Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Lagt er til að flytja starfsemi ráðhúss Húnaþings vestra tímabundið úr ráðhúsinu og yfir í Félagsheimili Hvammstanga. Ný skýrsla sýnir fram á alvarlegt ástand loftgæða í húsinu. Innlent 4.10.2026 15:41
Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Vatnsstrókur sem myndaðist í hvassviðrinu í Miðfirði í dag vakti athygli íbúa. Einn þeirra fangaði fyrirbærið á filmu. Innlent 24.9.2026 17:28
Núll sem heldur Við í Húnaþingi vestra stöndum vörð um okkar íbúa og hækkum hvorki gjaldskrár né fasteignagjöld á næsta ári. Leikskólagjöld standa í stað. Hitaveitan. Tónlistarskólinn. Allt. Skoðun 23.9.2026 08:47
Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Brúðulistahátíðin HIP-fest (Hvammstangi international puppetry festival) var haldin í fimmta sinn dagana 26., 27. og 28. júní en þátttakendur í ár voru frá jafn mörgum mismunandi löndum. Handbendi brúðuleikhús stendur fyrir hátíðinni en gestir ferðuðust sumir víða að, þar á meðal frá Havaí, Kína og Finnlandi. Menning 6. júlí 2026 10:02
Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. Innlent 2. júlí 2026 09:12
Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Á sveitabæ einum á Vatnsnesi er búið að breyta gamla súrheysturninum í gistirými fyrir ferðamenn. Bændurnir segja gestina dolfallna. Innlent 25. júní 2026 23:23
Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk Undirbúningur er hafinn að því að stórbæta aðstöðu ferðamanna við klettinn Hvítserk, helsta aðdráttarafl Húnaþings. Reisa á þjónustuhús, leggja göngustíga og smíða tröppur og verða bílastæðagjöld meðal annars nýtt til að standa undir kostnaði. Innlent 24. júní 2026 09:10
Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Miklar kvartanir vegna verra símasambands heyrast frá Norðurlandi eftir að slökkt var á gömlu farsímakerfunum. Oddviti Húnabyggðar segir brýnt að þétta netið með því að fjölga nýjum sendum. Innlent 18. júní 2026 22:44
Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Þjóðvegasjoppan íslenska er loksins að fá sinn sess í menningarsögu landsins. Á Verslunarminjasafninu á Hvammstanga er heil sjoppa að bætast í flokk safngripa og kannski ein sú merkasta á landinu. Innlent 9. júní 2026 23:40
Lokatölur í Húnaþingi vestra: N-listinn skákaði Framsókn N-listinn bætir við sig bæjarfulltrúa og er stærstur í Húnaþingi vestra samkvæmt lokatölum úr sveitarstjórnarkosningum. Framsókn tapar einum fulltrúa og er ekki lengur stærsti flokkurinn í sveitarfélaginu. Sjálfstæðisflokkurinn er minnstur. Innlent 16. maí 2026 23:59
Oddvitaáskorunin: Þjóðkirkjan sé tímaskekkja Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 9. maí 2026 13:00
Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Hátt í fimm hundrað manns gistu í fjöldahjálparstöðvum, gistiheimilum og hótelum í nótt vegna lokunar á Holtavörðuheiði. Búið er að opna veginn og lögregla segir fólk geta komið sér af stað. Mikilvægt sé þó að gefa sér tíma. Innlent 16. mars 2026 08:57
„Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, segir vel hafa gengið í fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins í Reykjaskóla í Hrútafirði og á Blönduósi í gær. Um 220 leituðu skjóls í stöðvunum. Innlent 16. mars 2026 07:39
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum. Veður 16. mars 2026 07:22
Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðvesturlandi í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju. Innlent 15. mars 2026 23:07
Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lokað þjóðveginum frá Blöndósi suður yfir Holtavörðuheiði og biðlar til vegfarenda að halda sig heima. Fjöldahjálparstöð verði opnuð í íþróttahúsinu á Blönduósi. Ólíklegt þykir að vegirnir opni aftur í kvöld. Veður 15. mars 2026 19:44
„Ég var skelfingu lostinn“ Franskur maður óttaðist um líf sitt í gær þegar að lítið snjóflóð hafnaði á ökutæki hans. Hann missti stjórn á ökutækinu og segir mikla lukku að ekki hafi farið verr. Búið er að opna Holtavörðuheiði aftur en flytja þurfti 25 manns þaðan í gær og skilja ökutæki eftir. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Reykjaskóla vegna þessa. Innlent 13. mars 2026 12:16
Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Björgunarsveitir á Norðurlandi aðstoðuðu 25 manns niður af Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Meirihlutinn fékk gistingu í Reykjaskóla. Björgunarsveitir fóru aftur á heiðina í morgun til að losa bílana sem þar sátu fastir, alls festust fimm fólksbílar og einn flutningabíll í óveðri í gær. Innlent 13. mars 2026 10:56
Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Einn var fluttur slasaður á Landspítala nú síðdegis eftir bílveltu í Hrútafirði á Þjóðvegi 1 gegnt Borðeyri. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan 16:40 á efsta forgangi vegna slyssins, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Innlent 1. janúar 2026 18:27
Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra var hafnað í íbúakosningu sem fór fram 28. nóvember – 13. desember 2025. Innlent 13. desember 2025 19:07
Kjarninn og hismið Kynningarfundir um tillögu að sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar hafa nú verið haldnir bæði á Hvammstanga og í Búðardal auk íbúafunda á báðum stöðum í apríl og október. Skoðun 25. nóvember 2025 13:46
Allir bílarnir ónýtir og mildi að ekki fór verr Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðvesturlandi segir mildi að ekki hafi farið verr þegar að tvö umferðarslys urðu með um fimmtán mínútna millibili á svæðinu í gær. Aksturskilyrði versnuðu mjög skyndilega. Vegurinn hafði ekki verið hálkuvarinn. Innlent 24. nóvember 2025 12:02
Þrír fluttir með þyrlu en enginn í lífshættu eftir tvo árekstra á Norðvesturlandi Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir að tvö umferðarslys urðu á svipuðum tíma á Norðurlandi vestra síðdegis í dag, við Blönduós annars vegar og í Miðfirði hins vegar. Allir hinna slösuðu eru komnir undir læknishendur en enginn er talinn í lífshættu, að sögn viðbragðsaðila. Innlent 23. nóvember 2025 22:09
Árekstur við Laugarbakka: „Glerhálka og svartaþoka“ Löng röð hefur myndast eftir að pallbíll og jepplingur skullu saman á þjóðveginum í grennd við Laugarbakka í Miðfirði. Glerhált er og svartaþoka að sögn viðbragðsaðila en engar upplýsingar liggja fyrir um ástand farþega. Innlent 23. nóvember 2025 17:09