Kjaraviðræður 2023-25

Fréttamynd

Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun

Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Fram­lengja samninga út næsta ár

Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Segja boltann hjá stjórn­völdum

Á meðan fulltrúar verkalýðsfélaga bíða eftir að Samtök atvinnulífsins mæti á sinn fund bíða fulltrúar SA eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri SA segir deiluna stranda á nýju forsenduákvæði.

Innlent
Fréttamynd

Bíði og bíði eftir Bjarna

Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13.

Innlent
Fréttamynd

Af­gerandi niður­staða um að slíta kjara­samningum

Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 

Innlent
Fréttamynd

Fengu heimild til þess að segja upp kjara­samningum

Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út.

Innlent
Fréttamynd

Á­kveða í kvöld hvort kjara­samningum verði sagt upp

Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Krónan frystir verð til ára­móta

Frá og með deginum í dag frystir Krónan verð á 647 vörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verðfrystingin stendur til og með 31. desember 2026.

Neytendur
Fréttamynd

Vill að ríkissátta­semjari fái auknar vald­heimildir í kjara­deilu

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokks, vill að embætti ríkissáttasemjara fái auknar valdheimildir til að stíga inn í kjarabaráttu, til dæmis með því að fresta verkföllum. Hún telur vilja á Alþingi fyrir því. Hún segir vinnumarkaðsmódelið ekki ganga upp og útflutningsgreinar eigi að leiða launaþróun, ekki opinberi geirinn. Það verði að gera breytingar á módelinu eigi lífskjör að haldast góð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Út­litið ekki allt of gott í kjara­deilu flug­virkja

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“

VR fundar með Samtökum atvinnulífsins í dag vegna forsendubrests kjarasamninga. Rúmur mánuður er þar til stéttarfélög geta sagt lausum samningum. Formaður VR segir þurfa aðgerðir og samtal núna, hún vilji ekki endurnýtt loforð. Hún segir VR vilja hærri laun og fleiri frídaga.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sé lýð­ræðis­legt að halda for­manni Eflingar í myrkrinu

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir undarlegt að hún sé ekki partur af samtali stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðsforystu um viðbrögð við verðbólgu og brostnum forsendum kjarasamninga. Það séu ekki lýðræðisleg vinnubrögð að halda henni utan samtalsins og hún vonist til þess að vera tekin inn í það samtal í vikunni áður en mögulegar aðgerðir verði kynntar.

Innlent
Fréttamynd

Vaxta­hækkun sé röng og illa tíma­sett

Forseti Alþýðusambands Íslands segir vaxtahækkun við núverandi aðstæður vera ranga, illa tímasetta og leggja aukna byrði á skuldsett heimili landsins. Allt bendi til þess að forsendur kjarasamninga frá árinu 2024 bresti.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Klukkan tifar“

„Þeir geta ekki búið til forsendur kjarasamninga eftir á eins og þeir vilja hafa þær,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR. Stjórn félagsins hafi metið stöðuna svo að uppsögn kjarasamninga verði óhjákvæmileg náist ekki fram breytingar á næstu vikum.

Innlent
Fréttamynd

„Þessu verður ekki breytt af Seðla­bankanum einum“

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir nauðsynlegt að það náist sátt á vinnumarkaði um launasvigrúm og launaskrið. Hann sé bjartsýnn fyrir haustinu þó svo að útlit sé fyrir að verðbólga verði hærri en forsenduákvæði kjarasamninga geri ráð fyrir og þeir geti því losnað. Hann segir það áhyggjuefni að það taki  ekki allir stöðunni með sömu alvöru. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Er til­búin að blása í herlúðra í haust

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist ganga lausnamiðuð inn í þær viðræður sem fram muni fara næstu vikur. Það geti þó farið svo að segja þurfi upp kjarasamningum í haust. Hún segist persónulega andsnúin inngöngu Íslands í ESB þar sem aðild sé andstæð hagsmunum verkafólks. 

Innlent
Fréttamynd

Rekstur borgarinnar nei­kvæður um 5,3 milljarða í fyrra

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta ársreiknings Reykjavíkurborgar er jákvæð um átta milljarða króna en niðurstaðan af rekstri A-hluta var neikvæð um ríflega fimm milljarða. Helsta skýring neikvæðrar niðurstöðu er sögð mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga auk þess sem mikil verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiddu til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gildandi kjara­samningar á­vísun á áfram­haldandi verð­bólgu

Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins segir að ef verkalýðsforystan vilji raunverulega hafa áhrif á þróun verðbólgu geti hún samið um lægri launalækkanir á samningstímabili kjarasamninganna. Hann segir gildandi kjarasamninga ávísun á áframhaldandi verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning

Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogi segir um mistök í stjórnsýslunni að ræða og lækkunin sem ákveðin var í apríl í fyrra hafi ekki komist til framkvæmda. En um leið og þetta uppgötvaðist var haft samband við bæjarfulltrúa og þeim tjáð að þeir hafi fengið ofreiknuð laun eða þóknun og þurfi því að endurgreiða þóknunina.

Innlent
Fréttamynd

Alltaf til í slaginn en vonar að samningar haldi

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir mikla stéttskiptingu innan verkalýðshreyfingarinnar og stöðu verkafólks erfiða. Hún segist vona að kjarasamningar haldi í haust þegar forsenduákvæði verða endurskoðuð en Efling komi alltaf tilbúin til leiks og hún sé tilbúin í slaginn.

Innlent
Fréttamynd

„Ég hafði ekki í­myndunar­aflið í að sjá þetta fyrir mér“

„Þetta eru áhugaverðar fréttir,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir um þau tíðindi morgunsins að Bjarni Benediktsson sé nú orðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann mun þá væntanlega leiða kjaraviðræður fyrir hönd SA og hitta þar fyrir, ásamt öðrum, Sólveigu Önnu sem hefur gagnrýnt Bjarna harðlega.

Innlent
Fréttamynd

Halla slær á putta handboltahetjunnar

Halla Gunnarsdóttir formaður VR slær góðlátlega á putta Viktors Gísla Hallgrímssonar markmanns íslenska landsliðsins sem vildi fá alla til Malmö þar sem íslenska liðið leikur nú í undanriðli. Fyrsti leikurinn er á morgun og Viktor taldi ekki mikið mál að fólk nýtti sér veikindadagana til að skjótast út.

Innlent
Fréttamynd

Skýrsla ráð­herra svari ekki mikil­vægum spurningum um brúun bilsins

Samtök atvinnulífsins, SA, telja nýja skýrslu aðgerðahóps forsætisráðherra um brúun umönnunarbilsins ekki svara mikilvægum spurningum sem varða helstu ástæður þess að sveitarfélögum hefur ekki tekist að veita leikskólaþjónustu að fæðingarorlofi loknu þrátt fyrir vilja og yfirlýsingar þar um. Því sé ekki tímabært að ræða lögfestingu leikskólastigsins. 

Innlent
Fréttamynd

Óboðlegt að stórir aðilar auki arð­semi í krafti fá­keppni

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur ákvörðun peningastefnunefndar að lækka stýrivexti skref í rétta átt nú þegar skýr merki eru um kólnun í hagkerfinu. Í tilkynningu segir að peningalegt aðhald þrengi nú þegar verulega að skuldsettum heimilum og geti ýtt undir hraðari kólnun hagkerfisins og stuðlað að auknu atvinnuleysi. Miðstjórn minnir í tilkynningu á skuldbindingar atvinnulífs að halda aftur af verðhækkunum og loforð stjórnvalda um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kennarar fara með kjara­deilu fyrir Félags­dóm

Félagar í Kennarasambandi Íslands hafa ekki fengið launahækkun samkvæmt ákvæði um launatöfluauka í kjarasamningi sem undirritaður var í nóvember í fyrra. Formaður Kennarasambandsins telur að kennarar eigi fullan rétt á hækkuninni og segir deiluna snúast um orðaleiki, en málinu hefur verið vísað til Félagsdóms.

Innlent