Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Páll Haraldsson, Kristín Jóhannesdóttir, Margrét Sverrisdóttir, Snædís Valsdóttir og Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifa 26. október 2026 06:31 Skólafólk, foreldrar og samfélag standa nú frammi fyrir stórum spurningum um stjórnsýslu menntamála. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur hafið frumkvæðisathugun á ákvörðun og innleiðingu mennta- og barnamálaráðherra á breyttu námsmatskerfi úr bókstöfum yfir í tölustafi fyrir nemendur í 10. bekk vorið 2027. Okkur undirrituðum finnst traustvekjandi að Alþingi vilji skoða feril málsins og við viljum árétta að ekki er heppilegt að kasta til hendinni við breytingar á afmörkuðum þáttum námskrár. Í október 2024 lauk endurskoðun á greinasviði aðalnámskrá grunnskóla. Í upphafi árs 2026 hófst metnaðarfull vinna á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) við að aðstoða skóla við innleiðingu á endurskoðaðri aðalnámskrá. Sérfræðingar, stjórnendur og kennarar sátu vikulega fundi í margar vikur til að stilla saman strengi og byggja upp sameiginlegan skilning. Í lok skólaárs 2025 – 2026 voru skólar tilbúnir að taka verkefnið fastari tökum og komnir með drög að kennsluáætlunum og skólanámskrá fyrir skólaárið 2026–2027. Sumarið 2026 var þeirri faglegu vinnu hins vegar kollvarpað með fyrirvaralausri ákvörðun ráðherra sem fékk óljósa kynningu vorið 2026 og ekki tilkynnt fyrr en 7. ágúst: nemendur í 10. bekk skyldu útskrifast vorið 2027 með einkunnir á talnakvarðanum 4-10 í stað bókstafa. Innleiðingartími breytinganna er vonandi einsdæmi. Þess má geta að í Svíþjóð var fyrir nokkru tekin ákvörðun um að skipta úr bókstafakvarða yfir í talnakvarða og menntayfirvöld þar tóku ákvörðun um að gefa sér tæp þrjú ár til að aðlaga sína aðalnámskrá að breytingunum; talnakvarðinn tekur gildi í Svíþjóð haustið 2028. Aðalnámskrá er ekki bara ritverk - hún er stefnumörkun Í opinberri umræðu hefur því verið haldið fram að aðalnámskrá sé stjórntæki sem mennta- og barnamálaráðherra setur og breytir samkvæmt 4. gr. og 24. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. En aðalnámskrá er miklu meira en tæknilegt skjal, hún byggir á lagaheimild, hún er ígildi reglugerðar og hún hefur sambærilega réttarstöðu og reglugerð. Hún hefur verið kölluð „samningur þjóðarinnar við sjálfa sig um menntamál“. Hún er helsta stjórntæki fræðsluyfirvalda til að tryggja samræmi, heildstæða menntastefnu og gildandi starfsramma fyrir kennara og skólastjórnendur. Hún skal vera leiðarrit kennara og stjórnenda við skipulagningu náms og kennslu. Farsæl útfærsla á vettvangi þarf góðan samhljóm milli námskrár, námsefnis, skipulags kennslu og námsmats. Fyrir skólastarf er vel útfærð námskrá því bæði límið og rímið sem styður við nám barna. Aðalnámskrá á ekki að breyta með flýtiaðgerð. Hún á að skapa góða heild um skólastarf; móta upphaf, söguþráð, samhengi og endalok eins og góð skáldsaga. Óreiða í innleiðingu, óljós talnakvarði og pólitísk pattstaða Samkvæmt 27. gr. grunnskólalaga er tilgangur námsmats að veita heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda jafnt og þétt yfir skólagönguna. Með drögum að bráðabirgðaákvæði í samráðsgátt stjórnvalda (mál S-193/2026) er ætlast til þess að skólar taki upp einkunnir á bilinu 4–10 fyrir útskriftarárganginn vorið 2027. Samkvæmt drögunum merkir einkunnin 7 að hæfniviðmiðum hafi verið náð en einkunnirnar 8–10 eiga að mæla stigvaxandi meiri dýpt, öryggi og umfram hæfni. Samtímis er ætlast til þess að skólar birti endurskoðaða skólanámskrá eigi síðar en 10. janúar 2027. Allir matskvarðar hafa sína kosti og sína galla, bæði talnakvarðar og aðrir kvarðar. Þessi talnakvarði gæti alveg reynst ágætlega en hann þyrfti þá að endurspegla þá sögu sem aðalnámskrá leggur upp með. Illa undirbúnar breytingar gera minna en ekkert gagn. Umsagnir í samráðsgátt og reynsla skólafólks af vikulegum fundum með MMS á haustönn 2026 sýna að fyrirhugaðar breytingar standa tæpt þrátt fyrir góðan vilja starfsmanna ráðuneytis og MMS. Í stað þess að einfalda námsmat hefur skapast fyrirsjáanleg og óhjákvæmileg óvissa um útfærslu. Talnakvarðar eru margs konar og þá þarf að útfæra og samræma - þeir eru ekki náttúrulögmál sem öll skilja sjálfkrafa með sama hætti. Eftir því sem liðið hefur á haustið og liðið hefur á innleiðingu talnakvarðans hefur álitamálum og vafaatriðum fjölgað. Þrátt fyrir að ráðherra láti sitt færasta fólk þramma með sér þessa leið minnir þessi vegferð óneitanlega ævintýrið um keisarann klæðalausa. Útskriftarárgangur vorsins 2027 hefur verið gerður að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar en vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann í göngunni.. Hæstvirtur mennta- og barnamálaráðherra hefur löngum sagt að hún láti verkin tala. Það þykir okkur bæði gott og aðdáunarvert. Við höfum fulla trú á góðum vilja hennar og áræðni að bæta hlutina. Við viljum hins vegar að vandað sé til verka þegar farið er í stórar breytingar. Góðar umbætur taka tíma og hann eigum við að nýta vel. Vöndum okkur og vinnum saman að bæta menntakerfið út frá þörfum nemenda og samfélagsins. Of skjótar breytingar ráðherra á námsmati hafa nú sett flókið samspil stjórnvalda, fagfólks, foreldra og nemenda í hálfgerða pattstöðu. Afleikur er það síðasta sem menntakerfið okkar þarf á að halda. Fagleg ábyrgð skólastjóra Skólastjórar eru faglegir leiðtogar grunnskóla. Samkvæmt 7. gr. og 29. gr. laga nr. 91/2008 og opinberu samkomulagi um hlutverk skólastjórnenda ber skólastjóri faglega ábyrgð á starfi skólans og að tryggja að skólanámskrá og skólastarf séu í samræmi við lög, reglugerðir og velferð nemenda. Þá ber skólastjóri lagalega ábyrgð á útskrift nemenda úr grunnskóla skv. 32. gr. laganna. Ef skólastjórar og fagfólk í skólunum telja að fyrirhugaðar breytingar standist ekki lagalegar kröfur, valdi réttaróvissu og brjóti á hagsmunum nemenda, ber þeim fagleg skylda til að stíga niður fæti og gera athugasemdir. Fróðlegt verður að sjá að hvaða niðurstöðu stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis kemst. En á meðan sú athugun stendur yfir verða grunnskólar landsins að vinna áfram af fagmennsku eftir gildandi námskrá, meta þá hæfni sem nemendur hafa öðlast á tíu ára grunnskólagöngu sinni og loks útskrifa þá með fullri virðingu og reisn. Höfundar eru í meðlimir í Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri Jón Páll Haraldsson, skólastjóri og varaformaður SÍ Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri Snædís Valsdóttir, skólastjóri Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Hjálmar Bogi Hafliðason Jón Páll Haraldsson Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun