Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar 26. október 2026 15:01 Barn sem hefur búið við ofbeldi getur orðið viðfangsefni barnaverndar, sýslumanns og dómstóla samtímis. Hver stofnun starfar samkvæmt eigin lögum og verklagi, en reynslu barnsins verður ekki skipt upp með sama hætti. Þvingandi stjórnun getur haldið áfram eftir sambúðarslit með málarekstri og kröfum um upplýsingar sem viðhalda ótta og óvissu. Þegar stofnanir afmarka viðfangsefni sín án þess að greina heildarmynstur ofbeldisins er hætt við að verndarskyldan víki fyrir formlegri verkaskiptingu. Hér reynir jafnt á faglegt mat og lögfræðilega þekkingu. Viðbrögð foreldris sem leitast við að vernda barn sitt geta verið túlkuð sem samstarfsleysi, á meðan ítrekaður málarekstur hins foreldrisins er metinn sem eðlileg hagsmunagæsla. Án skilnings á valdaójafnvægi og þvingandi stjórnun getur athyglin færst frá hegðuninni sem veldur óöryggi yfir á viðbrögð þess sem reynir að bregðast við henni. Viðvaranir sem hafa legið fyrir árum saman Í úttekt GREVIO, sérfræðinganefndar Evrópuráðsins, árið 2022 komu fram alvarlegar athugasemdir við meðferð forsjár- og umgengnismála á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum sem nefndinni bárust var hætta á að foreldri sem greindi frá heimilisofbeldi eða mætti ekki á sameiginlegan fund af öryggisástæðum væri metið ósamvinnuþýtt. Nefndin varaði einnig við notkun hugmynda um foreldraútilokun án fullnægjandi skilnings á ofbeldi eftir sambúðarslit. GREVIO lýsti jafnframt áberandi skorti á sérhæfðri þekkingu meðal sérfræðinga barnaverndar á áhrifum líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis á börn. Tilmælin beindust að fagfólki í barnavernd, hjá sýslumönnum og innan dómstóla: Ofbeldissaga þyrfti að hafa raunverulegt vægi við áhættumat og úrlausn mála, með öryggi barna og þolenda í forgangi. Innlendar ábendingar höfðu einnig borist stjórnvöldum. Í umsögn til Alþingis í febrúar 2022 bentu samtökin Líf án ofbeldis á að sýslumannsembættin væru ekki tilgreind í fyrirhuguðu samstarfi stjórnvalda um upplýsingamiðlun í heimilisofbeldismálum. Samtökin kölluðu eftir skýrari ábyrgð og samhæfingu milli kerfa og ítrekuðu í desember 2023 kröfur um endurskoðun lagaumhverfis forsjár- og umgengnismála. Gagnrýnin laut þannig ekki aðeins að einstökum úrlausnum, heldur forsendum þess að lögbundin vernd skilaði sér í framkvæmd. Skráningarskortur takmarkar eftirlit Árið 2022 óskaði Jóhann Páll Jóhannsson ásamt öðrum þingmönnum eftir skýrslu um áhrif heimilisofbeldis við úrskurði um umgengni. Skýrsla dómsmálaráðherra frá 2024 sýndi að málsástæður, þar á meðal ofbeldi, voru almennt ekki skráðar sérstaklega í málaskrárkerfum sýslumanna og ráðuneytisins. Því þurfti að lesa úrskurðina sjálfa til að greina mál þar sem ofbeldi kom við sögu. Af 1.205 umgengnisúrskurðum frá árunum 2000–2021 komu fram ásakanir um ofbeldi í 343 málum, hvort sem þær voru studdar gögnum eða ekki. Yfirferðin tók ekki til allra undirliggjandi málsgagna og niðurstöðurnar segja því hvorki til um heildarumfang ofbeldis né hvort það hafi verið staðfest. Þær sýna hins vegar takmarkanir á því að rannsaka með samræmdum hætti hvernig ofbeldissaga er metin við ákvarðanatöku. Þetta er meira en skráningartæknilegt álitaefni. Án samanburðarhæfra gagna veikjast forsendur þess að greina mynstur, meta samræmi í úrlausnum og veita stofnunum sjálfstætt aðhald vegna eigin framkvæmdar. Upplýsingagjöf getur aukið hættu Hér birtist önnur mótsögn. Þolendur eru hvattir til að greina frá ofbeldi og leggja fram gögn, en viðkvæmar upplýsingar geta í kjölfarið borist þeim einstaklingi sem þeir óttast. Upplýsingaréttur og andmælaréttur eru grundvallarforsendur réttlátrar málsmeðferðar. Í málum sem einkennast af þvingandi stjórnun getur afhending upplýsinga um ótta, öryggisráðstafanir, stuðningsnet eða frásagnir barna þó skapað hættu á frekari þrýstingi, hótunum eða hefndaraðgerðum. Þolandi getur því staðið frammi fyrir því að þurfa að upplýsa stjórnvöld um hættuna án þess að vita með vissu hvernig upplýsingunum verður miðlað. Samkvæmt 45. gr. barnaverndarlaga er heimilt, að uppfylltum skilyrðum og með rökstuddum úrskurði, að takmarka aðgang að tilteknum gögnum vegna hagsmuna barns. Heimildin nær ekki sjálfkrafa til annarra stjórnvalda en undirstrikar nauðsyn þess að meta öryggisáhættu samhliða upplýsingarétti, fremur en að líta á miðlun gagna sem áhættulaust formsatriði. Verndarskylda sem nær yfir stofnanamörk Barnavernd rannsakar aðstæður barns og metur verndarþörf þess. Sýslumaður leysir úr umgengniságreiningi og dómstólar fjalla meðal annars um forsjá og lögheimili. Ábyrgð þessara aðila er ekki sú sama, en enginn þeirra getur metið hagsmuni barns án þess að taka viðeigandi tillit til fyrirliggjandi upplýsinga um ofbeldi. Réttur barns til að tjá eigin reynslu verður jafnframt að hafa raunverulegt vægi, óháð afstöðu foreldranna. Í október 2026 kallaði Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, eftir sérstöku ferli utan sáttameðferðar þegar ofbeldi kemur við sögu og áhættumati sem taki mið af öryggi barna og þolenda. Sambærilegt markmið kemur fram í nýrri opinberri stefnumótun. Í landsáætlun stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi 2026–2030 er gert ráð fyrir endurskoðun barnalaga og hjúskaparlaga með það meðal annars að markmiði að þolendur þurfi ekki að gangast undir sáttameðferð með gerendum. Aðgerðin er þó enn skráð á byrjunarstigi og er áætluð árin 2026–2028. Það er því rétt að viðurkenna áformin en jafnframt krefjast þess að framgangur þeirra sé sýnilegur og metinn út frá raunverulegri vernd. Frá formlegri málsmeðferð til raunverulegrar ábyrgðar Ítrekaðar viðvaranir og opinberar skýrslur kalla á meira en yfirlýsingar um aukna vitund. Nauðsynlegt er að sýna fram á hvernig sérþekking, samræmt áhættumat, örugg upplýsingameðferð og samstarf stofnana birtast í ákvörðunum. Óháð úttekt á stjórnsýsluframkvæmd barnaverndar og sýslumanna, ásamt kerfisbundinni rannsókn á mati á ofbeldi í dómsúrlausnum, myndi styrkja þann þekkingargrundvöll. Barn á ekki að bera afleiðingar þess að stofnanir greini ekki heildarmynd ofbeldis. Þolandi á heldur ekki að standa frammi fyrir því að upplýsingagjöf í þágu verndar geti orðið nýtt tæki til stjórnunar án þess að áhættan sé metin og viðeigandi ráðstafanir gerðar. Ábyrgð stjórnvalda verður ekki tæmd með því að fylgja formlegu verklagi. Hún felst einnig í því að geta sýnt fram á að framkvæmdin nái þeim verndarmarkmiðum sem lögunum er ætlað að tryggja. Höfundur er á lokaári í meistaranámi í félagsráðgjöf til starfsréttinda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun