust fyrir sig og um tuttugu mínútur yfir þrjú í eftirmiðdaginn voru skipin komin til hafnar á Grundarfirði. Þegar til hafnar kom tók við að koma Runólfi að bryggju, og að því loknu hélt Björg heim á Rif, þar sem hún er nú tilbúin í útkall.“ „Þetta var annað útkallið á Björg og áhöfn hennar á jafnmörgum dögum en í gærdag fór Björg í annað álíka verkefni, þegar lítill fiskibátur missti vélarafl þegar öxull brotnaði. Sá bátur var dreginn til hafnar á Rifi.“ Talsverður stærðarmunur er á skipunum en Runólfur er næstum tvöfalt lengri.Landsbjörg
Björgunarsveitir Grundarfjörður Snæfellsbær Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira