„Ég var skelfingu lostinn“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 13. mars 2026 12:16 Davíð Pierre Milesi Gaches hefur búið hér á landi síðan 2020. vísir/aðsend Franskur maður óttaðist um líf sitt í gær þegar að lítið snjóflóð hafnaði á ökutæki hans. Hann missti stjórn á ökutækinu og segir mikla lukku að ekki hafi farið verr. Búið er að opna Holtavörðuheiði aftur en flytja þurfti 25 manns þaðan í gær og skilja ökutæki eftir. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Reykjaskóla vegna þessa.
Snjóflóðahætta er enn í gildi á norðanverðum Vestfjörðum en þó nokkur snjóflóð hafa fallið þar síðan í gær. Óvissustig ríkir á Tröllaskaga og í Eyjafirði. Ófært er um Flateyrarveg og Súðavíkurhlíð og þá var Holtavörðuheiði einnig lokað í gær en hún var opnuð rétt fyrir hádegi eftir að búið að var að fjarlægja ökutæki sem festust þar í gær. Ólíver Hilmarsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að verulega muni draga úr veðrinu á Vestfjörðum í dag. Hann bendir á að ekki sé snjóflóðahætta við byggð. Mikilvægt sé að hafa varann á undir bröttum hlíðum. „Það hafa verið að falla flóð á vegi við Súðavíkurhlíð. Það féll á vegrás á Eyrarhlíð á Vestfjörðum. Það er óvissustig núna á Ólafsfjarðarvegi og Siglufjarðarvegi. Það er verið að vinna að opnun á Flateyrarvegi. Súðavíkurhlíð er enn þá lokuð vegna snjóflóðahættu. Það má reikna með að hættan aukist á Siglufjarðarvegi í dag og hann muni lokast.“ Óttaðist um líf sitt Einn af þeim sem lentu í hremmingum í gær vegna færðar er Davíð Pierre Milesi Gaches sem fékk lítið snjóflóð á hlið ökutækis síns á leið sinni frá Ísafirði til Súðavíkur rétt áður en veginum var lokað í gær. Hann hafnaði síðan ofan á stærra snjóflóði sem hafði þverað veginn rétt áður. „Skyndilega finn ég fyrir miklum þrýstingi á hægri hlið ökutækisins og mér er ýtt til hliðar í átt að hafinu. Það býst auðvitað enginn við þessu. Eftir það missti ég stjórn á bílnum en reyndi að halda mér á veginum. Þá hafnaði ég ofan á öðru snjóflóði. Ég veit ekki hvort snjórinn hafi verið á veginum fyrir eða hvort snjóflóðið hafi fallið einmitt á þessum tíma. Ég vissi ekkert hvað var að gerast, hvorki hvað sneri upp né niður.“ Davíð keyrir reglulega um þessar slóðir þar sem hann vinnur við að rannsaka fuglalíf og seli á svæðinu en hann vinnur jafnframt sem sundlaugarvörður á Súðavík þar sem hann býr. Hann hefur þó aldrei óttast um líf sitt líkt og í gær. „Ef þú ferð aðeins til vinstri endarðu á grjótinu eða ofan í sjó. Það er ekki mikið svigrúm þarna til að halda sér öruggum ef eitthvað kemur upp á. Þú sérð meira að segja ekki hvar vegurinn er í þessum aðstæðum. Í augnablikinu leið mér ágætlega vegna adrenalíns og spennu. Ég var skelfingu lostinn yfir því að annar bíll gæti keyrt á minn, því ég var ekki viss um að ég væri nógu sýnilegur. En ég áttaði mig fyrst á þessu þegar ég kom heim,“ segir Davíð sem tekur fram að lukkulega hafi hann getað haft samband við lögregluna og stuttu síðar gat Vegagerðin og björgunarsveitin hjálpað honum að komast leiðar sinnar. „Björgunarsveitin í Súðavík kom fljótt á staðinn og tókst að draga bílinn minn út og hreinsa veginn. Hins vegar voru margir bílar þegar að bíða eftir að keyra til Ísafjarðar. Hvað hefði gerst með þessa röð bíla ef fleiri snjóflóð hefðu fallið? Ég hef aldrei verið svona nálægt því að sjá ljósagöng, en ég myndi miklu frekar vilja sjá göng á milli Súðavíkur og Ísafjarðar,“ segir hann í Facebook-færslu um atvikið. Nóg um að vera hjá björgunarsveitum Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að nóg hafi verið um verkefni hjá þeim í gær og í morgun. Opna þurfti fjöldahjálparstöð í Reykjaskóla norðan við Holtavörðuheiði í gær þar sem fjölmargir bílar festust. „Það var ansi mikill hvellur á Holtavörðuheiðinni þar sem 24 ferðalangar voru fluttir norður af heiðinni, einn suður af. Þessir 24 fóru í Reykjaskóla þar sem tekið var á móti þeim með kostum og kynjum og uppbúin rúm biðu þeirra.“
Veður Færð á vegum Húnaþing vestra Björgunarsveitir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira