Níðstangargrín fór öfugt ofan í hestafólk og ekki bætti annállinn úr skák Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. janúar 2023 14:19 Guðni Halldórsson, formaður LH, segist hafa rætt við þá sem framkvæmdu verknaðinn í apríl í fyrra. Þau hafi viljað vekja athygli á að „þarna var verið að misþyrma og beita fólki alvarlegu ofbeldi, þar á meðal kynferðislega og bjóða börn inn í það umhverfi“. Það gleymist að þeirra sögn hversu ógeðslegt ofbeldið var og fékk að grasserast þar í mörg mörg ár. Formaður Landssambands hestamanna segir hestafólk almennt ekki geta hlegið að gríni þess efnis að kaupa eigi fallegan hest til þess eins að saga af honum hausinn. Formaðurinn tjáir sig í tilefni atriðis í Áramótaskaupinu þetta árið. Hann ítrekar áhyggjur af ofbeldi sem þrífist í starfsemi Sólsetursins. Þá er hestafólk svekkt að ekkert hafi verið fjallað um Landsmót hestamanna í íþróttaannál RÚV.
Guðni Halldórsson, formaður FH, vakti athygli á því í apríl í fyrra að níðstöng hefði verið reist nærri heimili þeirra hjóna að Skrauthólum. Hann taldi í fyrstu augljóst að níðstönginni, sem var í formi hesthöfuðs á stöng, væri beint gegn honum eftir að hafa lýst upplifun sinni af starfsemi Sólsetursins í næsta nágrenni. Níðstöng væri beint að honum vegna tengsla hans við hesta. Hann væri jú formaður landssambandsins. Degi síðar leiðrétti hann sjálfan sig og sagði ljóst að níðstönginni hefði í raun verið beint gegn starfsemi Sólsetursins og meintu andlegu og kynferðislegu ofbeldi sem ætti sér þar stað. Stofnandi Sólsetursins sagðist gruna ákveðinn hóp tengdan seiðkonu um að hafa reist níðstöngina. Hún ætlaði þó ekki að tilkynna málið til lögreglu og batt vonir við að lausn fyndist án aðkomu laganna varða. Síðan þá hefur lítið heyrst af málinu þar til meginþorri landsmanna settist við sjónvarpskjáinn á gamlárskvöld. Áramótaskaupið fór af stað og allt í einu voru hjón, leikin af Pétri Jóhanni Sigfússyni og Helgu Brögu Jónsdóttur, mætt í hesthús til að kaupa hest. Í þeim tilgangi að reisa níðstöng. Það væri eina leiðin til þess að kenna nágrönnum sínum lexíu. Almenn ánægja hefur virst vera um Áramótaskaupið en þetta atriði virðist hafa farið fyrir brjóstið á hestafólki, ef marka má formann landssambandsins. Hann sá sig knúinn til að tjá sig um málið á Facebook. Þó þau hjónin taki sig ekki mjög alvarlega og sjái spaugilegu hliðina á flestu, meðal annars umræddu atriði, þá líti þau umrætt atvik mjög alvarlegum augum. Guðni listar á Facebook fimm atriði sem hann vill koma á framfæri: Við áttum engan þátt í þessum verknaði eins og flestir vita. Það að vakna með hesthaus á priki fyrir framan húsið sitt er árás á heimili, friðhelgi og einkalíf. Við upplifðum þetta sem ofbeldi og hótun sem olli hræðslu, óöryggi, kvíða og vanlíðan á heimilinu sem enn sér ekki fyrir endann á. Verknaðinum var ekki beint gegn okkur hjónum (þó að við höfum talið svo vera í fyrstu) eða öðrum sem búa í löglegu, skráðu húsnæði á Skrauthólum heldur vorum við einfaldlega “í skotlínunni. Samkvæmt okkar upplýsingum frá þeim sem framkvæmdu verknaðinn þá snérist þetta ekki um að vera á móti trommandi hippum í sveitinni. Heldur því að af þeirra sögn að vekja athygli á að „þarna var verið að misþyrma og beita fólki alvarlegu ofbeldi, þar á meðal kynferðislega og bjóða börn inn í það umhverfi“. Það gleymist að þeirra sögn hversu ógeðslegt ofbeldið var og fékk að grasserar þar í mörg mörg ár. Grín um að verið sé að kaupa fallegan hest til að sarga af honum hausinn er líka eitthvað sem okkur hestafólki finnst flestu tæplega fyndið. Hestar hvergi sjáanlegir í íþróttaannál En það voru fleiri sjónvarpsþættir um áramótin sem fóru fyrir brjóstið á hestaáhugafólki. Þannig vakti það athygli að ekki hefði verið neitt fjallað um hestamennsku þegar íþróttaárið 2022 var gert upp í íþróttaannál RÚV. „Íþrótta annáll RÚV með neglu …Ekki sekúnda um hestamennsku … ef þú ert ekki með bolta þá greinilega stundaru ekki íþróttir,“ segir Hugrún Lilja Hilmarsdóttir hestakona í spjalli hestafólks á Facebook. Guðni formaður grípur boltann á lofti og segir hestafólk geta treyst því að hann vaði í þetta mál. „Við munum beita okkur á öllum vígstöðvum. LH samanstendur af 12.000 félagsmönnum og mikilvægt að við pössum öll upp á að vera dugleg að tala máli hestamennskunnar, vanda okkur hvernig við tölum og látum í okkur heyra.“
Áramótaskaupið Hestar Hestaíþróttir Bíó og sjónvarp Deilur á Skrauthólum Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Ummæli Ásgeirs um leigubremsu „fullkomlega óábyrg“ Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira