Fréttir

Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Ós­eyri

Efnalekinn í fiskvinnslu Hnýfils á Óseyri á Akureyri orsakaðist af því að stíflueyðir sem hellt var í niðurfall í morgun blandaðist við þrifaefni sem notað var á gólfin síðdegis með þeim afleiðingum að klórgas myndaðist. Slökkvilið segir störf hafa gengið vel á vettvangi.

Innlent

Hélt á myndum af skóla­börnum og sakaði Banda­ríkin um hryðju­verk

Forseti Írans sakaði Bandaríkin um hryðjuverk í ræðu sinni fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og sagði Írani aldrei myndu beygja sig og bugta fyrir Bandaríkjunum. Þá hélt hann á myndum af hinum látna leiðtoga Ayatollah Khameinei sem og af látnum almennum borgurum. Á sama tíma lýsti hann Írani opna fyrir viðræðum en sendinefnd Bandaríkjanna yfirgaf salinn.

Erlent

Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu

Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt.

Innlent

Þúsundir barna bíða mánuðum saman

Yfir 2500 börn hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Nýjustu tölur um biðlista sýna að staðan hefur víða versnað. Þá fjölgar börnum sem eru viðriðin ofbeldis- og kynferðisbrotamál.

Innlent

„Að mínu mati fyrsta al­vöru haustlægðin“

Siggi stormur segir að nú fari hver að verða síðastur til þess að binda niður trampolínið í garðinum en að hans sögn er von á fyrstu alvöru haustlægðinni á morgun. Gular veðurviðvaranir verða í gildi á morgun á Suðurlandi, Vestfjörðum, Austfjörðum, Miðhálendi og á Suðausturlandi.

Innlent

Quang Lé frjáls sinna ferða

Quang Lé er í fyrsta sinn í tvö og hálft ár frjáls sinna ferða eftir að lögregla ákvað að fara ekki fram á framlengt farbann yfir honum. Hann er grunaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi.

Innlent

„Grafalvarlegt á­stand sem skapast“

Verkfallsaðgerðir flugvirkja höfðu áhrif á um sex þúsund manns að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair. Hann biður farþega afsökunar og segist létt yfir því að verkfalli hafi verið aflýst. Grafalvarlegt ástand skapist þegar flugtengingar við landið rofni að miklu leyti.

Innlent

Dag­ný Ósk látin

Dagný Ósk Vestmann er látin þrjátíu og átta ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Dagný opnaði sig um veikindin í viðtali á Vísi um helgina þar sem hún hvatti fólk til þess að staldra við og finna gleðina í litlu hlutunum í lífinu. Hún lætur eftir sig eiginmann og tvö börn.

Innlent

Polo einn kröftugasti felli­bylur sögunnar

Polo stefnir í að verða einhver kröftugasti fellibylur austanverðs Kyrrahafsins í áratugi. Líklegara er að fellibylurinn muni fara nærri vesturströnd Mexíkó en hann á ekki að ganga þar á land. Þrátt fyrir það er búist við miklum vindum, úrkomu og flóðum, bæði sjávarflóðum og skyndiflóðum og aurskriðum.

Erlent

Segja að­gengi að heimili for­setans for­réttindi en ekki rétt

Embættismenn innan ríkisstjórnar Donalds Trump segja það vera „forréttindi“ fyrir fjölmiðla að fá aðgang að Hvíta húsinu. Starfsmenn CNN, MS NOW og Politico hafi brotið gegn reglum og viðmiðum um siðprýði og þess vegna hafi þeim verið meinaður aðgangur að Hvíta húsinu.

Erlent

Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður

Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.

Innlent

Bein út­sending: Heim­koman ekki eins auð­veld fyrir alla

Húsnæðis- og aðgengishópur ÖBÍ réttindasamtaka halda í dag málþing um fjölbreytt aðgengi fatlaðs fólks að húsnæði í dag. Þar munu heyrast frásagnir fatlaðs fólks úr ólíkum áttum af rýrur húsnæðisframboði, ósveigjanlegu kerfi, aðgengishindrunum og skorti á stuðningi til viðeigandi aðlögunar.

Innlent

Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta

„Ég er mjög ánægður og stoltur af samningsaðilum að hafa komist að þessari niðurstöðu,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, um samkomulag Flugvirkjafélags Íslands við Icelandair um að aflýsa verkfallsaðgerðum sem hófust í nótt. Til stóð að setja lög á verkfallið en hann segir þó ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta.

Innlent

Skamm­líft verk­fall og um­fangs­mikið fíkni­efna­mál

Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair hafa komist að samkomulagi um aflýsa verkfallsaðgerðum flugvirkja félagsins sem hófust á miðnætti. Þetta er gert í því skyni að forða frekara tjóni fyrir fyrirtækið. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Innlent

For­eldrar geti nú stillt út­lit og falið hvatningu í Læsi

Stofnendur Læsis hafa nú breytt stillingum í forritinu þannig að foreldrar geta falið hvatningu. Málfríður Bjarnadóttir, einn stofnandi Læsis-smáforritsins, sem hefur verið í umræðu síðustu daga, segir umræðuna hafa tekið á. Hún hafi, ásamt öðrum stofnendum, búið forritið til því hún brenni fyrir skólaþróun. Þau hafi unnið að forritinu á kvöldin og um helgar, meðfram fullu starfi.

Innlent

Fögnuður varð að fjölda­morði

Að minnsta kosti ellefu voru skotnir til bana þegar þrír árásarmenn ruddust inn í samkvæmi í Suður-Afríku í gærkvöldi. Þrír eru særðir en ólétt kona var meðal þeirra sem dóu í árásinni. Lögreglan segir að meðal hinna látnu séu menn sem voru þekktir af lögreglu og viðloðnir glæpastarfsemi.

Erlent