Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar 26. október 2026 07:46 Ég hef verið að velta fyrir undanfarið þeim áhrifum sem það hefur á börn þegar þeim er kastað í sviðsljósið án þeirra vitundar. Ekki einungis áhrifum heldur líka ástæðu. Hvers vegna erum við að deila börnunum okkar? Mögulega því við erum stolt af þeim og viljum sýna þau, mögulega viljum við sýna öðrum hvað við erum að gera. En hvers vegna þurfum við að sýna börnin? Við höldum að við höfum djúpstæðan skilning á internetinu, við teljum okkur vita hver skoðar efnið okkar og í hvaða tilgangi. En vita börnin það eða skilja? Vita börnin einfaldlega hvað netið er? Ég hef verið hugsi yfir því fyrir hvern við erum í raun að pósta. Er það fyrir okkur, börnin eða er það fyrir almenning að sjá? Einnig er annar mjög mikilvægur vinkill á þessu máli, en það eru börn með greiningar og fatlanir. Fyrir hvern er það gert þegar við deilum upplýsingum um reynslu þeirra, heilsufarssögu og viðkvæmum augnablikum lífi þeirra? Ég hef mikið velt vöngum yfir því og ég held að það sé allavega ekki fyrir þau gert. Það getur verið að í einhverjum tilfellum séum við að vekja athygli á einhverju í samfélaginu, brotalöm í kerfinu sem nauðsynlegt er að benda á. En hvernig er best að segja frá því, þarf andlit barnsins að vera í forgrunni þess? Þetta hefur verið mér mjög hugleikið undanfarið, því ég á barn sem var nýlega greint með mjög sjaldgæfan sjúkdóm og vil gjarnan vekja athygli á honum þannig að fólk læri að taka eftir einkennum hjá sínu barni. En hvernig er best að fara að því? Á ég að setjast fyrir framan myndavélina með barnið fyrir framan mig og segja frá? Er þetta ekki þá fræðsla á kostnað barnsins? Barnið mitt vill kannski ekki að allir viti hvað það hefur gengið í gegnum, allavega getur það ekki sagt það strax. Þetta er flókið því við erum rödd barnanna okkar og það er okkar skylda að standa upp fyrir þeim, en þurfa andlit þeirra að fylgja? Eflaust einhverjir ósammála mér, hafa jafnvel skapað sér sess á samfélagsmiðlum og það er sannarlega þeirra réttur. Ég held bara að það sé mjög mikilvægt að við spyrjum okkur gagnrýninna spurninga áður en við förum í þá vegferð að berskjalda börnin okkar fyrir umræðu á netinu. Börnin vaxa úr grasi og eiga þá að geta fengið tækifæri til að skapa sér sína eigin samfélagsímynd og miðla þeim upplýsingum um sig sjálf sem þau telja að eigi erindi við almenning Við þurfum að spyrja okkur; Hvenær þarf ég samþykki frá barninu eða þarf ég þess aldrei? Hvar drögum við línuna? Höfundur er tveggja barna móðir og viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Ég hef verið að velta fyrir undanfarið þeim áhrifum sem það hefur á börn þegar þeim er kastað í sviðsljósið án þeirra vitundar. Ekki einungis áhrifum heldur líka ástæðu. Hvers vegna erum við að deila börnunum okkar? Mögulega því við erum stolt af þeim og viljum sýna þau, mögulega viljum við sýna öðrum hvað við erum að gera. En hvers vegna þurfum við að sýna börnin? Við höldum að við höfum djúpstæðan skilning á internetinu, við teljum okkur vita hver skoðar efnið okkar og í hvaða tilgangi. En vita börnin það eða skilja? Vita börnin einfaldlega hvað netið er? Ég hef verið hugsi yfir því fyrir hvern við erum í raun að pósta. Er það fyrir okkur, börnin eða er það fyrir almenning að sjá? Einnig er annar mjög mikilvægur vinkill á þessu máli, en það eru börn með greiningar og fatlanir. Fyrir hvern er það gert þegar við deilum upplýsingum um reynslu þeirra, heilsufarssögu og viðkvæmum augnablikum lífi þeirra? Ég hef mikið velt vöngum yfir því og ég held að það sé allavega ekki fyrir þau gert. Það getur verið að í einhverjum tilfellum séum við að vekja athygli á einhverju í samfélaginu, brotalöm í kerfinu sem nauðsynlegt er að benda á. En hvernig er best að segja frá því, þarf andlit barnsins að vera í forgrunni þess? Þetta hefur verið mér mjög hugleikið undanfarið, því ég á barn sem var nýlega greint með mjög sjaldgæfan sjúkdóm og vil gjarnan vekja athygli á honum þannig að fólk læri að taka eftir einkennum hjá sínu barni. En hvernig er best að fara að því? Á ég að setjast fyrir framan myndavélina með barnið fyrir framan mig og segja frá? Er þetta ekki þá fræðsla á kostnað barnsins? Barnið mitt vill kannski ekki að allir viti hvað það hefur gengið í gegnum, allavega getur það ekki sagt það strax. Þetta er flókið því við erum rödd barnanna okkar og það er okkar skylda að standa upp fyrir þeim, en þurfa andlit þeirra að fylgja? Eflaust einhverjir ósammála mér, hafa jafnvel skapað sér sess á samfélagsmiðlum og það er sannarlega þeirra réttur. Ég held bara að það sé mjög mikilvægt að við spyrjum okkur gagnrýninna spurninga áður en við förum í þá vegferð að berskjalda börnin okkar fyrir umræðu á netinu. Börnin vaxa úr grasi og eiga þá að geta fengið tækifæri til að skapa sér sína eigin samfélagsímynd og miðla þeim upplýsingum um sig sjálf sem þau telja að eigi erindi við almenning Við þurfum að spyrja okkur; Hvenær þarf ég samþykki frá barninu eða þarf ég þess aldrei? Hvar drögum við línuna? Höfundur er tveggja barna móðir og viðskiptafræðingur.
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun