Loku ekki skotið fyrir sameiningu enn að mati rektors Óli Kristján Ármannsson skrifar 15. apríl 2014 08:44 LbHÍ á Hvanneyri. Meirihluti kennara og rektor LbhÍ eru fylgjandi sameiningu við HÍ, sem og háskólaráð HÍ og rektor. Fréttablaðið/Hörður
Dráttur sem orðið hefur á uppáskrift menntamálaráðuneytisins á nýja fjárhagsáætlun Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri (LbhÍ) kann að benda til þess að enn gæti komið til sameiningar skólans og Háskóla Íslands. Þetta er mat Ágústs Sigurðssonar, rektors LbhÍ. Í áætluninni, sem er til þriggja ára, eru seglin dregin saman í rekstrinum um sem nemur 70 milljónum króna á ári. Að óbreyttu segir Ágúst að skera þurfi niður 15 stöðugildi. „Ég heyri það mjög víða þar sem ég kem að menn eru enn að velta þessu fyrir sér,“ segir Ágúst. Það eigi líka við um þá þingmenn sem hafi látið sig málið varða. Honum heyrist margir þeirrar skoðunar að fara eigi leið sameiningar. „En formlega er þetta náttúrlega bara í því ferli að við bíðum eftir að fá samþykkta þessa tillögu okkar um að draga saman seglin. Við höfum hins vegar ekki fengið svar við því enn hvort áætlunin sé samþykkt eða ekki og það þykir mér benda til þess að menn vilji endurskoða þetta.“Ágúst SigurðssonFordæmin eru til Ágúst segir líka tilfinningu sína að heldur sé að draga úr mótstöðunni. „Málið þarf ekki að skoða lengi til að sjá að tækifærin liggja í sameiningunni. Tækifærin liggja ekki í óbreyttu ástandi.“ Áhyggjur þeirra sem hafa verið á móti sameiningu hafa að hluta snúist um framtíð starfsmenntanámsins við skólann, og eins af því að starfsemin minnki og sogist til Reykjavíkur. „En það er alls ekki það sem menn vilja gera, heldur þveröfugt,“ segir Ágúst og bendir á að dæmi séu um að vel hafi tekist til við að efla starfsemi og auka á landsbyggðinni, svo sem þegar skattstofurnar voru sameinaðar ríkisskattstjóra. „Ef menn gera þetta markvisst og meðvitað, þá er það hægt.“ Í byrjun mánaðarins skoruðu um þrír fjórðu akademískra starfsmanna LbhÍ á menntamálaráðherra, rektor LbhÍ og allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis að klára sameiningarferli LbhÍ og HÍ. Fyrir helgi samþykkti líka Háskólaráð HÍ ályktun þar sem eftir því var kallað að skoðuð yrðu áfram með opnum huga þau tækifæri sem kynnu að skapast með sameiningu HÍ og LbhÍ. „Háskóli Íslands leggur áherslu á að vísindastarfsemi á sviðum lífvísinda, búvísinda, matvæla- og næringarfræði, matvælaverkfræði, auðlindahagfræði, sjávarrannsókna, umhverfisfræði og landnýtingar verði efld til að skapa grundvöll fyrir sókn. Háskólaráð telur að fjármagn sem varið er til þessara málaflokka sé þjóðhagslega mjög arðbær fjárfesting, og mikilvægt að veita dreifðum kröftum í einn farveg,“ segir í ályktuninni.Kristín IngólfsdóttirVonbrigði segir rektor HÍ Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, ræðir líka sameininguna í nýjasta tölublaði Stúdentablaðsins. „Það veldur mér gríðarlegum vonbrigðum ef þetta fer eins og á horfir að það verði ekki úr þessu vegna andstöðu sveitarfélagsins og forystu bændasamtakanna. Ég tel okkur Íslendinga vera að missa af miklu sóknarfæri fyrir báða skólana og samfélagið í heild,“ segir hún þar og bendir á mikilvægi þeirra greina sem tengjast matvælaframleiðslu. „Landbúnaður er að þróast hratt sem þekkingargrein og því fylgja auknar kröfur til náms. Það eru margar spennandi tengingar milli skólanna og ég held að saman gætum við gert mjög góða hluti, ekki síst vegna þess að ráðherra hefur kynnt að slíkri sameiningu muni fylgja fjármunir til uppbyggingar á Hvanneyri til styrkingar á þessum greinum.“ Í grein sem kennararnir við LbhÍ sem skoruðu á ráðherra rituðu í Morgunblaðið fyrir helgi segjast þeir líka telja að „landbúnaðarvísindi og tengdar greinar eigi ekki að vera í einhverju sérhólfi“ heldur sæmi þeim að vera við hlið annarra mikilvægra fræðigreina. „Þetta er líka sú leið sem helstu samstarfsstofnanir okkar í nágrannalöndunum hafa fetað á síðustu árum,“ segir í greininni. „Sjálfskipaðir umsagnaraðilar Borgarbyggðar og Bændasamtaka Íslands hafa án faglegrar röksemdafærslu sett sig gegn sameiningaráformum.“ Fordómar og þröngsýni Starfsfólkið segist í greininni hafa haldið sig til hlés en að nú sé mælirinn fullur. „Við teljum okkur vera í betri aðstöðu til að meta faglega stöðu okkar verkefna umfram hina sjálfskipuðu og óumbeðnu „verndara“. Mikill meirihluti starfsmanna stofnunarinnar hefur nú lýst því yfir að hann styðji áform rektors og menntamálaráðherra.“ Þótt samdráttur opinberra verkefna á landsbyggðinni sé vissulega almennt áhyggjuefni segja starfsmennirnir það ekki geta verið meginrökin þegar komi að sameiningu skólanna. „Grunnhugmynd sameiningar felst í að efla sérstaklega starfsstöðvar LbhÍ á Hvanneyri og Reykjum.“ Starfsmenn Lbhí segjast mótmæla því að „stefnumörkun um framtíð LbhÍ sé rekin með hræðsluáróðri, fordómum, þröngsýni og almennri vanþekkingu á faglegum forsendum háskólarekstrar.“
Fréttaskýringar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira